Tímarit lífeindafræðinga - júl. 2006, Blaðsíða 45

Tímarit lífeindafræðinga - júl. 2006, Blaðsíða 45
TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. 45 Félagsmál /aðalfundur MTÍ 2005 Skýrsla stjórnar MTÍ flutt á aðalfundi 16. apríl 2005 Aðalfundurinn var haldinn á Grand Hótel. Kristín Hafsteinsdóttir formað ur MTÍ setti fundinn og tilnefndi Eyglóu Bjarnardóttur fundarstjóra og Kolbrúnu Káradóttur fundarritara. Kristín flutti síðan skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2004 – 2005. Skýrsla stjórnar Samvinna félaga Það sem einkenndi liðið starfsár hjá okkur í MTÍ var samstarfsvilji margra aðila og þar af leiðandi - samvinna. Stjórn félagsins hefur verið mjög virk, svo virk, að „elstu félagsmenn“ muna ekki eftir jafn áberandi samvinnu jafn margra eða virkni jafn margra stjórnar- og nefndarmanna. Við höfum líka verið mjög sam vinnufús innan SIGL þar sem félögin hafa öll notið góðs af nærveru hvers annars, við störfum fúslega innan Samtaka heilbrigðisstétta og ekki vorum við minna samvinnufús innan BHM við gerð nýrra kjarasamninga: Samkomulagsins. Nýir kjarasamningar voru gerðir í samvinnu 22 félaga innan BHM og framundan eru sameig inlegir stofnanasamningar. Þau „sem standa í stappi“ fyrir félögin hafa snúið bökum saman og hafið sókn í stað varnar gagnvart fjármálaráðuneyt inu sem stundaði stíft aðferðina „að deila og drottna“ á meðan félögin sátu hvert með sitt vandamál bend andi á það sem betur fór hvert hjá öðru. Nú stefnum við að jöfnun kjara meðal félaga (og einstaklinga) í öllum samningum. Flutningur námsins Samvinna okkar innan félagsins og við Félag geislafræðinga skilaði okkur loksins í læknadeild Háskóla Íslands ásamt geislafræðingunum. Til varð ný skor í læknadeild: Lífeinda- og geisla fræðiskor. Stefnt er að því að fylgja Bologna-samþykktinni í þessari nýju skor þannig að grunnnámið verður 3 + 1 ár með möguleika á 3 + 2 árum til meistaraprófs. Flutningur námsins er gæfuspor fyrir okkur ekki síst á þessum tíma þegar verið er að sjóða saman Lög um lífeindafræðinga á Alþingi. Umsagnir HÍ og annarra sem vita af flutningi okkar þangað hafa áreiðanlega verið þung lóð á vogar skál okkar. Nafnið lífeindafræðingur Já, á meðan ég man: Við fundum nafn á stétt­ina! Liggjandi niðri í skúffu!!! Búið að liggja þar í nokkur ár. Nafninu var fagnað á öllum stöðum sem það var sent á til umsagnar. Nafnið lífeindafræðingur hefur þann kost að enda á -fræðingur sem vísar til háskólamenntunar frekar en –tæknir og orðið lífeind er þýðing á Biocule sem er smá eining í lifandi vef. Við stefnum að því að stofna Félag líf eindafræðinga upp úr Meinatæknafé lagi Íslands við fyrsta tækifæri. Það var Jónína Jóhannsdóttir sem starfar á Erfða- og sameindalæknis fræðideild LSH sem hafði lagt þetta nafn til um það leiti sem yfirmaður hennar Jón Jóhannes Jónsson stofn aði fyrirtækið Lífeind. Á þeim bæ er orðið lífeind gamalt orð og tungutamt en við hin þurftum allt frá 5 mínútum til 12 klukkustunda til að venjast því. Kosið var um nafnið og hlaut það „Sovét-kosningu“. Tilkynntum við það þá ýmsum aðilum sem fögnuðu því allir sem einn. Til þess að geta breytt nafni félags ins höfum við verið að bíða eftir nýjum Lögum um lífeindafræðinga sem liggja fyrir Alþingi en fæðing þeirra var erfið því margir og ein kennilega öflugir aðilar vilja ekki leyfa okkur að njóta þess að bera ábyrgð á eigin störfum. En Heilbrigðis- og trygg ingamálaráðherra er að reyna að skila okkur réttlátari lögum en gilt hafa um meinatækna. Starfsmat og kjör Skrifstofa starfsmannamála á LSH segist líka hafa vilja til að bæta kjör okkar félagsmanna á LSH til samræmis við kjör sambærilegra stétta. Þetta hefur hingað til einungis verið viljayf irlýsing sem er þó meira en fengist hefur hingað til. Stefna nútíma atvinnurekenda er sú að gera starfsmat fyrir hvert starf, festa á það verðmiða og ráða fólk eftir því. Þeir tala um að þá þurfi ekki þessa leiðinda samninga og að kjarafé lögin muni líða undir lok. Það var einmitt vegna slíkrar framkomu að stéttarfélögin urðu til! Þegar þeir gátu ákveðið hvað þeir vildu borga fyrir hvert starf og engu varð breytt eftir það nema þá langaði til þess. Þegar Háskóli Íslands fór nýlega í þrotlaust starf við að gera starfsmat fyrir starfs menn sína innan Stjórnsýslu- og þjón ustustarfa eingöngu, kom í ljós að meinatæknar eru skilgreindir sem þjónustustétt ásamt símavörslu og ræstingum í starfagreiningu Hagstofu Íslands. OG ef það er ekki nægilega móðgandi skal á það bent að í starfs mati fyrir þjónustugreinar komum við sérstaklega illa út vegna þess að við mælumst ekki með vel unnin þjón ustuhlutverk! Við verðum því að fara í það verkefni að fá skilgreiningu á störfum okkar breytt hjá Hagstofu Íslands. Nýir kjarasamningar voru gerðir til skemmri tíma en áður hefur þekkst og eru í rauninni einungis breyting á tveimur köflum í samningum allra félaganna 22 sem gerðir voru árið 2001 enda eru samningar félaganna oft mjög líkir. Það sem er nýtt, er vilji félaganna til að sameina 15 mismun andi launatöflur og gera sameiginlega stofnansamninga. Félagið okkar kemur mjög vel út í þessu samstarfi en það reyndi á félagsþroska annarra félaga sem bjuggu ekki við jafn bág kjör og við.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lífeindafræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lífeindafræðinga
https://timarit.is/publication/2067

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.