Skógræktarritið - 15.10.2014, Síða 81

Skógræktarritið - 15.10.2014, Síða 81
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2014 79 tegundirnar þurfi vetrarskjól í köldu húsi í fleiri vetur, t.d. fjórða og fimmta veturinn. Það hefur verið gert með lífvið, risafuru, kristþyrni og þöll. Við vetrarvistun plantna þarf að hafa í huga að rætur hafa heldur minna frostþol en yfirvöxturinn. Því er öruggara að geyma plöntur í jörðu en í pottum á plani. Rótarkal verður fyrst og fremst við kuldaflötinn. Stærri pottar veita því meira skjól gegn kali en minni ílát eins og fjölgatabakkar. Til að veita stálpuðum trjám betri vistun veturinn fyrir útplöntun hefur jarðsetning tíðkast í Deild og minni pottaplöntur sem standa á plani hafa verið huldar með vikri eða sandi upp fyrir brún pottanna. Í jarðsetningu felst að taka plöntuna úr pottinum, grafa hana vel niður hallandi undir litlu horni með stofninn í átt undan megin vindstefnu. Plöntuvalið stækkað Nú þegar rúmlega tuttugu ár eru liðin frá því að trjá- ræktin hófst hafa aðstæður breyst frá því að vera óhagstæðar í að vera nokkuð góðar eftir að náðist að byggja upp nauðsynlegt skjól. Fyrstu tíu árin voru eingöngu gróðursettar viðurkenndar frumherja- tegundir eins og birki, sitkagreni, stafafura, alaskaösp, rússalerki og fáeinar aðrar. Í þessu fólst að það tók tíu ár að byggja upp nægilegt skjól til að unnt væri að bjóða öðrum viðkvæmari tegundum bólfestu í túninu í Deild. Það var í sjálfu sér áfangi að hefja gróðursetningu á aski og hlyni sem var fyrsta litla skrefið út fyrir þægindarammann sem áföllin eftir fyrsta árið höfðu markað. Þetta hljómar skrítið nú en svo var ekki þá. Það þurfti góðan félaga til að opna augun fyrir þeim möguleikum sem skjól fyrstu áranna hafði skapað. Hann renndi í hlað með glænýja kímplöntu af hrossakastaníu vafða inn í dagblaðsrifrildi. Fræið hafði verið hirt upp af götu í Helsinki haustið áður. Þessi vesæli sproti var þeginn af hálfum hug og efa um að úr honum gæti ræst. Hrossakastanían var gróðursett í sumarbyrjun í skjóli af vörubretti og flestum til undrunar lifði hún af næsta vetur og lifir enn sem glæsilegt rúmlega tveggja metra hátt tré. Ísinn var brotinn og nýr kafli í ræktunarstarfinu í Deild hafinn. Endurskipulagning og ný viðmið Árið 1999 og aftur 2003 var trjáræktarsvæðið á tún- inu stækkað og skipulagt út frá reynslu og nýjum áherslum. Tegundafjöldinn hafði verið takmarkaður fram að því sem endurspeglaði varkárni og upphaf- lega vantrú á ræktunarskilyrðum. Eitt lærdómsár og fimm farsæl ræktunarár voru þó að baki og kom- inn tími til að færa út kvíarnar. Fyrri stækkunin var við íbúðarhúsið og síðari stækkunin teygði sig lengra út frá því. Innan þessa ramma voru skilgreind fjögur ræktunarsvæði sem skyldu verða opnari og trjágróð- urinn aðgengilegri en fyrr. Hvergi yrðu einsleitnir þéttir skógarlundir. Áhersla skyldi vera á blandaðan skógargarð með blómstrandi trjám og runnum innan um aðrar tegundir. Reynslan af nýtingu sitkagrenis til skjólmyndunar var lögð til grundvallar við afmörkun skjólsvæða og bogadregnum stígum var fjölgað mikið. Eftir að búið var að teikna megindrætti á blað voru væntanlegir stígar slegnir til að sjá hvernig ræktunin myndi falla að landinu og til að tryggja að ræktunin sæist sem best frá stígunum. Reynt var að haga skipulagi og plöntun þannig að hver einasta trjátegund væri sýnileg frá einhverju sjónarhorni af 6. mynd. Undirbúningur fyrir vetrarvistun - við gróðurstíuna. 7. mynd. Stígakerfi veitir aðgang að ræktuninni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.