Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 35

Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 35
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2014 33 Espen Selvik, forstöðumaður Gulaþings, var líflegur og fróður leiðsögumaður okkar og lét sig ekki muna um að leika Egil Skallagrímsson og fórst það vel úr hendi. Espen er tónskáld og tónlistarstjóri og hefur samið fimm sinfóníur og tvær sónötur. Hann er einnig tónlistargagnrýnandi Bergens Tidende og heiðurskonsúll Litháen. Sævar Hafsteinn Jóhannsson og Árni Þórólfsson (t.v.) virða fyrir sér myndarlega evrópuþini (Abies alba). lög hafði sett Hálfdan svarti [Goðröðsson f. um 820, d. 860, konungur Upplendinga frá 839 og faðir Haraldar Hárfagra] sem fyrr er ritað. ..... Hálfdan konungur var viskumaður mikill og sanninda og jafnaðar og setti lög og gætti sjálfur og þrýsti öllum til að gæta og að eigi mætti ofsi steypa lögunum. Gerði hann sjálfur saktal og skipaði hann bótum hverjum eftir sínum burð og metnaði. Ragnhildur drottning ól son og var sá sveinn vatni ausinn og kallaður Haraldur. Hann var brátt mikill og hinn fríðasti. Óx hann þar upp og gerðist þegar íþróttamaður snemma og vel viti bor- inn. Móðir hans unni honum mikið en faðir hans minna. Ekið var til Leirvåg þar sem tekin var ferja yfir til Sløvåg og ekið þaðan til Gulafjarðar. Í Eivindvik hittum við fyrir leiðsögumann okkar og aðalgest- gjafa, Hans Fredrik Lauvstad og Anne Lise Lauvstad, eiginkonu hans. Eftir innritun á hótel var haldið í skoðunarferð á þingstaðina tvo, Gulaþing hið eldra og nýrra. Hið síðarnefnda var í tilefni árþúsundamóta útnefnt sem þúsaldarstaður og árið 2005 komið upp digru minnislistaverki þar og aðstöðu til mann- fagnaða. Ekki dugði norskt granít, sem nóg er þó af, heldur voru steinblokkirnar sóttar til Kína. Eftir þessa fróðlegu skoðunarferð um þingstaðina var haldið heim á Eivindvik Hotel þar sem beið okkar vegleg veisla. Mánudagur 01.09 Dalsfjarðardagurinn rann upp bjartur og fagur og framundan ferð um Fjalir, heimasveit Ingólfs Arnar- sonar og Leifs [Hjörleifs], frænda og fóstbróður Ingólfs. Ekið var frá Eivindvik og tekin ferja frá Rutledal til Rysjedalsvika og þaðan ekið til Hrífudals (Rivedal). Þaðan er talið að þeir fóstbræður Ingólfur og Leifur hafi ýtt úr vör ásamt fylgdarliði og haldið til Íslands eftir að vinátta þeirra við syni Atla jarls hinn mjógva af Gaulum endaði illa vegna ástar þeirra Leifs og Hólmsteins til Helgu, systur Ingólfs. En um veturinn gerðu þeir fóstbræður veislu sonum jarls- ins. Að þeirri veislu strengdi Hólmsteinn heit, að hann skyldi eiga Helgu Arnardóttur eða öngva konu ella. Um þessa heitstrenging fannst mönnum fátt, en Leifur roðnaði á að sjá, og varð fátt um með þeim Hólmsteini, er þeir skildu þar að boðinu. Fór svo að Ingólfur og Leifur felldu Hólmstein og síðar Herstein Atlason. Þeir náðu þó sáttum við Atla jarl og eftirlifandi son hans, Hástein, með því að

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.