Bókatíðindi - 01.11.2024, Page 61
SVK
Víðerni
Verndun hins villta í náttúru Íslands
Höf: Þorvarður Árnason
Óbyggð víðerni setja einkar sterkan svip á náttúru
Íslands . Víðerni eru fágæt á heimsvísu sem eykur
enn á mikilvægi þeirra hérlendis . Í þessu riti eru
víðernin könnuð frá ólíkum sjónarhornum og
leitað svara við ýmsum grunnspurningum um
þau, svo sem hvað þau eru, hvaða gildi þau beri og
hvernig verði best staðið að verndun þeirra .
Háskólaútgáfan
IB
Yfirrétturinn á Íslandi: Dómar og skjöl IV.
1733–1741
Ritstj: Gísli Baldur Róbertsson, Jóhanna Þ.
Guðmundsdóttir og Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
Fjölbreytt mál komu fyrir réttinn en þar á meðal
eru morð, spilling embættismanna, ærumeiðingar
og sifjaspell . Fyrrverandi sýslumaður neyddist til að
hafast sumarlangt við í skemmu í Húnavatnssýslu
og ungur maður úr sömu sýslu var gerður
arflaus fyrir leti . Skjöl Yfirréttarins veita einstaka
innsýn í íslenskt samfélag á 18 . öld .
680 bls .
Sögufélag og Þjóðskjalasafn Íslands
SVK
Ykkar einlæg
Bréf frá berklahælum
Höf: Ingunn Sigurjónsdóttir
Ritstj: Úlfar Bragason
Ingunn Sigurjónsdóttir (1906–1931) smitaðist ung
af berklum og dvaldist síðustu árin sem hún lifði
á heilsustofnunum . Bréfin sem hún sendi þaðan
foreldrum sínum og systkinum lýsa lífinu þar,
lækningaaðferðum, andlegu ástandi berklasjúklinga,
löngunum og þrám, en einnig þroskakostum
ungrar konu sem bundin er á heilsuhælum .
366 bls .
Háskólaútgáfan
SVK
Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar
Þessi frægu glæpamál
Morðin á Sjöundá og Illugastöðum
Ritstj: Jón Torfason og Már Jónsson
Átta fullorðnir týndu lífinu og tíu börn innan við
fermingu misstu foreldra sína í tveimur þekktustu
morðmálum Íslandssögunnar á Sjöundá á Rauðasandi
árið 1802 og Illugastöðum á Vatnsnesi árið 1828 .
Málin hafa orðið rithöfundum að yrkisefni og nokkuð
er til af fræðilegri umfjöllun en sjálfir dómarnir
hafa ekki verið gefnir út fyrr en á þessari bók .
392 bls .
Háskólaútgáfan
IB
Þjóðbúningur verður til
Höf: Margrét Gunnarsdóttir
Íslenski þjóðbúningurinn er sprottinn úr þjóðlegum
og alþjóðlegum farvegi í senn . Saga hans veitir innsýn
í íslenska menningu . Brúðarbúningur með ríkulegu
kvensilfri og háum faldi á höfði var glæstasta gerð
búningsins . Horfið er á vit fortíðarinnar, m .a . til
sumarsins 1809 þegar dýrmætasti faldbúningurinn,
sem varðveist hefur, var í sviðsljósinu .
350 bls .
Ugla
IB RAF
Þjóðin og valdið
Fjölmiðlalögin og Icesave
Höf: Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar hélt ítarlegar dagbækur í embætti
forseta og skráði þar frásagnir af atburðum og
samræðum við ráðherra og forystufólk, m .a . þegar
deilt var um fjölmiðlalögin og Icesave . Í þeim síðari var
efnahagslegt sjálfstæði og jafnvel fullveldi þjóðarinnar
undir . Dagbækurnar veita óvænta sýn á þessa
einstæðu atburðarás og lærdóma til framtíðar .
368 bls .
Forlagið - Mál og menning
IB
Þrútið var loft og þungur sjór
Frásagnir frá fyrri tíð
Höf: Steinar J. Lúðvíksson
Þrútið var loft og þungur sjór eftir Steinar J .
Lúðvíksson er afar fróðleg og áhugaverð bók
um sjóskaða við strendur Íslands . Hér segir
frá skipbrotsmönnum hringinn í kringum
landið fyrr á tíð, giftusamlegum björgunum,
hörmulegum mannsköðum, gjörningaveðrum,
feigð og baráttu við landhelgisbrjóta .
288 bls .
Veröld
IB
Æviskeið
Starfssaga Þorkels Bjarnasonar
hrossaræktarráðunautar
Höf: Bjarni Þorkelsson
Þorkell Bjarnason var hrossaræktarráðunautur
B .Í . í 35 ár og hafði fulla yfirsýn yfir allt
hrossaræktarstarf í meira en 60 ár .
Með ævistarfi sínu lagði hann grundvöll að
því ævintýri sem íslensk hrossarækt er nú
orðin . Með ræktendum og samstarfsfólki
setti hann hásölum hestamennskunnar þá
traustu hornsteina sem þeir hvíla nú á .
352 bls .
Bjarni Þorkelsson
SVK RAF HLB
Öðruvísi, ekki síðri
Handbók skynsegin manneskju um hvernig er hægt
að fagna sínu sanna sjálfi og lifa góðu lífi upp frá því
Höf: Chloé Hayden
Þýð: Magnea J. Matthíasdóttir
Hér er á ferðinni hjartnæm og oft bráðfyndin frásögn
af því hvernig það er að vera skynsegin . En þetta
er líka gagnleg handbók um það hvernig best er að
takast á við tilveruna þegar hún verður manni um
megn og hvetjandi lesning sem brýnir okkur til að
skapa samfélag þar sem er pláss fyrir alla . Bókin er
gefin út í samstarfi við Einhverfusamtökin .
304 bls .
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Öxin, Agnes og Friðrik
Síðasta aftakan á Íslandi – aðdragandi og eftirmál
Höf: Magnús Ólafsson
Sagan af Agnesi og Friðriki og morðinu á Natani
Ketilssyni á Illugastöðum hefur lifað með þjóðinni í
bráðum tvær aldir . Hér fer sagnamaðurinn Magnús
Ólafsson á Sveinsstöðum á kostum í magnaðri
frásögn af þessum örlagaríku atburðum en þeir
standa honum nær en mörgum öðrum .
221 bls .
Veröld
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 61GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Fræðirit, frásagnir og handbækur