Skógræktarritið - 15.10.2014, Síða 73

Skógræktarritið - 15.10.2014, Síða 73
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2014 71 aðstæðum enda harðgerð og fljótvaxin. Almennt gerir stafafuran ekki miklar kröfur til jarðvegs og þrífst vel í hlýjum, meðalþurrum og næringarríkum jarðvegi, svo sem mólendi, en einnig er hún dugleg að sá sér sjálf við erfiðar aðstæður, jafnvel í næringar- snauða mela þar sem fátt annað festir rætur. Stafafuran á rætur að rekja til vesturhluta Norður- Ameríku og hana má finna allt frá Colorado til Kali- forníu og norður til Alaska. Stafafuran getur náð allt að 30 metra hæð í heimkynnum sínum og orðið 600 ára gömul. Líkt og enskt heiti hennar, lodgepole pine, gefur til kynna, notuðu frumbyggjar Norður-Ameríku hana gjarnan til að reisa tjöld en í hefðbundnu indíána- tjaldi eru 15-18 furubolir. Indíánar nýttu vissa hluta furunnar einnig í lækningaskyni, meðal annars til að sótthreinsa sár. Skoski plöntusafnarinn David Douglas var fyrsti Evrópumaðurinn til að uppgötva tegundina en það gerði hann við Columbia-ána í Washington-fylki árið 1825. Fyrstu fræin bárust til Evrópu upp úr miðri 19. öld.i Um hlut stafafurunnar í íslenskri skógrækt þarf ekki að fjölyrða enda er hún einfaldlega eitt mikilvægasta og algengasta skógartréð. Árið 2012 voru gróður- settar ríflega 560.000 stafafurur í skógum landsins sem nemur um 17% af heildagróðursetningu til skógræktar. Er það álíka fjöldi og gróðursettur var af sitkagreni það ár.ii Gera má því skóna að megnið af plöntunum sé af Skagway-kvæmi. Vinsældir stafafuru sem jólatrés hafa aukist jafnt og þétt á undanförnum árum og nú er hún mest selda innlenda tréð og gjarnan nefnd „íslenska jólatréð“ af skógræktarmönnum. Þrátt fyrir að vera óhefðbundið jólatré þarf ekki að undrast vinsældir hennar enda er hún falleg, ilmandi og afar barrheldin, sérstaklega í samanburði við rauðgrenið, sem lengi vel var vin- sælast af innlendum jólatrjám. Einar Sæmundsen kemur til Skagway Stafafura kom fyrst til Íslands árið 1936 en þá fékk Guttormur Pálsson, skógarvörður á Hallormsstað, fræ frá Smithers í Bresku-Kólumbíu í Kanada. Nokkur hundruð plöntur voru gróðursettar við Atlavíkur- stekk árið 1940. Samskipti skógræktarmanna á Íslandi og í Alaska hófust af fullum krafti undir lok seinna stríðs þegar Hákon Bjarnason og Vigfús Jakobsson voru þar á ferð og söfnuðu fræi.iii Árið 1950 varði Einar G. E. Sæmundsen skógarvörður tveimur mánuðum við fræsöfnun í Alaska og kom þá meðal annars við í Orkan geislaði af henni Ólafur V. Sigurðsson, fyrrverandi skipverji hjá Land- helgisgæslunni, kynntist Barböru D. Kalen fyrir rúmum tveimur áratugum þegar hann var á skútuferðalagi fyrir ströndum Alaska ásamt konu sinni og bandarískum kunningja þeirra. Þegar þau lögðust að höfn í Skagway sagði hafnar- stjórinn að þau yrðu að hitta konu sem byggi í bænum og héti Barbara. „Því að ef hún kemst að því að hingað hafi komið Íslendingar og að ég hafi ekki látið hana vita, þá drepur hún mig!“ bætti hafnarstjórinn við. Skagway er gamall gullgrafarabær sem má muna sinn fífil fegurri. Fyrir aldamótin 1900 bjuggu þar hátt í 10.000 manns en nú eru íbúarnir innan við 1.000. Barbara rak minjagripa- verslun við aðalgötu bæjarins sem er í göngufæri frá höfninni. „Í sex mánuði á ári seldi hún túristum filmur. Svo var hún mikið í listum, bæði leiklist og myndlist. Á efri hæðinni var hún með listagallerí og hún seldi málverk eftir alla listmálara í Alaska,“ segir Ólafur. Vel fór á með ferðalöngunum og Barböru og sagði hún þeim meðal annars frá kynnum sínum af Hákoni Bjarnasyni skógræktar- stjóra en þau skrifuðust lengi á. Fáeinum árum fyrr, þegar Barbara frétti að Hákon væri orðinn heilsutæpur, fór hún til Íslands til fundar við hann. „Þau áttu svo merkilegt samstarf. Þegar tveir svona pólar eins og Hákon og hún lenda saman verður útkoman mögnuð, sérstaklega þegar málefnið á meira skylt við trúarbrögð en vinnu.“ Úr varð að Ólafur bauð Barböru að koma aftur til Íslands og dvelja hjá sér sem hún og þáði. Í ferðinni notaði hún tækifærið og heilsaði upp á íslenska skógræktarmenn, meðal annars hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur í Fossvogi og á starfsstöðvum Skógræktar ríkisins í Skorradal og Haukadal. Kynni Ólafs af Barböru urðu einnig til þess að hann fékk sjálfur áhuga á trjárækt. Ólafur og Barbara héldu sambandi bréfleiðis þangað til að hún féll frá fyrir þremur árum. „Orkan geislaði af henni. Maður sá að hún var slitin af vinnu líka og hafði greinilega aldrei hlíft sér. Hún virkaði á mann sem alger víkingur.“ i Auður I. Ottesen (ritstjóri), 2006 , bls. 119-122. ii Einar Gunnarsson, 2013, bls. 84-89. iii Sigurður Blöndal og Skúli Björn Sigurðsson, 2000, bls. 229-230.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.