Skógræktarritið - 15.10.2014, Side 75

Skógræktarritið - 15.10.2014, Side 75
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2014 73 Fræsöfnun enginn hægðarleikur Fulltrúi Manning Seed Company hét áhugasömum fræsöfnurum í Skagway 50 sentum á pundið af fræi sem margir töldu verða auðfengið fé. Sú var ekki raunin vegna þess að, líkt og Einar G. E. Sæmundsen uppgötvaði 13 árum fyrr, það er ekki alltaf hlaupið að því að safna fræjum stafafurunnar. Ekki er heldur auðvelt fyrir leikmanninn að átta sig á því hvort furuköngull sem verður á vegi hans sé með nothæft fræ. Fjöldi kappsfullra fræsafnara snéru því hróðugir úr skóginum til þess eins að uppgötva að sekkir þeirra voru fullir af ónýtum könglum. Ein af þeim sem brugðust við kalli íslenskra skógræktarmanna haustið 1963 var kona að nafni Barbara D. Kalen en hún hafði hrifist af áhuga Íslend- inga á skógrækt í fyrri fræsöfnunarferðum þeirra til Skagway. Meðal annars bauð fjölskylda hennar Ágústi Árnasyni í mat til sín þegar hann dvaldi í bænum haustið 1958 og sagði hann henni frá skógræktaráformum Íslendinga. Barbara og íkornarnir Kalen fór aðrar leiðir en hinir fræsafnararnir. Í stað þess að tína tóma köngla upp af jörðinni tók hún íkorna skógarins í þjónustu sína og lét þá um mesta stritið. iv Einar G. E. Sæmundsen, 1952, bls. 88-89. v Sigurður Blöndal og Skúli Björn Sigurðsson, 2000, bls. 229-230. vi Barbara D. Kalen, 1964, óbirt grein. vii Barbara D. Kalen, 1964, óbirt grein. Stafafurukönglar falla ekki þegar þeir hafa náð þroska og þar sem fururnar eru yfirleitt ekki felldar í Skagway, er ekki hægt að fá köngla af felldum trjám. Könglarnir þroskast hvort eð er ekki allir strax. Þegar þeir eru orðnir þroskaðir tína rauðíkornarnir þá og safna saman miklum fjölda köngla, oft miklu fleiri en þeir hafa not fyrir. Galdurinn á bak við könglasöfnun felst þess vegna í því að finna felustað íkornanna og stela þeim frá þeim!vi Með þessum orðum lýsti Barbara D. Kalen köngla- söfnun sinni í grein sem hún skrifaði fyrir tímaritið Natural History Magazine árið 1964 en birtist aldrei. Að sögn hennar var það nokkuð krefjandi verkefni að þefa uppi felustaðina þar sem þeir voru jafnólíkir og þau voru margir. Sumir voru í klettaskriðum og var oftar en ekki ógjörningur að ná til þeirra, aðrir voru grafnir á víðavangi eða við tré. Fólk spurði Barböru gjarnan að því hvort hún skammaðist sín ekki fyrir að ræna vesalings litlu íkorn- ana en hún hafði litlar áhyggjur af því. Skógarverðir fullvissuðu hana enn fremur um að ekki væru miklar líkur á því að nokkur íkorni myndi farast úr hungri vegna stuldarins. Þeir yrðu sér úti um mat eftir öðrum leiðum og söfnuðu yfirleitt fleiri könglum en þeir hefðu not fyrir. Ekki álitin verðmæt tré Í Skagway furðuðu margir sig á því að Íslendingar vildu komast yfir fræ af stafafuru. „Stafafururnar eru yfirleitt ekki álitnar mjög verðmætt tré í Alaska. Víðast hvar í Suðaustur-Alaska, er þetta runnakennd tegund sem vex aðeins í mýrum og klettóttum ströndum og trén eru nær öll lágvaxin og vanþroska,“ skrifar hún í áðurnefndri grein. Í grennd við bæina Haines og Skagway, plumi þær sig þó betur í samkeppni við greni og þallir enda loftslagið þurrara. Viðurinn er sterkur og þungur. Hann hefur þó ekki verið nýttur til timburframleiðslu. Það er ekki það margar þyrpingar af stórvaxinni furu að finna en nóg af stórum grenitrjám sem að auki er auðveldara að komast að. Heimamenn höggva fururnar næst vegunum í eldivið, lestarvagnastaura og girðingastaura en það er varla hægt að tala um að það séu nokkur verðmæti fólgin í þeim.vii Árið 1991 kom Barbara D. Kalen til Íslands og dvaldi hjá Ólafi V. Sigurðs- syni og Sigurást Gísladóttur, eiginkonu hans. Í þeirri ferð heimsótti hún íslenska skógræktarmenn og sá með eigin augum þann árangur sem fræsöfnun hennar hafði skilað. Mynd: Úr safni Ólafs V. Sigurðssonar

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.