Tímarit lífeindafræðinga - júl. 2006, Blaðsíða 49

Tímarit lífeindafræðinga - júl. 2006, Blaðsíða 49
TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. 49 Aðalfundi var ekki slitið þann 16. apríl 2005 vegna þess að við blasti nafn- og lagabreyting á Alþingi til handa félagsmönnum sem tók gildi tíu dögum síðar. Framhaldsaðalfund urinn var því haldinn til að breyta lögum félagsins í samræmi við nýtt nafn. Kristín Hafsteinsdóttir formaður setti fundinn og var fundarstjóri áfram Eygló Bjarnardóttir og Kolbrún Kára dóttir fundarritari. Fundurinn var hald inn í salnum á 3ju hæð í Lágmúla 7. Fyrsta mál á dagskrá framhaldsað alfundarins var lagabreytingar. Nafni og lögum félagsins var breytt í samræmi við breytingar Alþingis á Lögum um lífeindafræðinga sem tóku gildi 26. apríl 2005. Félagið fékk nafnið Félag lífeindafræðinga sem skammstafað skyldi FL. Ný lög félags ins voru samþykkt og sett á heima síðu þess. Var nafnabreytingin sam þykkt og henni fagnað af öllum við stöddum. Kristín greindi frá forsögu nafnsins lífeindafræðingur og kallaði síðan upp Jónínu Jóhannsdóttur sem átti hugmyndina að nafninu og veitti henni viðurkenningu frá félaginu með þökk fyrir nafnið. Jónína greindi frá því að hugmyndin að nafninu hefði komið upp þegar fyrirtækið Lífeind varð til. Í framhaldi af nafnabreytingu var gerð breyting á reglugerðum félags ins og skal þá fyrst nefna breytingu á starfsreglum vísinda- og fræðslusjóðs. Samþykktar voru reglur um vísinda sjóð FL annars vegar en í þeim er gert ráð fyrir því að hverjum félagsmanni sé greitt óskert framlag frá vinnuveit enda vegna launa hans í lok hvers bókhaldsárs. Reglur um vísindasjóð inn voru settar á heimasíðu félagsins. Hins vegar voru lagðar fram reglur um fræðslusjóð sem veita skal úr styrkjum til framhaldsmenntunar og sérstakra fræðiverkefna félagsmanna samkvæmt umsókn sem þeir þurfa að leggja inn til sjóðsins. Umsóknartími og reglur sjóðsins voru sett á heima síðu FL. Siðareglur nýja félagsins voru kynntar og samþykktar og settar á heimasíðu. Steinunn Matthíasdóttir bað um orðið og afhenti Kristínu for manni blóm með kærri þökk frá líf eindafræðingum fyrir framlag hennar í nafna- og lagamálinu. Samþykkt var áskorun til land læknis, hún hljóðaði svo: „Aðal­ fundur Félags lífeindafræðinga, haldinn 11. júní 2005, skorar á landlækni að stofna stöðu lífeinda­ fræðings við embættið til eftirlits, leiðbeiningar, ráðgjafar og gæða­ stjórnunar með þjónusturann­ sóknum á lækningasviði“. Stjórn félagsins var falið að koma þessari áskorun áleiðis. Fundarstjóri sleit fundinum og um leið var skálað fyrir nýju nafni og bjartri framtíð. Framhalds-aðalfundur Meinatæknafélags Íslands 11. júní 2005 Kristín formaður afhendir Jónínu viðurkenningu fyrir nafnið lífeinda­ fræðingur. Viðurkenningin var forkunnarfagur penni búinn til úr íslensku birki með nafni hennar og starfsheiti. Félagsmál / framhalds-aðalfundur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lífeindafræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lífeindafræðinga
https://timarit.is/publication/2067

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.