Skógræktarritið - 15.10.2014, Síða 46

Skógræktarritið - 15.10.2014, Síða 46
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201444 jafnra skoðana á trjárækt í sameiginlegum görðum. Silfurreynirinn við Grettisgötu er svo dæmi um breyttar þarfir vegna uppbyggingar og breytinga á deiliskipulagi hverfa. Þá eru trén látin víkja fyrir nýbyggingum, vegagerð o.s.frv. Hér vantar fjórða dæmið sem er þó að öllum líkindum algengast þegar kemur að trjáfellingum í þéttbýli en það eru tré sem húseigendur fella í eigin görðum, og uppfylla skilyrðin að vera orðin 60 ára og/eða hærri en 8 metrar, án þess að hafa til þess tilskilin leyfi. Ástæðurnar geta verið margvíslegar; þær geta lotið að nýjum eigendum á garði með stórum trjám sem þekkja ekki sögu trjánna og er alls ókunnugt um mismunandi trjátegundir. Tré stækka með aldrinum og geta orðið býsna umfangsmikil en tískusveiflur síðustu ára valda því að fólk er ekki eins hrifið af stórum trjám. Fólki er einnig oft ókunnugt um reglur- nar sem gilda um fellingar á trjám, t.d. í Reykjavík. En einnig hafa borist fregnir af einstaklingum sem vísvitandi fella tré án leyfis og þá í skjóli þeirrar vissu að óhætt væri að fella hin merku tré vegna þess að enginn refsirammi væri til staðar vegna slíkra brota. Eins hefur borið nokkuð á því að garðyrkjufyrirtæki hafa farið mjög óvarlega í umhirðu á trjám t.d. með kollun trjáa eða fellingu þeirra. Stundum er um að ræða garðyrkjufyrirtæki þar sem starfar fólk sem hefur litla menntun á þessu sviði. Þegar tré eru kolluð er tréð sagað að ofan og stytt; almennt séð eru þetta hinar verstu limlestingar á trjánum og ættu í raun ekki að þekkjast og má með réttu segja að þessi aðferð við að saga tré niður í ákveðnar stærðir sé þeim garðyrkjumönnum og garðyrkjufyrirtækjum til skammar enda aðferðinni beitt á fjölmörg tré sem alls ekki þola þessa meðferð. Trén eru limlest á hörmulegan máta og veslast svo smám saman upp. Sérstaklega ætti aldrei að beita kollun á gömul tré sem fengið hafa að vaxa upp án klippinga/snyrtingar. Hugsanlega ætti að láta slíkt falla undir sömu reglugerðir og snúa að trjáfellingu þar sem niðurstaðan er oft hægur dauðdagi trjánna sem um ræðir. En hvað er til ráða? Það eru nokkrar leiðir sem hægt er að fara varðandi trjávernd í þéttbýli, svo sem skráning, rétt val trjáteg- unda, innleiðing refsinga vegna brota, verndun og aukin fræðsla. Hið fyrsta er að mikilvægt er að ganga frá skráningu á fágætum trjám, trjám sem njóta sérstöðu vegna fegurðar, mikilvægis í umhverfinu og sérstakrar sögu, svo að þessi tré verði friðlýst með sérstökum reglum sem ná lengra en hin almenna regla um aldur og hæð trjáa. Nú falla þrjú tré undir hverfisvernd í Reykjavík en þetta eru hlynur á horni Vonarstrætis og Suðurgötu, silfurreynir í Fógetagarði- Gullregn á Bárugötu 3. Mynd: BÞVíðir í Landfógetagarði. Mynd: BÞ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.