Tímarit lífeindafræðinga - Jul 2006, Blaðsíða 14

Tímarit lífeindafræðinga - Jul 2006, Blaðsíða 14
14 TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. Tilgangur rannsóknar Markmið rannsóknarinnar var að finna próf sem yrði notað á Blóðmeinafræðideid LSH. Eftir sameiningu blóð meinafræðideildanna í Fossvogi og við Hringbraut þarf að nota sama próf á báðum stöðum og var kominn tími til þess að athuga með nýtt próf þar sem dífenýlamín er eitrað efni. Einnig var fróðlegt að prófa eitthvert mótefna prófanna þótt þau séu mun dýrari enn sem komið er. Efniviður og aðferðir Gagnasöfnun Söfnun saursýna hófst ári fyrir rannsóknina. Saursýnin voru sett í frysti samdægurs eða næsta dag, frost um ‑20°C. Ekki var safnað neinum persónugreinanlegum upplýsingum. Saursýnin samanstóðu af fimm hópum sem voru: • Hópur nr.1: Saursýni sem höfðu verið send frá sjúkl ingum á LSH /Hringbraut á blóðmeinafræðideildina til rannsóknar á blóði í saur. Leitast var við að hafa hátt hlutfall jákvæðra sýna í þessari söfnun, 81 sýni. • Hópur nr. 2: Þessi hópur var ekki hafður með í rann sókninni en þetta voru saursýni úr voltarenlyfja könnuninni sem tekin voru fyrir lyfjagjöfina þ.e. sömu einstaklingar og í hópi 3. • Hópur nr. 3: Saursýni úr voltarenlyfjakönnun eftir lyfjagjöf, 20 sýni. • Hópur nr. 4: Saursýni úr calprótektínkönnun á sjúkl ingum með sáraristilbólgur og aðstandendum hrygg iktarsjúklinga, 19 sýni. • Hópur nr. 5: Saursýni frá sjúklingum með Crohn´s sjúkdóm, 16 sýni. Aðferðalýsingar DFA Efni: Dífenýlamínlausn: 2 g dífenýlamín, 50 ml ísediksýra og 50 ml 96% alkóhól. Vinnulausn: 0,2 ml af 20% H2O2 og 1,8 ml dífenýlamínlausn. Aðferð: Saursýni er smurt þunnt á þerripappír á svæði u.þ.b. 6 cm2 að stærð. Á helming saursins eru settir 3 til 5 dropar af vinnulausn. Hinn helmingur saursins er hafður sem blindur til þess að sjá mögulega litarbreytingu á saursýninu. Eftir 2 mínútur er litarbreytingin metin og svar við blóði gefið: Nei kvætt ef engin litarbreyting verður á saurnum, (+) ef litarbreyting verður á saurnum og fölur fjólublár litur á pappír, + skýr fjólublár litur á pappír, ++ dökkfjólublár litur á pappír, +++ svarfjólublár litur á pappír og ++++ svarfjólublár litur á pappír og lausnin sýður á saurnum. HFec Efni: Flaska A inniheldur 0,10 % 3,3´5,5´-tetramethylbenzidín í ísediksýru og alkóhóli. Flaska B hefur að geyma 3% H2O2. Aðferð: Saursýni er smurt þunnt á þerripappír á svæði u.þ.b. 6 cm2 að stærð. Einn dropi af blöndu A er látinn falla á sýnið og þá einn dropi úr flösku B þar ofan á. Skeiðklukka er sett af stað um leið og seinni dropinn fellur á sýnið. Blágrænn litur myndast ef blóð er í sýninu. Um leið og blágrænn litur sést á sýninu er klukkan stöðvuð og sekúndurnar skráðar. Blágræni liturinn er sterkari eftir því sem meira er af blóði í saurnum en þegar óhemju mikið er af blóði breytist liturinn fljótt í gulan lit. Prófið er neikvætt ef enginn blágrænn litur myndast innan 10 sekúnda. Tíminn er skráður þegar litarbreyting verður og svar við blóði er gefið: 9 - 10 sekúndur gefur (+), 7 - 9 sek. gefur +, 4 - 7 sek. gefur ++, 2 - 4 sek. gefur +++ og strax eða innan 2ja sek. gefur ++++. HSensa Efni: HSensa spjöld sem innihalda pappír með krómógeninu guaiac. Framkallari inniheldur minna en 4,2% H2O2, 80% alkóhól og „örvara“ í vatnsupplausn. Aðferð: Lítlu magni af saursýni er smurt þunnt í glugga A og B á spjaldinu, eftir a.m.k. 5 mínútur er spjaldið opnað hinum megin og tveimur dropum af framkallara er bætt á hvert sýni. Niðurstaða er túlkuð eftir eina mínútu sem jákvæð eða neikvæð. Blár litur á sýninu eða við jaðra þess er jákvæð svörun við blóði. Hsure Efni og áhöld: Sýnasöfnunarglas með 2 ml af búffer sem er með 0,5 natríum azide, hylki með nítrócellulósa himnu sem er skipt niður í kontrólsvæði og mælisvæði. Í himnunni eru 2 mg/ml af fjölstofna mótefni (geita) á kontrólsvæðinu en á mælisvæðinu eru 2 mg/ml af einstofna mótefni gegn hemóglóbíni manna þá er þar líka gullkonjugat (4 mg/ml af einstofna mótefni músa). Innan í tappa söfnunarglassins er stautur með spíral á endanum til þess að grípa saurinn. Aðferð: Stautnum er stungið 6 sinnum í saursýnið á mismunandi stöðum en að lokum á að sjást svolítið saursýni á enda stautsins. Nú er stautnum stungið aftur í sýnasöfnunarglasið og það er hrist til þess að búa til saurblöndu. Þrír dropar af saurblöndunni eru settir í hylkið. Niðurstaða er lesin innan 5 mínútna. Ef tvær rauðfjólubláar línur, kontróllína og próflína, sjást í glugganum á hylkinu er sýnið jákvætt fyrir blóði. Niðurstaða var metin sem jákvæð eða neikvæð en við skráðum hjá okkur ef próflínan var dauf, vægt jákvætt. Framkvæmd Unnið var með 10-20 saursýni hverju sinni. Sýnin voru látin ná stofuhita áður en prófin voru gerð. Hvert prófsýni fékk sitt númer og var Hsure-söfnunarglasið, HSensaspjöldin og þerripappírsblöð fyrir HFec og DFA merkt með því. Fyrst var saursýni smurt á tvö þerripappírsblöð, síðan á HSensaspjald og síðast sett í Hsure-söfnunarglasið. Númer sýnanna voru síðan hulin og röðum smurðu spjaldanna, þerripappírsblaðanna og glösum ruglað. Unnið var í sog skáp en dífenýlamínprófið var alltaf gert síðast vegna þess hve rokgjarnt það er. Niðurstöður úr prófunum voru síðan skráðar á þerripappírinn, spjöldin og Hsure-hylkið. Þegar sýnin höfðu verið mæld með öllum aðferðunum var hulunni svipt af númerunum og niðurstöður skráðar. Verklegi þátturinn var unnin af tveimur aðilum þannig að sami aðili gerði prófin en aflesturinn var gerður af báðum. Rannsóknin er blind þar eð ekki var vitað um númer sýnanna og fyrri niðurstöður þegar prófin voru gerð. Tölfræðiaðferðir Ekkert prófanna var hægt að nota sem gullstandard þannig að brugðið var á það ráð að reikna út samræmisstuðul á milli tveggja prófa. Niðurstöður prófanna voru skráðar í Grein / blóð í saur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lífeindafræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lífeindafræðinga
https://timarit.is/publication/2067

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.