Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 7

Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 7
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2014 5 bað mig að halda hátíðarræðu á Atlavíkursamkomu sem Skógræktarfélag Austurlands stóð fyrir á þeim árum. Hann vildi að fjallað yrði um viðhorf til náttúru- verndar og umhverfismála sem þá voru að færast í brennidepil þjóðmála, ekki síst vegna deilunnar um Laxá í Þingeyjarsýslu. Stefán Jónsson, þáverandi fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu og síðar þingmaður, hafði bent honum á mig vegna viðhorfa sem Stefáni þóttu nokkuð óhefðbundin hjá verkfræðingi á þeim árum - ekki síst hjá verkfræðingi sem einmitt var við- riðinn rannsóknir á nýtingu náttúruauðlinda í þágu atvinnuskapandi iðnaðar á vegum Rannsóknaráðs ríkisins! Kjarninn í þeim hugmyndum var sá - og er enn - að friðun og vernd sé eitt form á nýtingu náttúrunnar og fullgilt í þágu hagsældar og farsældar fyrir mann- inn - jafnt á líðandi stundu sem fyrir framtíð hans á jörðinni. Náttúruvernd mætti því meta til verðgildis jafnt og aðra verðmætasköpun úr auðlindum náttúr- unnar. Umhverfisvernd væri brýn nauðsyn fyrst og fremst vegna mannsins sjálfs, en ekki vegna náttúrunnar - hennar sjálfrar vegna! Við blasir vandrataður vegur og alls ekki laus við átök um hags- muni og leiðir. Vísindarannsóknir og tækniframfarir gætu þó hjálpað til að sætta ólík sjónarmið. Þetta féll í kramið hjá hinum framfarasinnaða Sigurði Blöndal. Mér og Áslaugu konu minni var því boðið til sumarhátíðarinnar og ræðuhalds í Atlavík og - það sem meira var - að gista í húsmæðraskólanum á Hallormsstað, æskuheimili Sigurðar. Í því húsi andar enn í dag einstökum arfi mennta, menningar og háleitra hugsjóna sem foreldrar Sigurðar hófu til vegs með stofnun skólans. Sá andi hefur augljóslega markað lífsstarf Sigurðar. Áhrifanna gætir víða í landinu, en ekki síst hér um slóðir. Þetta varð eftirminnileg dvöl fyrir okkur hjónin. Sigurður leiddi okkur um Hallormsstaðaskóg og ég fékk nýja innsýn í líffræðilegan grunn skógræktarinnar og ögrun þess að rækta nýjan skóg á Íslandi - sjálfur minnugur afleiðinga hretsins vorið 1963 á fyrstu viðleitni mína og fjölskyldunnar í skógrækt. Enn á ég tré sem vaxið er af stiklingi sem tekinn var við þetta tækifæri af alaskaösp, úr kvæminu C-10 sem Haukur Ragnarsson, forstöðumaður á Mógilsá, hafði safnað í óshólmum Copper River í ferð sinni árið 1964 til Alaska. Stiklingurinn sá er nú orðinn mikill að vöxtum, a.m.k. 15 m hátt, bolmikið tré og á sér mörg klónuð afkvæmi. Í kjölfar þessarar Atlavíkurhátíðar fylgdu svo ára- löng samskipti við Sigurð, m.a. á vettvangi Land- verndar og síðar Náttúruverndarráðs undir stjórn Eysteins Jónssonar með helstu áhuga- og fræði- mönnum þess tíma um náttúruvernd. En fyrst og fremst snerust samskipti okkar Sigurðar um málefni skógræktar og landgræðslu - og leiðum til að bæta kápu hins „tötrum klædda Íslands“. Ég var ráðinn framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs stuttu eftir að Sigurður var skipaður skógræktarstjóri. Það leiddi til margvíslegra samskipta, m.a. um leiðir til að efla skógræktarrannsóknir og tilraunir og um markmið og leiðir í skógrækt sem fjallað var um á þingum skógræktarmanna. Umræða milli okkar Sigurðar varð líka til þess að gerð var könnun á stór- tækri nytjaskógrækt í tengslum við framtíðarkönnun forsætisráðuneytisins um miðjan 9. áratuginn sem sýndi fram á hagkvæmni og fjölþætt áhrif skógræktar. Eitt sinn bað Sigurður mig um aðstoð við að sameina krafta ýmissa aðila úr skógræktar-, landgræðslu- og garðyrkjugeiranum til að vinna úr og gera tilraunir með afar umfangsmikinn efnivið sem Óli Valur Hansson garðyrkjufræðingur og félagar hans, skógarverðirnir Ágúst Árnason og Böðvar Guðmundsson, höfðu safnað í Alaska haustið 1985. Það verkefni leiddi af sér einstaklega ánægjulegt samstarf við fjölmargt kunnáttu- og fagfólk sem dýpkaði skilning á mikilvægi erfðaefnisins og síðan afar gefandi persónuleg viðfangsefni fyrir mig í skógrækt og garðyrkju - ekki síst í frístundum allt til þessa dags. Þannig hafði Sigurður varanleg og djúpstæð áhrif á lífsstarf mitt og áhugamál og ég þykist vita að sama gildi um marga hér inni - hvern með sínum hætti. Sigurður var einlægur framfarasinni og áhugamálin mörg en skógræktin og umhyggja fyrir náttúrunni og allri fjölbreytni lífsins voru þar efst á baugi. Sigurður var fordómalaus gagnvart öllum líftegundum skógarins sem þrífast vildu á Íslandi, líka þeim sem umdeildar urðu. Hann var maður líffjölbreytninnar. Skógræktin á Íslandi hefur átt sér marga öfluga forgöngumenn sem lagt hafa hönd á plóginn. En ég þykist þó vita að það sé ekki síst Sigurði að þakka, - að öðrum ólöstuðum, - að skógrækt á Íslandi hefur komist á þann skrið sem nú blasir við. Sú jákvæða kynning og framtíðarsýn sem hann lýsti með leiftrandi orðum og eldmóði í ræðu og riti sannfærði bæði almenning og ráðamenn um mikilvægi skógræktar. Fljótsdalsáætlunin sem Sigurður beitti sér fyrir og tókst vel var það fordæmi sem um munaði. Samþætt- ingin þar við hagsmuni bænda réði úrslitum um það land sem síðan hefur verið tekið til skógræktar.

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.