Skógræktarritið - 15.10.2014, Side 30
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201428
Ráð til byrjenda og lokaorð
Jólatrjáarækt er ekki fyrir byrjendur, eða svo við
orðum þetta skýrar: Góður árangur næst ekki í
jólatrjáarækt nema menn hafi víðtækan skilning á
landi og trjám. Auk þess þarf að hafa góða kunnáttu
í klippingum.
Ef farið er í jólatrjáarækt af fullri alvöru með það
að markmiði að ná sem hæstu nýtingarhlutfalli, þá
er ekki nóg að gróðursetja og koma aftur eftir 15
ár með sögina. Það þarf árlegt eftirlit og klippingar.
Spurningar eins og þarf að grisja skerminn meira, er
teinungur að lemja trén, þarf að stytta eða toppa eða
jafna hliðargreinar, spelka upp toppa, fækka toppum,
eða bera á? Líti menn á hverja hríslu sem verkefni
sem á að enda sem jólatré þá er margt sem glöggur
ræktandi getur gert annað en að standa hjá og bíða.
Ræktun á mörgum tegundum jólatrjáa hefur þann
kost að ólíklegt er að allra handa pestir leggist á margar
tegundir í einu, þannig að árlegt uppskeruöryggi er
meira en sé aðeins ein tegund ræktuð. Galli við fjöl-
breytta ræktun gæti verið sá að erfiðara sé að koma
trjánum í smásölu sé sú söluaðferð valin.
Ræktun á jólatrjám hentar vel sem aukabúgrein þar
sem álagstíminn er mjög bundinn við nóvember og
desember.
Íslenskur jólatrjáamarkaður er í stöðugri þróun. Það
er ekkert sem bendir til þess að notkun jólatrjáa sé á
undanhaldi enda er þetta skemmtilegur siður.
Grein þessi var send nokkrum gamalgrónum jóla-
trjáaræktendum til yfirlesturs og eru þeim Þór
Þorfinnssyni, Böðvari Guðmundssyni, Sigurði Skúla-
syni og Bergsveini Þórssyni þakkaðar ábendingar við
þessa grein. Þá má ekki gleyma Steinari Björgvinssyni
og Rúnari Ísleifssyni og öllum þeim sem gáfu góð ráð.
Síberíuþinur og fjallaþinur í jólatrjáasölunni í Kjarna.
Orðabók jólatrjáasalans
Veggtré: Allar greinarnar á annarri hliðinni.
Horntré: Greinar á svona einum fjórða trésins.
Pípuhreinsari: Mjótt jólatré.
Kústskaft: Svipar til pípuhreinsarans en öllu nettara.
Legið á greni: Rólegur tími í jólatrjáasölu.
Lifandi jólatré: Deyjandi jólatré.
Greni: Allar aðrar greinar en greni.
Feitt tré: Mikið um sig.
Þétt tré: Getur ýmist verið þétt eða feitt eða hvort
tveggja.
Gervijólatré: Plast sem þykist vera jólatré.
Að falsa: Bæta við greinum í torgtré (hjálpartæki:
borvél og lím).
Þetta fína: Greinar af sýprus og thuja.
Algengar spurningar úr jólatrjáasölunni
„Fellir þetta tré greinarnar?“
„Eigiði birki jólatré?“
„Eigiði lerki jólatré?“
„Hvað á að vera langt á milli jólatrjáa?“ („Svona eitt
ár“ svaraði Hafsteinn Hafliðason hér um árið).
Bergsveinn Þórsson og Beate Stormo búnta danskan nordmannsþin í
Kjarna fyrir jólin 2006. Alltaf er markaður fyrir fallegar ilmandi greinar.
Einn bjartan nóvemberdag í framtíðinni munum
við svo fylla fjölda gáma af jólatrjám og senda þá til
Danmerkur svo þeir þurfi ekki að nota sinn feita ljóta
nordmannsþin. Eða hvað?
Höfundur: HELGI ÞÓRSSON