Skógræktarritið - 15.10.2014, Blaðsíða 90
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201488
7. ályktun
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn á Akra-
nesi 15.-17. ágúst 2014, fagnar nýjum samningi við
Umhverfis- og auðlindaráðuneyti um fjárstuðning
til Landgræðsluskógaverkefnisins. Jafnframt hvetur
fundurinn þá fjölmörgu sem að verkefninu standa og
þá ekki síst skógræktar- og sveitarfélög að efla það
enn frekar og nema ný lönd sem verða útivistarsvæði
framtíðarinnar. Koma þau til með að veita byggðinni
skjól og aukin lífsgæði eins og fjölmörg dæmi af
árangri verkefnisins sanna.
8. ályktun
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn á Akra-
nesi 15.-17. ágúst 2014, harmar hvernig komið er
fyrir rannsóknum og þróun á nýtingu belgjurta og
annarra plantna sem binda nitur með hjálp örvera.
Slíkar plöntur eru tilvaldar sem hjálparplöntur til
landgræðslu, landgræðsluskógræktar og annarrar
skógræktar. Fundurinn skorar á þær opinberu stofn-
anir er málið varðar að hefja og halda áfram rannsóknum
á þessum plöntum nú þegar og sinna þeim plöntu-
söfnum sem til eru í landinu.
Kosningar
Gísli Eiríksson, Sigrún Stefánsdóttir og Magnús Gunnars-
son áttu að ganga úr stjórn Skógræktarfélags
Íslands. Magnús gaf áfram kost á sér sem formaður
og var endurkjörinn einróma. Sigrún gaf einnig
áfram kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu, en
Gísli gekk úr stjórn. Stungið var upp á Sigríði Júlíu
Brynleifsdóttur, sem sat í varastjórn, í stað Gísla.
Engin önnur tillaga kom og voru því Sigrún og
Sigríður Júlía kosnar einróma í stjórn félagsins. Aðrir
varamenn, Sigríður Heiðmundsdóttir og Kristinn H.
Þorsteinsson gáfu áfram kost á sér, en í stað Sigríðar
Júlíu var stungið upp á Laufeyju B. Hannesdóttur
og Gísla Tryggvasyni. Gengið var til kosninga um
varastjórn og voru Sigríður, Kristinn og Laufey kosin.
Félagslegir skoðunarmenn voru endurkjörnir ein-
róma þeir Halldór Halldórsson og Árni Þórólfsson og
Kjartan Ólafsson og Sigríður Elefsen til vara.
Lok fundar
Sigrún Stefánsdóttir, formaður Skógræktarfélags
Eyfirðinga, bauð fundargesti velkomna til aðalfundar
á Akureyri 14. -16. ágúst 2015.
Þá steig Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktar-
félags Íslands, í pontu og þakkaði öllum sem komu
að fundinum með einum eða öðrum hætti og sleit
honum síðan formlega.
Höfundur: RAGNHILDUR FREYSTEINSDÓTTIR
Nýkosin stjórn og varastjórn Skógræktarfélags Íslands. F.v. Páll Ingþór Kristinsson, Laufey B. Hannesdóttir, Sigríður Heiðmundsdóttir, Guðbrandur
Brynjúlfsson, Sigrún Stefánsdóttir, Magnús Gunnarsson, Þuríður Yngvadóttir, Kristinn H. Þorsteinsson og Aðalsteinn Sigurgeirsson. Á myndina vantar
Sigríði Júlíu Brynleifsdóttur, sem var fjarverandi. Mynd: RF