Skógræktarritið - 15.10.2014, Blaðsíða 78

Skógræktarritið - 15.10.2014, Blaðsíða 78
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201476 Aðstæður Jörðin Deild í Fljótshlíð hefur tengst fjölskyldunni í meira en 250 ár svo taugar hennar rista þar djúpt. Í Árbók Ferðafélags Íslands 1931 er fjallað um Fljóts- hlíð. Þar segir m.a. „tún eru þar mikil og grasgefin og ágæt skilyrði til grasræktar“. Þetta lýsir í hnotskurn kostum og göllum aðstæðna þar fyrir trjárækt í túnum sem ræktuð hafa verið í þúsund ár. Grasið gefur sig ekki og eftir tuttugu ára baráttu er ekki að sjá neina undangjöf nema þar sem laufþekja trjánna hefur hulið grassvörðinn dimmum skugga í mörg ár. Jarðvegur- inn er frjósamur og flokkast sem brúnjörð (andosol). Slíkur jarðvegur er ríkur af lífrænum efnum, inniheldur allofan-leir og myndar kúluklasa úr smáum moldarkúlum í efstu 10-20 cm. Þar sem hlíð- inni hallar nokkuð bratt á móti suðri er lítil hætta á næturfrostum á sumrin, kal fátítt og inngeislun sólar meiri en ella væri. Vatn sígur fram undan hallanum eins og sést í skurðum sem grafnir hafa verið þvert á brekkuna. Það nýtist trjágróðrinum vel. Upphaf trjáræktar Lítill trjágarður hefur lengi verið í Deild en sú trjárækt sem hér er til umræðu hófst 1993. Þá var leitað ráða hjá skógræktarmönnum með staðarþekkingu en ábendingar þeirra voru ekki uppörvandi. Þeir bentu m.a. á að stíf austanátt og langvarandi skafrenningur að vetri myndi líklega granda verkefninu. Þetta var eðlileg ályktun enda segir sagan að fáum árum áður hafi gert skaraveður í Fljótshlíð sem m.a. skóf málningu af húsum ofan snjólínunnar og klippti ofan af trjám sem fyrir því urðu. Væntanlegt ræktunarsvæði stóð algerlega opið fyrir öllum veðrum án nokkurs skjóls eins og sjá má á 1. mynd. Áhugafólk úr röðum vina og kunningja leit öðruvísi á möguleikana og bentu á að með útsjónarsemi og rúmum tíma gæti trjárækt blessast eins og sjá mætti í gamla garðinum. Áhættan væri hverfandi en sennilega þyrfti að strita meira til að ná árangri en við skjólbetri aðstæður. Byggt á þessu var ráðist í verkefnið þrátt fyrir litla reynslu og þekkingu. Fyrst var ræktunarsvæðið girt, það skipu- lagt og svo valdar nokkrar tegundir til að taka fyrsta slaginn. Sumarið 1993 var aðallega plantað berróta víðitegundum og bakkaplöntum af birki, ösp, gráelri og rússalerki. Veturinn eftir var eins og flestir fyrri vetur og mat skógræktarmannanna rættist að mestu. Allt gráelrið og rússalerkið drapst. Það sem eftir lifði af öðrum teg- undum var bertálgað niður hálfan stofninn og niður í rót á þeirri hlið sem var áveðurs. Þrátt fyrir Tuttugu ára trjárækt í Deild í Fljótshlíð Fyrri grein 1. mynd. Deild í Fljótshlíð - yfirlitsmynd. Trjáræktin er ofan og hægra megin við græna íbúðarhúsið en gróðurhús er vinstra megin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Skógræktarritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.