Víðförli - 01.03.1947, Side 57
LÆKNIR UM LEIÐINA TIL HEILBRIGÐI
55
eftir leið hins innra lífs ■— veginum, sem liggur til Guðs, skap-
ara lífsins.
I kyrrð hljóðra stunda frammi fyrir Guði uppgötvum vér ein-
faldar staðreyndir í lífi voru, sem skynsemd vor gat aldrei bent
á. Og vér fáum jafnframt inngjöf til athafna. Því allt virkilegt
líf er. fólgið í tvennu, sem fyllir hvort annað, hvíld og önn,
innbeiting og útrás. Athöfn, sem er undirbúin af íhugun, er allt
annars eðlis og allt annars gildis en þetta æsihraða, andlausa
erilhringl, sem einkennir vora tíma, fyllir tilveruna skrölti,
taugaóstyrk og argaþvargi og er ein höfuðorsök hinnar geig-
vænlegu aukningar á tölu taugasjúklinga. Menn segja, að þetta
sé járnbrautunum og bílunum að kenna, símanum, útvarpinu
og tvísýnu atvinnu- og fjármálalífsins. Já, mikið rétt, en fyrst
og fremst er maðurinn sökin sjálfur.
Eg lief sjálfur lengi verið eirðarlaus maður, friðlaus af ann-
ríki, sá aldrei 'fram úr, mátti aldrei vera að því að sinna mínum
innra manni. Síðan ég hóf að helga andlegu lífi mínu klukku-
stund á dag til jafnaðar, stundum til muna meira, hef ég orðið
að sleppa nokkru af þeirri ívasan, sem ég taldi áður óhjákvæmi-
lega, en ég hef hlotið meira gagn og gleði af starfi mínu.
Kristur líkir hinni andlegu reynslu við mustarðskornið, sem
grær. Það geymir möguleika allra þeirra krafta, sem skulu
þroskast í vexti þess, en tréð, sem spretta skal upp af því, er
ekki sýnilegt enn. Það er róttæk bylting, sem á sér stað, þegar
þurrt sáðkorn breytist í gróandi. Nýtt líf fæðist. En þessi
fæðing er hulin. Hið ytra sést enginn munur. Það er eðlisbreyt-
ing, verður ekki mæld eða vegin.
Allsendis eins er það með mann, sem tekur „lífsbreytingu'h
Það er breyting, sem ekki er af þessum heimi, eðlisleg, algjör,
atburður, sem hann veit um og getur borið vitni um, en ber
sýnilegan ávöxt að sama skapi sem hann kemst til skilnings
á óhjákvæmilegum afleiðingum hennar. Eins og ung jurt þarfn-
ast hann umönnunar og ræktar, þótt hjarta hans hafi öðlazt
hlutdeild í þeim krafti, sem mun hjálpa honum til heilbrigði.