Bændablaðið - 27.06.2024, Qupperneq 58
58 Líf & starf Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2024
Himbrimi er nokkuð stór vatnafugl og er einn af einkennisfuglum íslenskra heiðavatna. Fullorðinn fugl getur verið allt að 3,5 kg. Hann er einn af tveimur tegundum
brúsa sem verpa hér á Íslandi en frændi hans, lómurinn, er mun minni. Brúsar eru mjög fimir sundfuglar og miklir kafarar. Fæturnir eru mjög aftarlega á búknum sem
gerir þá afar sérhæfða vatnafugla, geta kafað djúpt og langt eftir fiskum. Þetta gerir það að verkum að þeir eru eiginlega frekar vonlausir á landi og geta ekki gengið
heldur ýta sér áfram á maganum. Þeir koma ekki á land nema til að verpa og verpa þá alveg við vatnsbakkann til að geta auðveldlega spyrnt sér út í vatnið aftur.
Himbrimar eru líka nokkuð þungir til flugs, vængjatökin eru kraftmikil og hávær. Þegar þeir lenda þá lækka þeir flugið rösklega, lenda á maganum og renna sér eftir
vatninu. Himbrimar eru nokkuð plássfrekir, þeir helga sér óðöl á varptímum og reka aðra himbrima í burtu. Nánast undantekningarlaust er bara pláss fyrir eitt par á
minni vötnum og eingöngu á stærstu vötnum þar sem finna má fleiri en eitt verpandi par. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
Stjörnuspá
Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann
á að stíga þessa dagana. Lífið virðist leika
við hann í hverju horni og hann sópar því til
sín gleðilegum viðburðum eins og enginn sé
morgundagurinn. Vatnsberinn ætti að njóta
þessa tíma og jafnvel gera sitt besta til að
leyfa þessu láni sínu að létta undir öðrum ef
hægt er. Happatölur 4, 29, 82.
Fiskurinn hefur verið fremur þungbúinn
undanfarið og skilur ekki hvers vegna
hlutirnir ganga ekki upp eins og hann hafði
séð fyrir sér. Það eina í stöðunni er að sýna
auðmýkt og æðruleysi, eitthvað sem fisknum
er ekki endilega tamt, en ætti að minna sig
á að lífið hefur margar hliðar og engin ein
sú rétta. Happatölur 24, 1, 9.
Hrúturinn er undir sömu þungu lægð og
fiskurinn en hann hefur nefnilega verið að
velta fyrir sér málum hjartans og hver staða
hans sé á þeim vettvangi. Ágætt væri að
fara yfir þau sambönd sem vegið hafa hvað
mest í tilfinningalífi hans og greina hvað fór
úrskeiðis – hvar rótin liggur að því sem illa
fór. Happatölur 23, 9, 17.
Nautinu hefur aðeins aukist sjálfstraustið
og ætti að vera duglegra að líta í kringum sig.
Reyndar snúa stjörnurnar þannig að honum
er heillavænlegast að móta skoðanir á því
hvert hann vill stefna á næstu tveimur árum.
Þá með tilliti til alls er viðkemur daglegu lífi
en með áherslu á maka, búsetu eða stórar
breytingar. Happatölur 24, 12, 77.
Tvíburinn hefur verið undir miklu álagi
síðastliðnar vikur og þarf að muna að hvíld
er góð og hugarró að sama skapi. Hann ætti
að gæta þess hvað hann lætur út úr sér og
enn fremur að fara ekki með fleipur. Vegna
slíkra mistaka eða ákvarðana gæti tvíburinn
mögulega þurft að éta ýmislegt ofan í sig.
Happatölur 6, 34, 8.
Krabbinn ætti þessa mánuðina að leyfa
ástinni að umlykja sig. Í formi fjölskyldu,
vina eða jafnvel manneskju sem var honum
hugleikin fyrir nokkru síðan. Það leynist oft
glóð í gömlum glæðum og nú er tækifærið
til að taka skref sem voru áður ekki tekin.
Happatölur 20, 18, 43.
Ljónið íhugar nú gang lífsins eins og aldrei
fyrr. Það hefur nýverið þurft að taka á honum
stóra sínum er kemur að eigin heilsu. Veltir
fyrir sér eins og oft áður hvort lífið sé nú
ef til vill ákveðið fyrir fram eða hversvegna
hlutirnir gerast þegar þeir gerast. Við þessu
eru engin rétt svör, en ljónið má prísa sig sælt
eins og staðan er í dag. Happatölur 7, 30, 51.
Meyjan er á þeytingsspretti í gegnum lífið.
Allt í einu hafa opnast henni fleiri dyr en von
var á en skyldi hafa í huga að allt sem að
henni snýr er henni til heilla. Nú er ráð að
viða að sér öllu því sem meyjuna vanhagar
um, hvort sem er á sviði frama eða fagnaðar.
Happatölur 11, 8, 66.
Vogin er fyllt óréttmætri reiði og básúnast
yfir þeim harmleik þegar í raun er það alls
ekki sannleikurinn. Vogin hefur nefnilega
fallið í þá gryfju að hlýða á kveinstafi byggða
á ósannindum og fleiprum og byggir á því
reiði sína. Réttast væri að íhuga allar hliðar
hvers máls.Happatölur 22, 80, 12.
Sporðdrekinn hefur legið í leti undanfarið
og notið góðs af enda hefur hann alveg átt
það skilið. Hann ætti þó að fara að hugsa sér
til hreyfings og gera upp við sig ýmis mál
sem hafa setið á hakanum. Þetta eru mun
veigaminni ákvarðanir en hann telur, en þarf
að útkljá fyrr en síðar. Happatölur 19, 44, 22.
Bogmaðurinn hefur verið slappur á sál
og líkama í nokkra daga núna og ætti að
hlúa vel að sér. Veikindi hafa verið að hrjá
hann oftar þetta árið en áður og ekki væri
því úr vegi að fá lækni til að taka stöðu mála.
Lukkustjarna er þó yfir peningamálunum
sem koma á óvart. Happatölur 28, 11, 89.
Steingeitin hefur ekki ró í sínum beinum
þessa dagana. Málshátturinn sér grefur gröf
þótt grafi á hér ágætlega við enda hefur hún,
sér að óvörum grafið aðeins undan sjálfri
sér. Hitamál sem henni þótti hún eiga lítinn
sem engan hlut í hefur nú snúist öðrum í vil.
Happatölur 81, 15, 40.
Áherslur tískunnar fara nokkuð
vítt og breitt þetta árið en nú
þegar er farið að líða á mitt sumar
er ekki seinna vænna en að taka
stöðuna.
Hér eru nokkur dæmi sem gaman
er að velta fyrir sér.
Fínlegt kögur
Hönnuðir á borð við Bottega Veneta,
Burberry, Gucci, Mugler og Tom
Ford eru meðal þeirra sem hafa
leikið sér með kögur nýverið, þá
helst með ofurfína þræði. Um ræðir
óumdeilanlega fágaðra kögur en
oft áður, sem leikur frjálst um línur
fatnaðarins, bærist við fald eða fellur
með klæðinu sjálfu. Er kögrið oft
litað að einhverju leyti og í bland við
fínleika sinn beinir það auganu að
lykilþáttum hverrar flíkur fyrir sig.
Mjúk og ljósleit föt fyrir bissness
Hönnun svokallaðs skrifstofu-
klæðnaðar kom fólki á óvart
á tískupöllunum, en má
segja að þarna sé um
nokkuð róttæka
breytingu að ræða.
Gerður úr mjúkum
efnum, ljósleitur
og stílhreinn
fatnaður í formi
íhaldssamra
síðpilsa, blússa og dragta sem þættu
viðeigandi á hverri skrifstofu, þó
vanalega í dekkri litum. Með
þetta í huga gæti verið áhugavert
að endurskoða litapallettu
skrifstofuklæðnaðar og leyfa ljósari
litum að njóta sín – a.m.k. í sumar.
Fullskreytt minidress
Minidress af öllum mögulegum
tegundum hafa skotið upp kollinum
þetta árið og helst fullskreytt með
öllu. Pallíettur, glitsteinar og
semelíusteinar tröllríða þarna öllu
í bland við lögulega smákjóla frá
hinum ýmsu tímabilum. Sjöundi
áratugurinn helst í hendur við þann
fimmta og útkoman verður lítið
annað en stórkostleg. Glitrandi
jafnt sem gróf tíska sem hentar við
hvert tækifæri og þarfnast lítilla
fylgihluta.
Lag á lag ofan
Það hefur jafnan þótt klassísk
skemmtun að blanda saman ýmiss
konar fatnaði, helst í nokkrum
lögum enda getur útkoman komið
skemmtilega á óvart. Nú sáust á
tískupöllunum peysur, pólóbolir
og jakkar yfir minipils, þá
tjullpils og jafnvel blöðrupils
níunda áratugarins úr þunnu
efni. Tilvalin blanda kven-
og karllægra strauma ullar,
bómullar og pilsaefna.
Sumir völdu pallíettupils
með múnderingunni en
ekki er hægt að segja
annað en að þarna geti
allir fundið eitthvað úr
fataskápunum heima sem
má nýta.
Pönk-rókókó
Blúndur, slaufur og fínerí í bland
við svarta grófa fylgihluti, skótau og
jafnvel varalit. Viðkvæmni í bland
við hörku, eða fagurfræðileg lína
daðurs og ögrunar. Tilvalið til að
brjóta upp óspennandi daga.
Brynjuklæddar kempur
Mörgum þykir miðaldatískan
heillandi, þar sem hringabrynjur og
brjóstplötur eru hafðar í hávegum, en
bæði má finna fatnað í klassískum
jarð- og málmlitum en einnig í
skærari útgáfum. Þar má til dæmis
nefna hönnun Tom Ford sem vakti
mikla athygli á leikkonunni Zendaya
fyrir stuttu. Virðist sem Zendaya
sé allhrifin af slíkri hönnun en
hún klæddist samfesting í sama
stíl á kynningu kvikmyndarinnar
Dune. Var sú flík úr ranni franska
fatahönnuðarins Thierry Mugler sem
gerði garðinn frægan um árið með
ilmvatninu Angel.
Hælbandið góða
Tíska aldamótanna virðist nú skjóta
upp kollinum þar sem varnarlausir
eiga síst von á en nú þykir afar móðins
að klæðast támjóum hælaskóm með
bandi. Hönnuðurinn Valentino bætti
um betur og bætti svokölluðum
„kittenheel“ við samsetninguna og
þykir mörgum, um miðjan aldur, nóg
um. (Kittenheel er semsé hvorki eins
hár og fágaður og pinnahællinn en
þó stöðugri.)
Tilfinningalegir stuðningspokar
Fyrir þá sem þurfa tilfinningalegan
stuðning er svokallaður „stuðnings-
hlutur“ nokkuð sem fleiri nýta sér
en ella. Ekki er víst hvort allir geri
sér grein fyrir hvað um ræðir, enda
er hann á ýmsa vegu. Sumir þurfa
t.d. alltaf að hafa kaffibolla sér í
hönd þegar farið er utan dyra, aðrir
sérstaka tösku, bera á sig sérstakan
ilm eða hafa dýr í taumi.
Með þetta í huga hafa hönnuðir
ársins í ár lagt áherslu á töskur í
yfirstærð sem helst er hægt að leggja
yfir öxlina og geyma allt sem geyma
þarf auk þess að veita eigandanum
tilfinningalegt utanumhald.
Ískalt sumar
Svolítið í stíl við mjúku pastellitina
sem áður hafa verið nefndir koma
einnig við sögu pastellitir málmleitra
efna, ný litapalletta sem kemur hér
inn eins og ferskur blær í sumar.
Loftkenndur léttleiki pastelsins
í bland við vetrarkulda sendir
ískalda tóna út í kosmósið, jökulblár,
silfurgrár og jafnvel kaldur en
skærbleikur rósalitur eiga allir upp
á pallborðið hér.
Gyllt, þykkt og áberandi
Eyrnalokkatískan heldur áfram að
vera úr þykku og áberandi gulli,
nú enn fremur en áður. Yves Saint
Laurent og Schiaparelli kynna ýkta
útgáfu eyrnalokka sem voru hvað
vinsælastir í fyrra og má segja að
þarna skipti stærðin öllu máli.
/sp
Tíska:
Sumarsveiflan 2024
Hælaskór Valentino og svokölluð
stuðningstaska Bottega.
Leikkonan Zendaya í hönnun Mugler.