Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 33

Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 33
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2014 31 nýlenduvörur inn. Hansakaupmenn gerðu bæinn að einum helsta verslunarstað sínum ásamt Novgorod, Brügge og London. Þeir þrengdu mjög að verslun heimamanna og voru nær einráðir í utanríkisversl- uninni um tíma, nema í siglingum til Íslands, sem áfram var á vegum heimamanna. Bryggjan var lengi helsta festi Hansakaupmanna og sú húsaröð sem nú myndar þessa merku arfleifð má einmitt rekja til tíma Hansakaupmanna og sameiningu norskrar og evrópskrar byggingarlistar. Furutimbrið var sótt í skógana í Harðangursfirði og nágrenni. Bryggjuhúsin eru húsaröð þriggja hæða plankahúsa (gårder) sem byggð voru þvert á bryggjuna; neðstu tvær hæðirnar þjónuðu sem vöruhús og verslanir en efsta hæðin sem skrifstofu- og íbúðarhúsnæði. Traðir eru milli húsanna sem ásamt lyftibómum auðveldaði meðferð varnings. Stórir brunar hafa haft sín áhrif á ásýnd og endurnýjun húsanna; stór bruni varð 1702 en síðasti stórbruni var 1955. Í dag er margvísleg starfsemi á Bryggen; verslanir, veitingahús, gallerí og þjónustu- starfsemi ýmiskonar og sér eignarhaldsfélag eigenda húsanna, Stiftelsen Bryggen, um rekstur og útleigu. Um 2,5 milljónir ferðamanna koma fyrir framan Bryggen árlega en 1,6 milljón manns ganga inn um traðirnar. Þetta kallar að sjálfsögðu á aðstöðu, viðhald og kostnað en ekki er selt inn á svæðið þótt aðstaðan sé fyrir hendi. Skoðunarferð um Bryggen lauk með hádegisverði í boði Skógræktarfélags Hörðalands á þriðju hæð í einu bakhúsanna þar. Frá Bergen var ekið norður til hins forna konunga- seturs Sæheims (no. Seim) sem getið er í Íslendinga- sögunum og Konungasögum Norðurlanda. Í Lindås er nyrsti beykiskógur Noregs, sem gróðursett eða sáð hefur verið til einhvern tímann á tímabilinu 500 -1000 e. Kr. Ekki er vitað með vissu hver stóð fyrir Bernt leiddi okkur um Bryggen og hér sýnir hann hvernig viðgerð húsa gengur fyrir sig. Til að mæta ágangi og hækkun sjávar eru húsin tjökkuð upp um 80 cm. Grunnur húsanna eru tólf lög af krosslögðum bjálkum. Á myndinni frá vinstri eru; Magnús Gunnarsson, Bernt - Håvard Öyen og Sævar Hafsteinn Jóhannsson.

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.