Tímarit lífeindafræðinga - Jul 2006, Page 33

Tímarit lífeindafræðinga - Jul 2006, Page 33
TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. 33 Grein / næringarfræði • B1 B1-vítamín finnst í litlu magni í flestum mat nema í hvítum sykri og hreinni fitu, mest er í heilhveiti, innmat og svínakjöti. B1-vítamín er vatnsleysan legt vítamín og því skiptir máli að nota soðið af matnum en það eyðist ef maturinn er soðinn lengi. • B6 -vítamín B6 -vítamín finnst í litlu magni í flestum fæðutegundum nema í mikið unnum matvörum. Mest er í heil korni, innmat, fiski, baunum, dökk grænu grænmeti og banönum. Eigin lega ættum við ekki að þurfa að líða skort á B6-vítamíni nema fæðið sé lélegt eða mikið unnið. • C-vítamín C-vítamín fáum við helst úr ávöxtum, kartöflum og grænmeti. C-vítamínið er viðkvæmasta vítamínið, það eyði legst við hitun einkum ef mikið súrefni og birta kemst að. Auk þess lekur það út í suðuvatnið. Það minnkar í ávöxtum og grænmeti við geymslu. • Kalk Kalk fæst einkum úr mjólkurafurðum, auk þess úr dökkgrænu grænmeti, hnetum, baunum og grófu korni. D- vítamín er nauðsynlegt fyrir nýtingu líkamans á kalki úr fæðunni. • Joð Joð fæst aðallega úr fiski og fiskaf urðum. • Magnesíum Magnesíum fæst aðallega úr jurtafæðu eins og úr baunum, hnetum, grófu brauði, heilkorni, kartöflum, græn meti og mjólk. D-vítamín virðist líka vera nauðsynlegt til að nýta magnes íum í fæðunni. Lokaorð Eitt er nauðsynlegt að taka fram um steinefnin og það er að magn þeirra fer eftir fóðri dýra og jarðveginum sem plönturnar eru ræktaðar í. Gott prótein er það sem inniheldur allar amínósýrurnar 20 og fæst eingöngu úr dýraafurðum og sojabaunum. Góða fitu fáum við úr fiskifitu og olíum úr fræjum plantna eins og soja, sólblóma o.fl.. Slæm fita verður hörð í ísskáp, sama hvort hún er úr jurta ríki eða úr dýraríki. En þegar jurtaolía er hert með hita og hydrogeni (vetni) bætt í breytist olían og verður til svo kölluð hert fita (tranfitusýrur). Þessi fita er sennilega sú versta sem við fáum úr fæðunni. Þetta er oftast gert til að spara og er algengt í smjörlíki, sælgæti, snakki, kexi, kökum, vínar brauði, hjúpsúkkulaði o.fl. Góð kolvetni fást úr grænmeti, ávöxtum og heilu korni og laktósu fáum við úr mjólk. Léleg kolvetni eru í hvítum sykri, hvítu hveiti og hýðis lausum hrísgrjónum. Nú getið þið sjálf lagt mat á það hvort þið og fjölskyldur ykkar fáið þá næringu sem er nauðsynleg líkam anum eða hvort þið þurfið fæðubótar efni með. Viskustykki Á málþingi Samtaka heilbrigðisstétta sem var haldið 14. október 2004 og bar yfirskriftina „Geta heilbrigðisstéttir unnið saman?“ hélt Sigurður Guðmundsson landlæknir ræðu þar sem hann sagði: Það er skylda okkar að vinna saman. Við vinnum ekkert ein. Enginn kann allt og veit allt! Fróðleiksmolar

x

Tímarit lífeindafræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lífeindafræðinga
https://timarit.is/publication/2067

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.