Jólablaðið - 01.12.1947, Page 10

Jólablaðið - 01.12.1947, Page 10
4 frá messunm, var jólamáltíðin 'borðuð. En þcá sagði mamma allt í einu: ,,Ætli nokkur hafi munað eftir honum Dabba gamla í kofanum í kvöld? Eg held, að það sé ekkert ljós í glugganum hjá honum!“ ,,Hann hefir líklega lagt sig til svefns, aummgja karlinn,“ sagði ,,Ég hefði átt að gleðja hann með einhverju,“ sagði mamma. ,,Hann vill hvergi koma, og það er ekki víst, að neinn hafi sent honum jólaglaðn- íng heim.“ Og mamma lct ekki lenda við orðin tóm. Hún útbjó í snatri stóran böggul með ýmiskonar góðgæti, fáein epli, hangikjöt, og meira að segja jólagraut, sem hún hellti í dálitla könnu. Svo snen hún sér að sonum sín- um. ,,Þið bregðið ykkur með þetta yfir til gamla mannsins. Það er svo stutt að fara.“ Nú runnu tvær grímur á drengma. Ekki gátu þeir neitað að gera góðverk á sjálfum jólunum. En þetta var nærn því það sama og að ganga bemt í trölla hendur. ,,Þið eruð vonandi ekki myrkfælmr á jólunum, og þar að auki þrír saman ? ‘ ‘ ,,Má ekki pabbi koma með okkur?" spurði yngsti drengunnn. ,,Æ, elskurnar mínar, verið þið nú ekki að nemni vitleysu. Englarnir fylgja ykkur, svo að pabbi geti hvílt sig.‘“ Hún hló við, um leið og hún opnaði sjálf dyrnar fyrir drengjunum. Þeir óskuðu þess með sjálfum sér, að það væru margar dagleiðir yfir í kofann til hans Dabba. Framþilið var kolsvart, og ekkert ljós í gluggan- um. Dauðakyrrð var yfir öllu, en tunglsljósið glitraði í troðnmgnum, sem lá heim hlaðið. Fet fynr fet mjökuðust þeir að dyrunum, án þess að tala saman. Það marraði í mjöllinm. Þeir námu staðar og horfðu á kofahurð- ina, eins og þeir byggust við, að dyrnar mundu opnast af sjálfu sér. En ekkert skeði. Þá réðist elzti drengurinn í að berja. Hurðin stundi undan höggunum. Þeir hlustuðu af öllum kröftum. Ekkert fótatak heyrðist ínm fyrir. Kannske væri það bezt, að Dabbi kænn alls eklo til dyra. En þeir hugsuðu allir það sama. Mamma mundi spyrja, hvort þeir hefðu þorað að opna og vita, hvort gamli maðurinn væri veikur. Loks opnuðu þeir dyrnar í hálfa gátt. Hurðin var hreint ekki létt. Hún gekk ínn, og þungt

x

Jólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólablaðið
https://timarit.is/publication/1984

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.