Tímarit lífeindafræðinga - Jul 2006, Síða 16
16 TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl.
að mun fleiri sýni fá með HFec fyrirgjöfina 3+ og 4+ eða
33 sýni en aðeins 20 sýni með DFA. En HFec var með 65
sýni jákvæð og þau 6 sýni sem upp á vantar hjá DFA voru
aðeins vægt jákvæð með HFec, sýndu (+) og +. Á mynd 6
er samhengi DFA og HFec sýnt fyrir öll sýnin með línulegri
aðfallsgreiningu, fylgnistuðull 0,81 sem er góð fylgni.
Samræmisstuðull eða �
Reiknaður var út samræmisstuðull eða � og var marktæki
milli tveggja prófa í öllum tilfellum p < 0,001. Mjög gott
samræmi var á milli peroxíðasaprófanna og gott á milli
þeirra og Hsure. Samræmisstuðull á milli DFA og HFec var
� = 0,911, milli DFA og HSensa � = 0,895, milli HFec og
HSensa � = 0,837, milli HFec og Hsure � = 0,703, milli
DFA og Hsure � = 0,697 og milli HSensa og Hsure � =
0,679.
Umræða
Próf fyrir blóði í saur er ódýr rannsókn, fljótleg og hættu
laus og er ódýrasta og einfaldasta prófið til skimunar eftir
ristilkrabbameini [30]. Enn eru peroxíðasaprófin mest
notuð í hinum vestræna heimi en þau krefjast sérstaks
mataræðis [31]. Lágt hlutfall Bandaríkjamanna sem komnir
eru yfir fimmtugt láta skima eftir blóði í saur árlega þrátt
fyrir mikinn áróður fyrir skimun. Erfiðleikum við töku
sýna samfara óþægindum af breytingu á mataræði er kennt
um þetta að einhverju leyti. Ekki eru þó allir sammála um
að þörf sé á ströngu mataræði fyrir vestrænar þjóðir
[27, 32]. Sumir greinahöfundar tala um að forðast bara
rautt kjöt og bíða með að framkalla prófið í þrjá daga en
við það á peroxíðasi frá ávöxtum og grænmeti að eyðast
[5].
Bæði peroxíðasaprófin og mótefnaprófin krefjast 3ja
saursýna, helst 3 daga í röð, og eykur það enn á fyrir
höfnina. Við athugun á niðurstöðum frá 36 sjúklingum á
LSH /Hringbraut sem þrjú saursýni höfðu verið send frá til
mælingar á blóði í saur kom í ljós að hjá 32 þeirra eða hjá
89% voru niðurstöður þær sömu úr öllum þremur sýnunum.
Frá 26 sjúklingum höfðu verið send 2 saursýni og hjá 24
þeirra eða hjá 92% voru niðurstöður þær sömu úr báðum
sýnunum. Þetta vekur upp spurningu um hvort nauðsynlegt
sé að fá þrjú sýni til rannsóknar.
Þegar skimað er eftir ristilkrabbameini á viðeigandi
hátt getur það dregið úr sjúkdómatíðni og dauða. Skimunar
aðferðir eru: Mæling á blóði í saur, stutt ristilspeglun, ristil
myndataka með skuggaefnisinnhellingu og alristilspeglun.
Þetta eru allt arðbærar aðferðir (cost-effective). Þrátt fyrir
allt þetta framboð á skimunaraðferðum hefur skimunum
ekki fjölgað. Von er til þess að nýrri tækni t.d. sýndarristil
speglun (tölvusneiðmynd af ristli) og skimun eftir stökk
breyttum erfðavísum (DNA) í saur verði aðlaðandi valkostir
[33]. Aðalatriðið er þó að einhver skimun sé gerð.
Niðurstöðurnar sýna að mjög gott samræmi var á milli
peroxíðasaprófanna á þessum 136 saursýnum og gott sam
ræmi milli þeirra og Hsure. Hópur nr. 4 var sérstakur að
því leyti að þar voru fjögur sýni eingöngu jákvæð með mót
efnaprófinu Hsure og er það umhugsunarefni. Þetta var
eina dæmið í rannsókninni þar sem eingöngu Hsure var
jákvætt.
Miserfitt er að meta niðurstöður úr prófunum en öll
eru þau handhæg. Okkur fannst HFec prófið auðveldast
hvað aflestur snerti en þar gefur jákvæð svörun greinilegan
blágrænan lit. HFec prófið er fljótlegast að framkvæma,
tekur aðeins 10 sekúndur. Tímatakan verður að vera hár
nákvæm og verður að nota skeiðklukku. Blágrænn litur
innan 10 sek. er jákvætt svar en að liðnum 10 sek. nei
kvætt. Þessi þröngu tímamörk eru bæði kostur og ókostur.
Það er kostur að fljótlegt er að framkvæma prófið og
ekkert mál að endurtaka það ef þurfa þykir og nægilegt
saursýni er fyrir hendi. Ókosturinn er einnig þessi hár
nákvæmi tími og nokkur hætta er á því að niðurstaða sé
lesin að liðnum 10 sek. og fást þá fölsk jákvæð svör.
HSensa er einnig gott próf en er ekki eins næmt og
HFec og ekki eins auðvelt og öruggt í aflestri. HSensa
gefur oft daufan dökkbláan lit sem óvönum hættir til að
meta sem jákvætt svar. Mögulegt er að gefa fyrir blóð
svörun með HSensa í plúsum en það var ekki gert í þessari
R 2 = 0,8045
0
0,5
1
1,5
2
2,5
3
3,5
4
4,5
0 0,5 1 1,5 2 2,5 3 3,5 4 4,5
HFec
D
FA
Samhengi milli DFA og HFec
Mynd 6. Samhengi DFA og HFec fyrir öll sýnin sýnt með línulegri
aðfallsgreiningu (linear regression) en 0,5 stendur fyrir (+), 1 fyrir
+, 2 fyrir 2+, 3 fyrir 3+ og 4 fyrir 4+.
9
18
12
7
13
4
8
14
15
18
0
2
4
6
8
10
12
14
16
18
20
DFA
(+)
DFA
+
DFA
2+
DFA
3+
DFA
4+
HFec
(+)
HFec
+
HFec
2+
HFec
3+
HFec
4+
Fj
öl
d
i s
au
rs
ýn
a
Fjöldi sýna jákvæð bæði með DFA og HFec
Mynd 5. Fyrirgjöf í plúsum á þeim saursýnum sem voru jákvæð
fyrir blóði bæði með DFA og HFec, alls 59 sýni.
Grein / blóð í saur