Tímarit lífeindafræðinga - jul. 2006, Side 37

Tímarit lífeindafræðinga - jul. 2006, Side 37
TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. 37 Grein / námið Menntun í lífeindafræði Höfundur er lífeindafræðingur M.S., verkefnastjóri í lífeindafræði við Háskólann í Reykjavík og lektor í lífeindafræði við Háskóla Íslands. martha@ru.is Martha Á. Hjálmarsdóttir Örsaga menntunar í lífeindafræði á Íslandi Lífeindafræði hefur verið kennd á Íslandi síðan 1966. Fyrst í Tækniskóla Íslands (TÍ), síðar Tækniháskóla Íslands (THÍ) og nú í Háskólanum í Reykjavík (HR) eftir sameiningu THÍ og HR. Námið er nú smátt og smátt að flytjast til Háskóla Íslands (HÍ) og þeim til flutningi verður að fullu lokið árið 2008. Frá upphafi hafa inntökuskilyrði verið stúdents próf og vali beitt ef fjöldi umsækjenda var of mikill. Fjöldinn hefur ávallt takmarkast við það sem rannsóknastofur Landspítala háskóla sjúkrahúss geta annað. Þangað sækja nem endur hluta af áföngum í aðferðafræði og þó sá hluti hafi sífellt dregist saman er hann samt ákaflega mikilvægur. Námslengd var fyrst tvö heil ár að með töldu sumarnámi og er metið sem 70 eininga háskólanám. Sérhæfing var í grunnnámi þannig að nemendur völdu tvær sérgreinar lífeindafræðinnar. Í upphafi níunda áratugar ins var gerð umfangsmikil endurskoðun á náminu sem leiddi til þess að námstíminn varð þrjú ár og voru fyrstu lífeindafræðing arnir með B.S. gráðu útskrifaðir 1985. Við endurskoðun á námsálagi og fjölda kennslu stunda nokkrum árum síðar lengdist námstím inn í þrjú og hálft ár og var þá enn sérhæfing í grunnnáminu. Á tíunda áratugnum var enn gerð umfangsmikil endurskoðun sem leiddi til þess að fjölgreinamenntun kom í stað sér hæfingar, námið tók fjögur ár og gaf 120 ein ingar. Eftir það eru útskrifaðir nemendur í líf eindafræði hæfir til að starfa á öllum gerðum rannsóknastofa. Er þetta ferli í samræmi við þróun í menntun lífeindafræðinga í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Geta má þess að Tækniskóli Íslands var fyrsti skólinn á Norðurlöndum til að taka upp B.S. próf sem lokapróf í grunnnámi í lífeindafræði. Íslenskir lífeindafræðingar hafa um árabil verið í farar broddi á alþjóðavettvangi við þróun náms og hugmyndafræði faggreinarinnar. Tækniskóli Íslands verður Tækniháskóli Íslands Árið 2000 var Tækniskóla Íslands breytt í Tækniháskóla Íslands. Við það urðu kröfur um menntun/hæfi kennara skólans skýrari. Krafa var gerð um að lektorar skólans hefðu M.S. próf að lágmarki eða þekkingu sem jafna má við þá gráðu. Almennt má segja að kenn arar námsbrautar í lífeindafræði hafi komið vel út úr hæfimati sem gert var af þessu tilefni og að hún hafi átt mjög hæfu og afar fjöl mennu kennaraliði á að skipa. Hins vegar er því ekki að leyna að hjá jafn ungri grein sem lífeindafræðin er og með svo stutta sögu um möguleika á framhaldnámi skorti helst á hæfi hjá lífeindafræðingum sem kenna aðferðafræði, eða hjá um helmingi hópsins. Sjónarmið skólans var að meðan ekki væri hægt að fá nægilega marga lífeinda fræðinga með M.S. próf til kennslu væri besti kosturinn að nýta áfram krafta þeirra lífeinda fræðinga sem valist höfðu til kennslu í TÍ og voru þeir því ráðnir sem aðjúnktar við THÍ. Reynslan af því var góð og viðkomandi höfðu reyndar þegar skapað sér mjög gott orðspor meðal nemenda og samkennara meðan þeir kenndu við TÍ. Þegar skólinn tók að starfa samkvæmt lögum um háskóla fengu kennarar fyrst mögu leika til að stunda rannsóknir sem hluta af starfi sínu eins og í öðrum háskólum. Heil brigðistæknisviðið kom vel út þegar að styrk veitingum skólans til þessa málaflokks kom og sást vel að rannsóknavirkni í þessum hópi var drjúg þó hún hafi ekki áður farið fram í skólanum eða í tengslum við hann. Í mínum huga var það mikill kostur að í TÍ var það vel skilgreint starf að hafa með höndum faglega stjórn námsbrautarinnar og umsýslu með nemendum og kennurum. Einnig að sú stjórn hafði kjölfestu í námsbraut arnefnd sem í sat fagfólk á sviðinu. Þetta fyrir komulag hélst síðan áfram við THÍ því þó námsbrautarnefnd væri lögð niður við þær skipulagsbreytingar kom í hennar stað fagráð sem skipað var sambærilegum aðilum. Tækniháskóli Íslands sameinast Háskólanum í Reykjavík Árið 2002 var Tækniháskóli Íslands samein aður Háskólanum í Reykjavík undir því nafni. Eftir ókyrrð breytinga fyrri ára og ég tala nú ekki um reynslu þeirra sem einnig tilheyrðu

x

Tímarit lífeindafræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lífeindafræðinga
https://timarit.is/publication/2067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.