Tímarit lífeindafræðinga - jul. 2006, Side 3

Tímarit lífeindafræðinga - jul. 2006, Side 3
TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl.  Efnisyfirlit / greinar Tímarit lífeindafræðinga 1. tbl. 1. árgangur Júlí 2006 Útgefandi: Félag lífeindafræðinga Aðsetur og afgreiðsla: Borgartúni 6 105 Reykjavík Sími: 588 9770 Bréfsími: 588 9239 Netfang: fl@bhm.is Heimasíða: www.sigl.is Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Steinunn Oddsdóttir Sími: 543 5538 Bréfsími: 543 5539 Netfang: steinodd@landspitali.is Ritnefnd: Hulda Snorradóttir Auður Ragnarsdóttir Elín Guðmundsdóttir Gunnlaug Hjaltadóttir Hlín Aðalsteinsdóttir Kristín Guðmundsdóttir Umbrot og prentun: Prentmet ehf. Lynghálsi 1 110 Reykjavík Sími: 5 600 600 Netfang: prentmet@prentmet.is Upplag: 650 eintök Forsíðumynd: Nýtt merki Félags lífeindafræðinga, hannað af Gísla B. Björnssyni. 11 Mælingar á blóði í saur - samanburður á dífenýlamínprófi, Hemo-Fec, Hemoccult SENSA og Hemosure Steinunn Oddsdóttir er deildarlífeindafræðingur á Blóðmeinafræðideild LSH við Hringbraut, þessa grein hefur hún unnið upp úr B.Sc. verkefni sínu. Tilgangur verkefnisins var að finna próf til mælingar á blóði í saur í stað dífenýlamínprófsins sem er eitrað efni. Rannsökuð voru 136 saursýni og voru notuð til þess fjögur próf : þrjú peroxíðasapróf og eitt mótefnapróf. Niðurstaðan var sú að eitt peroxíðasaprófið HemoFec væri hentugast og samræmdist best dífenýlamínprófinu. 19 Mat á nýrnastarfsemi - serum kreatínín og áætlaður gaukulsíunarhraði Alda M. Hauksdóttir er lífeindafræðingur og starfar á Klínískri lífefnafræðistofu Holtasmára. Þetta er útdráttur úr B.Sc.verkefni hennar en Elín Ólafsdóttir yfirlæknir er meðhöfundur. Áætlaður gaukulsíunarhraði þykir vænlegur til að meta skerta nýrnastarfsemi en til þess þarf betri stöðlun á kreatínínmælingum í sermi. Gerður er samanburður á þremur mæliaðferðum, einni kínetískri og tveimur ensímatískum. Við útreikning gaukulsíunarhraðans eru notaðar 3 reiknijöfnur. Samkvæmt reiknijöfnunum þremur flokkast fleiri konur en karlar með skerta nýrnastarfsemi en ef eingöngu er litið á viðmiðunarmörk fyrir kreatínín eru karlarnir fleiri. 29 2,8-díhýdroxýadenín kristallar – nýleg tilfelli Hér segir Steinunn Oddsdóttir, deildarlífeindafræðingur á Blóðmeinafræðideild LSH við Hringbraut, frá fjórum síðustu 2,8-DHA kristallatilfellunum sem bárust til deildarinnar. Fjöldi íslenskra sjúklinga með APRT-skort eða 2,8-DHA-migu er nú orðinn 28 og meirihluti þeirra er rauðhærður. Við eigum heimsmet í fjölda sjúklinga ef miðað er við höfðatölu. Stökkbreytingin D65V barst hingað líklega frá Bretlandseyjum og við erum fámenn þjóð og skyld og skýrir það fjölda sjúklinga. 32 Þurfa Íslendingar fæðubótarefni ? Auður Ragnarsdóttir er lífeindafræðingur og starfar á Klínískri lífefnafræðideild LSH við Hringbraut en hefur verið við nám í næringarfræðum. Í þessari grein fræðir hún okkur um gildi næringarefna og hver þeirra okkur Íslendinga vantar helst. 37 Menntun í lífeindafræði Martha Á. Hjálmarsdóttir er lífeindafræðingur M.S. og er verkefnastjóri í lífeindafræði við Háskólann í Reykjavík og lektor í lífeindafræði við Háskóla Íslands. Í þessari grein rekur höfundur sögu menntunar í lífeindafræði (áður meinatækni) frá upphafi formlegrar kennslu á Íslandi. Aðeins 40 ár eru liðin frá því að kennsla í meinatækni hófst í Tækniskóla Íslands en þá tók námið tvö heil ár. Nú er lífeindafræði kennd í Háskóla Íslands með smá viðkomu í Háskóla Reykjavíkur. Boðið er upp á eins árs meistaranám eftir eins árs starfsréttindanám í beinu framhaldi af náminu. 40 Áhrif súrefnisþrýstings á þætti sem hafa áhrif á þróun lifraræxla tengdum Hepatitis B vírus Um nám og meistararitgerð, höfundur er Birna Berndsen sem starfar hjá NimbleGen Systems á Íslandi. 41 Algengi og orsakir vægra blæðingaeinkenna og asatíða frá upphafi Ágrip af meistararitgerð, höfundur er Brynja R. Guðmundsdóttir, þróunarstjóri á Blóðmeinafræðideild LSH. 42 Vöðvaþrýstingur, augnþrýstingur og bólga í kjölfar hjartaskurðaðgerða með hjáveitu Ágrip af meistararitgerð, höfundur er Líney Símonardóttir, yfirperfusionisti á skurðdeild LSH. 43 Tjáning prostaglandín viðtakanna EP2 og EP3 í slagæðum með æðakölkun Ágrip af meistararitgerð, höfundur er Steinþóra Þórisdóttir, rannsóknarfulltrúi hjá Encode – Íslenskum lyfjarannsóknum ehf. 44 Rannsókn á umhverfu á litningi 8 með flúrljómun: Tengsl við felmtursröskun á Íslandi Ágrip af meistararitgerð, höfundur er Sóley Björnsdóttir sem starfar hjá Íslenskri erfðagreiningu.

x

Tímarit lífeindafræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lífeindafræðinga
https://timarit.is/publication/2067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.