Tímarit lífeindafræðinga - Jul 2006, Side 57
unarröð“ og við stefnum á framtíð
þar sem hver félagi á sína starfslýsingu
og fær að sjá hana og fjalla um hana
með sínum næsta yfirmanni sem ber
ábyrgð á gerð starfslýsingarinnar.
Næsti yfirmaður Á, ég segi Á að vera
lífeindafræðingur!!!! Alla leið upp í
sviðsstjóra.
Merki FL
Listamaðurinn Gísli B. Björnsson sem
hannaði NML merkið eftir tillögu
Örnu Antonsdóttur árið 1993 og stað
færði það fyrir NML2005 vann að
gerð merkis fyrir FL ásamt nefnd sem
í voru: Arndís Theódórs, Helga Sigrún
Sigurjónsdóttir og Kristín Hafsteins
dóttir formaður. Kom í ljós við þá
vinnu að allir vildu merkið hanna! Og
engir tveir höfðu sömu skoðun. Nema
nefndin! Nefndin var fullkomlega
sammála hverju skrefi í hönnunni og
fékk það merki sem hún var ánægð
með og það hefur komið í ljós að
þegar merki FL er sett upp á hvítan
slopp er það alveg frábært.
Dagbókin
Í kjölfar merkjahönnunarinnar ákvað
stjórnin að fara aftur út í það verk að
gefa út dagbækur til félagsmanna og
senda þær heim fyrir jólin. Þær
Margrét Eggertsdóttir, framkvæmda
stjóri SIGL, og Helga Sigrún Sigurjóns
dóttir, gjaldkeri FL, hönnuðu dagbók
ina og Helga Sigrún fékk auglýsingar í
hana. Bókin kostaði okkur því ekkert
stórfé en í henni var komið á framfæri
hinu nýja merki Félags lífeinda
fræðinga og upplýsingum um SIGL og
nýtt húsnæði skrifstofunnar.
Lokaorð
Árið 2005 var gott ár fyrir lífeinda
fræðinga og sú stefna sem þar var
tekin til launajöfnunar lofaði góðu.
Við þurfum sjálf að vinna betur að
okkar launamálum, tækifærið kemur
með stofnanasamningunum. Góðir
hlutir gerast hægt en sígandi lukka er
líka best.
Kristín Hafsteinsdóttir
formaður FL
TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. 57
Helga Sigrún Sigurjónsdóttir afhendir hér nýjum meðlimum FL merkin
sín, frá vinstri Helga Sigrún, Kristín Bjarnadóttir og Ragnheiður Lauga
Jónsdóttir.
Hér má sjá frá vinstri Elísabetu Kristjánsdóttur, Bergljótu Halldórsdóttur
og Sigrúnu Rafnsdóttur með hin nýju merki félagsins en þær hafa nýverið
hætt störfum vegna aldurs. Af þessu tilefni afhenti Bergljót félaginu að
gjöf myndir af lífeindafræðingum í starfi síðastliðin 20 ár. Hún sagði að
án fortíðar væri engin framtíð og að lífeindafræði væri hluti sögunnar.
Kristín þakkaði kærlega fyrir hönd félagsins.
Á síðasta ári hættu einnig störfum vegna aldurs Jóhanna Jónasdóttir og
Jónhildur Halldórsdóttir. Þess má geta að Jóhanna er félagsmaður nr. 1.
Félagsmál / aðalfundur FL 2006