Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 41

Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 41
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2014 39 T.v. Magnús Gunnarsson fylgist með Roald Drage fletta utan af grenibol sem var of sver fyrir hjólsögina. T.h. Ingebrigt Nes Hjelle segir frá Torgeir Anderssen-Rysst, fyrrum sendiherra Norðmanna á Íslandi og miklum velgjörðarmanni íslenskrar skógræktar. Sigríður Erla Elefsen, Laufey B. Hannesdóttir og Björn Sigurbjörnsson fylgjast með. Fimmtudagur 04.09 Frá Skei var stefnan tekin til Kaupanger og hófst dag- skráin þar á skoðunarferð um Amlaskogen, þar sem eigandinn, Gjert Heiberg, skólabróðir Jóns Loftssonar skógræktarstjóra frá Landbúnaðarháskólanum á Ási, leiddi okkur um skóginn. Í Innra-Sogni ber skógurinn meiri svip af meginlandsloftslagi og stór hluti af hinum 1500 hektara Amlaskogen er furuskógur af góðum gæðum og vöxtur nálægt 17 metrum við 40 ára aldur. Þarna hafði einnig verið gróðursett eðalþinur og marþöll, degli og evrópulerki, sem þrifust vel. Aðaltekjurnar af skóginum þessi árin eru af veiðum á hjartardýrum og skógarfuglum. Á eigninni er um 900 metra hár fjallstoppur svo þarna eru bæði fjalla- og lyngrjúpa. Vegna hins lága timburverðs nú er skógurinn látinn standa og renta sig. Á eigninni eru nokkur sumarhús til útleigu. Dóttir Gjert, sem einnig er skógfræðingur, hefur nú tekið yfir eignina en var upptekin við berjauppskeruna þennan dag. Gjert sýndi okkur einnig gamlar kolagrafir og rústir af hlöðnum steinveggjum þar sem tjara var soðin úr furu. Frá Amlaskogen var haldið til annars höfuðbóls, Kaupanger Hovedgård, þar sem okkur var boðið til hádegisverðar í gömlu fjárhúsi á jörðinni, sem hefur lengi verið í eigu Knagenhjelm ættarinnar. Þar tóku á móti okkur hjónin Christen og Randi Knagenhjelm og sonur þeirra Christoffer. Hann er fornleifafræðingur og nú veitingamaður í þessu huggulega húsi við hlið stafkirkju sem tilheyrir eigninni. Eftir matinn sýndi Christen okkur kirkjuna og rakti sögu hennar en talið er að hún sé byggð um 1137. Klukkur frá 12. öld hanga nú í kirkjuturninum og var áhrifaríkt að heyra hljóma frá 12. öld í þessari mögnuðu stafkirkju. Christen kunni margar skemmtilegar sögur sem verða ekki raktar hér. Að síðustu var öllum boðið upp að altarinu og hópurinn myndaði kór sem söng fyrir gestgjafann. Einn af forfeðrum Christen, Joachim de Knagen- hjelm (f. 1727), réðst eftir embættispróf í lögfræði frá Hafnarháskóla til stiftamtmannsins í Bergenhus-stifti sem spannaði yfir það sem nú er Hörðaland, Sogn- og Fjarðafylki og Suður-Mæri, auk þess að hafa eftirlit með Norður-Noregi. Joachim náði því í gegn að fylkinu var skipt í norður- og suðurfylki og norður- hlutinn varð síðan að Sogn- og Fjarðarfylki og Suður- Mæri. Hann er því talin faðir Sogn- og Fjarðafylkis. Knagenhjelm var aðalsætt þar til aðalstign var afnumin í norskum lögum, trúlega árið 1821. Auður og áhrif ættarinnar er þó rekin til hinna ríku furuskóga og vinnslu og sölu viðarafurða á miðöldum. Furan innst í Sognarfirði var eftirsótt til húsagerðar og nær fullvíst að bjálkar frá Kaupanger séu til að mynda í gömlum tréhúsum Björgvinjar og jafnvel á Englandi og víðar um lönd. Eftir kirkjuferð var gengið um frægarð af rauðgreni

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.