Tímarit lífeindafræðinga - jul. 2006, Side 30
hjá okkur hér á Blóðmeinafræðideild LSH við Hringbraut
og birta myndir af kristöllunum sem fundust í þvagbotnfalli
sjúklinganna. Ekkert þessara sjúkdómstilfella hafði verið
greint áður.
Kristallatilfelli 1
Þvagsýni barst í hefðbundna þvagrannsókn á Rann
sóknastofu FSA frá fjögurra ára ljóshærðri stúlku. Móðir
hennar og móðurafi eru rauðbirkin. Stúlkan hafði fundið
fyrir óþægindum við þvaglát og móðirin séð útferð í
buxum. Þvagbotnfall var sent til okkar. Dæmigerðir 2,8-
DHA kristallar og einnig minni gerðir af kristöllunum
fundust við smásjárskoðun á þvagbotnfalli frá henni
(myndir 1, 2 og 3A og B). Kristallarnir sýndu þó ekki
Möltukross í p.l.
Mynd 1. Allar stærðir af hnattlaga 2,8-DHA kristöllum, þeir minnstu
eru eins og dropar en sá stærsti er farinn að brotna í kökusneiðar
undan þunga þekjuglersins, x400.
Mynd 2. 3 dropar af 33% ediksýru voru settir út í glas með einum
dropa af þvagbotnfalli. Næsta dag mátti sjá að ediksýran hafði
aðeins leyst upp fosfatakristallana, x400.
Kristallatilfelli 2
Þvagsýni barst í hefðbundna þvagrannsókn frá 23ja ára
rauðhærðum manni sem hafði verið lagður inn á Bráða
móttöku LSH við Hringbraut. Hann var grunaður um að
vera með nýrnastein en hafði verið fílhraustur alla tíð. Í
þvagbotnfalli sáust 2,8-DHA kristallar en þeir voru ekki
dæmigerðir (mynd 4). Um kvöldið barst annað þvagsýni
frá honum en í því voru dæmigerðir kristallar og mun
meira af rauðum blóðkornum (mynd 5). Minni kristallarnir
sýndu Möltukross í p.l. Á nýrnaröntgenmynd sást steinn
þ.e.a.s. gat ofarlega í þvagleiðara en 2,8-DHA kristallar eru
ekki röntgenþéttir og nota þarf skuggaefni til þess að þeir
sjáist.
Mynd 4. Fyrra þvagsýnið sýndi 2,8-DHA kristallar en þeir voru ekki
dæmigerðir, x400.
Mynd 5. Seinna þvagsýnið var með mun fleiri rauð blk. en einnig
dæmigerða 2,8-DHA kristalla. Á myndinni sést einn dæmigerður 2,8-
DHA kristall fyrir miðju og annar kl. 21. Greina má 5 aðra 2,8-DHA
kristalla en þeir eru mun minni og þynnri og er erfitt að sjá þá í
rauðblóðkorna-mergðinni en einn þeirra er kl. 14, x400.
Kristallatilfelli 3
Þvagsýni barst í hefðbundna þvagrannsókn frá einni af
deildum spítalans. Sýnið var frá 25 ára rauðhærðri konu.
Ógrynni af 2,8-DHA kristöllum í öllum stærðum sáust við
smásjárskoðun í þvagbotnfalli hennar (myndir 6 og 7).
Minni gerðirnar sýndu Möltukross í p.l.
Þessi kona hefur myndað steina frá því að hún var telpa
og farið a.m.k. tíu sinnum í nýrnasteinbrjót og kvalist
mikið vegna þessa. Talið var að hún væri með þvagsýru
steina. Þvagsýni hafa margoft verið skoðuð frá henni og
tvisvar sinnum verið gefið fyrir ammoníumbíuratakrist
alla.
Mynd 3 A og B. A: Botnfallið var litað með Sternheimer-Malbin
þvaglit og kristallarnir hafa tekið lit. Á mynd B til hægri má
sjá sama sjónflöt og á mynd A en þrýst var á þekjuglerið og þá
brotnuðu stóru kristallarnir í kökusneiðar, x400.
30 TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl.
Grein / 2,8-DHA kristallar