Tímarit lífeindafræðinga - jul. 2006, Side 10
10 TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl.
Formannspistill
stærri vanda: Skipuritin fyrir Rann
sóknarstofnun LSH þurfa endur
skoðunar við til samræmingar við
önnur skipurit á LSH og starfslýsingar
sömuleiðis.
Frá árinu 2003 hefur það verið
skýr starfsmannastefna LSH að tekin
skuli upp starfsmannasamtöl þar sem
starfsmaður fer yfir sína starfslýsingu
(sem leiðir til staðsetningar í starfa
flokkun) með sínum næsta yfirmanni.
Fara þessir tveir einstaklingar þá vænt
anlega yfir það hverjar skyldur starfs
mannsins eru og hvort þær séu nægi
lega skilgreindar í starfslýsingunni.
Starfið breytist ekki en starfsmaður
inn getur hafa bætt við sig og starf
hans þá ef til breyst á afgerandi hátt
þannig að starfsmaðurinn ætti þar af
leiðandi að fara í annan starfaflokk.
Starfaflokkunin á að mynda eðlilegt
flæði starfa frá algjörum byrjanda til
sviðsstjóra, samkvæmt skipuriti. Þetta
hefur ekki gerst hjá lífeindafræðingum
á LSH.
Rannsóknarstofnunin hefur haft
lækna eingöngu sem yfirmenn og
þeir hafa ekki haft starfsmannasam
töl, svo vitað sé. Enda er eðlilegast að
yfirlífeindafræðingar (deildarstjórar)
sjái um starfsmannasamtölin þar sem
þeir sjá um rekstur rannsóknastof
anna í reynd. Það er bara ekki viður
kennt af höfundum skipuritsins á
Rannsóknarstofnun LSH. Enn er breyt
inga þörf.
Kæru lífeindafræðingar! Við getum
fagnað þeim breytingum sem orðið
hafa á ímynd okkar, munað hefur um
minna! Við höldum ótrauð áfram að
breyta okkur og störfum okkar til
hins betra.
Kristín Hafsteinsdóttir
formaður Félags lífeindafræðinga
Heilbrigðisstofnun Austurlands Egilsstöðum
Lífeindafræðingur
óskast til starfa
Frá 15.08.2006 (eða eftir nánara samkomu-
lagi) er staða lífeindafræðings við Heilbrigðis-
stofnun Austurlands á Egilsstöðum laus til
umsóknar. Stofnunin samanstendur af, tveim
deildum; heilsugæslustöð og sjúkradeild, auk
heilsugæslusels á Borgarfirði eystri. Heilsu-
gæslan og sjúkradeildin eru í sömu byggingu.
Þjónustusvæðið, Egilsstaðalæknis-hérað, er
víðáttumikið og dreifbýlt. Fjórðungssjúkrahús-
ið í Neskaupsstað er í um einnar klukkustund-
ar akstursfjarlægð og þar er skurðlæknir,
lyflæknir og svæfingalæknir.
Umsóknarfrestur er til 01. ágúst nk. Laun eru
samk. kjarasamningum. Frekari upplýsingar
veita Pétur Heimisson yfirlæknir í síma
471-1400 eða með tölvupósti petur@hsa.is
og Þórhallur Harðarson rekstrarstjóri í síma
471-1073 eða með tölvupósti
thorhallur@hsa.is
Heilbrigðisstofnun Austurlands Egilsstöðum
Lífeindafræðingur
óskast til starfa
Frá 15.08.2006 (eða eftir nánara samkomu
lagi) er staða lífeindafræðings við Heilbrigðis
stofnun Austurlands á Egilsstöðum laus til
umsóknar. Stofnunin samanstendur af tveimur
deildum; heilsugæslustöð og sjúkradeild auk
heilsugæslusels á Borgarfirði eystri.
Heilsugæslan og sjúkradeildin eru í sömu
byggingu. Þjónustusvæðið, Egilsstaðalæknis-
hérað, er víðáttumikið og dreifbýlt. Fjórðungs
sjúkrahúsið í Neskaupstað er í um einnar
klukkustundar akstursfjarlægð og þar er
skurðlæknir, lyflæknir og svæfingalæknir.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst nk. Laun eru
skv. kjarasamningum. Frekari upplýsingar veita
Pétur Heimisson yfirlæknir í síma 471 1400
eða með tölvupósti petur@hsa.is og Þórhallur
Harðarson rekstrarstjóri í síma 471 1073 eða
með tölvupósti thorhallur@hsa.is
Lífeindafræðingur
óskast
Lífeindafræðingur óskast í 100% starf á
Blóðmeinafræðideild LSH, Hringbraut.
Upplýsingar veitir Margrét Ágústsdóttir
yfirlífeindafræðingur í síma 543 5045
eða 824 5858.