Tímarit lífeindafræðinga - jul. 2006, Side 19
TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. 19
Grein / gaukulsíunarhraði
Mat á nýrnastarfsemi
Serum kreatínín og áætlaður gaukulsíunarhraði
Ágrip
Skert nýrnastarfsemi er vaxandi heilbrigðis
vandamál í heiminum sem endurspeglast í
skertum lífsgæðum fólks og er mikil þörf á að
bæta greiningu á nýrnaskemmdum þegar á
byrjunarstigi. Mælt hefur verið með að reikna
áætlaðan gaukulsíunarhraða til að meta skerta
nýrnastarfsemi og nota til þess kreatínínmæl
ingar í sermi og fleiri þætti. Kallað hefur verið
eftir betri stöðlun á kreatínínmælingum til
að gera þetta að raunhæfum kosti. Í þessu
verkefni eru bornar saman 3 aðferðir við mæl
ingar á S-kreatíníni: Jaffé kínetísk frá Roche
og tvær ensímatískar; önnur frá Roche hin
frá Ortho.
Niðurstöður sýna að tveimur ensímatískum
aðferðum við mælingu á S-kreatíníni ber
betur saman en þegar Jaffé kínetísk aðferð
er notuð. Mælióvissa er þó sú sama í öllum
aðferðunum.
Ennfremur eru skoðaðar þrjár aðferðir
við að reikna áætlaðan gaukulsíunarhraða.
Ein reikniaðferð er borin saman við mældan
gaukulsíunarhraða frá Ísótópastofu Land
spítala háskólasjúkrahúss (LSH) sem sýnir
allmikla dreifingu á mæliniðurstöðum þótt
áætlaður gaukulsíunarhraði gefi heldur betri
vísbendingu um starfsgetu nýrna en S-kreat
ínín. Nýrnastarfsemi einstaklinga í Öldrunar
rannsókn Hjartaverndar er síðan metin út
frá áætluðum gaukulsíunarhraða með aðstoð
þriggja reiknijafna og niðurstaðan borin
saman við gildin á S-kreatíníni. Þegar horft
er á viðmiðunarmörk sem eru í gildi fyrir
S-kreatínín þá flokkast fleiri karlar en konur
með skerta nýrnastarfsemi. Samkvæmt öllum
þremur reiknijöfnunum flokkast fleiri konur
en karlar með skerta nýrnastarfsemi og þarf
að kanna nánar í hverju þetta misræmi felst.
Reiknijafna nr. 2 flokkar mun fleiri með skerta
nýrnastarfsemi, gaukulsíunarhraða ≤ 60 ml/
mín/1,73m2, en hinar tvær eða um 33% karla
og 45% kvenna miðað við 22-25% karla og
25–26% kvenna með jöfnum 1 og 3.
Áður en unnt er að ráðleggja notkun til
tekinnar reiknijöfnu til að áætla gaukulsíunar
hraða í íslensku þýði þarf augljóslega að gera
ítarlegri samanburð á mældum og reiknuðum
gaukulsíunarhraða. Taka þarf tillit til breyti
leika í mæliniðurstöðum á S-kreatíníni en ekki
er síður mikilvægt að meta hvaða reiknijafna
hentar best til að áætla gaukulsíunarhraða og
þá er ólíklegt að ein og sama jafnan dugi fyrir
alla aldurshópa og alla sjúklingahópa.
Inngangur
Skert nýrnastarfsemi endurspeglast í skertum
lífsgæðum þeirra sem fyrir verða og miklum
kostnaði bæði fyrir einstaklingana og heil
brigðiskerfið [1], [2] og er vaxandi heilbrigðis
vandamál. Ástæðan er ekki að fullu kunn en
skýrist að hluta til með útbreiðslu eiturefna í
umhverfinu, aukinni notkun nefróneiturefna
(nephrotoxic agents) til dæmis ýmissa kvala
stillandi lyfja, fjölgun einstaklinga með sykur
sýki týpu 2 [2] og hækkandi aldri.
Mikilvægt er að geta greint skerðingu á
starfsemi nýrna á byrjunarstigi í ljósi þess
að möguleikar á læknisfræðilegu inngripi til
að vernda nýrun hafa aukist. Ennfremur er
æskilegt að fá nákvæmt mat á starfsgetu nýrna
við skömmtun lyfja, við gjöf á skuggaefni
í myndgreiningu og við beitingu annarra
meðferða í nútíma læknisfræði sem geta
skaðað nýrun.
Árið 2002 birti „National Kidney Foun
dation“ í Bandaríkjunum mjög ítarlegar leið
beiningar um rannsóknir til mats á nýrna
starfsemi ásamt læknisfræðilegum leiðbein
ingum um greiningu, flokkun og meðferð
nýrnasjúkdóma á mismunandi stigum [3, 4].
Þar er lögð áhersla á að rannsóknastofur
reikni áætlaðan gaukulsíunarhraða (áGSH) og
láti fylgja á svarblöðum ásamt niðurstöðum úr
mælingum á serum kreatíníni (S-kreatíníni).
Algengast er að nota mælingar á S-kreatíníni
við að áætla gaukulsíunarhraða og hafa mæl
ingar á kreatíníni reyndar verið notaðar í
meira en 100 ár til að meta starfsemi nýrna.
Sú aðferð sem flestir nota við mælingu á
kreatíníni er kennd við Jaffé en henni var fyrst
lýst 1886 [5]. Hún byggist á því að kreatínín
hvarfast við píkrinsýru í alkalískri lausn
og myndar gult til rauðgult efnasamband.
Aðferðin er ósértæk þar sem ýmis önnur efni
Úr BS verkefni
sem lagt var fram til
varnar við Háskólann í
Reykjavík
í janúar 2006.
Leiðbeinandi og
meðhöfundur:
Elín Ólafsdóttir,
yfirlæknir
á Klínískri
lífefnafræðistofu
Holtasmára.
Höfundur er
lífeindafræðingur
og starfar á
Klínískri lífefnafræðistofu
Holtasmára.
alda@hjarta.is
Lykilorð:
Gaukulsíunarhraði, GSH,
serum kreatínín,
samanburður aðferða.
Alda M.
Hauksdóttir