Jólablaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Jólablaðið - 01.12.1947, Qupperneq 40

Jólablaðið - 01.12.1947, Qupperneq 40
34 Og ekki heldur það í gær. Ef ég á að lenda í mein vandræðum út af þess- um kvæðum, kæri ég þetta.“ ,,Seztu!“ sagði ungfrú Daffney. Eftir nafnakallið skrifaði ungfrúin heila örk, þar á meðal kvæðið nýja, og skipaði mér að fara með ntverkið inn í kennarastofu. ,,Efvers vegna ég? Ekki orti ég þetta kvæði,“ varð mér að orði. ,,Gerðu það sem þér er sagt!“ sagði ungfrú Daffney. Ég fór upp að skrifborðinu, rétti út höndina til þess að taka við skjalinu, ungfrú Daffney barði á hana, ég hoppaði heilt skref aftur á bak, því næst sagði ég: ,,Eg ætla ekki að fara að bera ástanbréf fyrir yður!“ Nú var ég auðvitað kominn að takmörkunum. Allt á sér takmörk. Ungfrú Daffney hljóp á mig. Eg var aftur á móti svo gramur út í Arak frænda, að ég sneri við og stökk á hann. Hann lézt vera alsaklaus og svndi enga mótspyrnu. Hann var samt fimur, og í stað þess að fá íllan skell, eins og ég ætlaði honum, slapp hann vel, en ég lá kylhflatur á gólfinu, þangað til ungfrú Daffney náði mér. Eftir það hafði hún yfir- tökin. Þegar ég komst inn í kennarastofu, var ég allur skrámaður og skell- óttur á andliti og höndum, og ástarbréfið frá ungfrú Daffney til Derr- mgers var krumpað og sums staðar nfið. ,,Hvað hefur tafið þig?“ spurði Derringer. ,,Heyrðu, láttu nug sjá þessi skilaboð. Hvað hefurðu gert af þér nú?“ Hann tók skilaboðm, braut blaðið í stindur, slétti úr því á sknfborðinu, og las það rólega. Hann las það þrisvar eða fjórum sinnum. Hann var glaður og, að því er ég gat bezt séð, ástfanginn. Hann sneri sér við með stóru brosi, en ég hélt hann ætlaði að fara að skamma nng fyrir að segja, að ungfrú Daffney væn ljót. ,,Ég orti ekki kvæðið," sagði ég, ,,og ekki heldur lutt í gær. Ég vænti einskis annars í þessum skóla en að fá svohtla menntun og fá að lifa og láta aðra í fnði. ,,Jæja, jæja,“ sagði Derringer. Hann virtist vera ánægður. ,,Ef þér elskið hana,“ sagði ég, ,,kemur yður einum það við, og ég óska þess, að þér haldið mér utan við það.“ ,,Ég segi bara það, að þú gætir verið hógværan í orðum um útlit ung- frú Daffneyar,“ sagði Dernnger. ,,Þótt hún sé lítilfjörleg í þínum aug- um, þá er ekki víst, að hún sé það líka í annars manns atigum,“

x

Jólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablaðið
https://timarit.is/publication/1984

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.