Tímarit lífeindafræðinga - jul 2006, Síða 46

Tímarit lífeindafræðinga - jul 2006, Síða 46
46 TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. Félagsmál /aðalfundur MTÍ 2005 Stofnanasamningar Stefnt er að miklu starfi við undirbún ing stofnanasamninga sem eiga að taka gildi 1. maí 2006. Sú nýjung er í samningunum að þeim fylgir fé til að gera stofnanasamninga fyrir utan aðrar hækkanir sem koma við vörpun yfir í nýju launatöfluna. Það sem mér þykir allra mest áríðandi af öllu sem lofað er í samningunum er hækkun byrjunarlauna sem verður fyrst veru leg 1. maí 2006 en þá loksins er hægt að líta á nýútskrifaða lífeindafræðinga án þess að fá hnút í magann! Samningarnir hafa ekki enn þá verið undirritaðir vegna þess að fjögur félög sem að þeim stóðu, kennarafé lögin í BHM, eru enn að vonast eftir einhverju frá Menntamálaráðuneyt inu. Við hin félögin 18 erum búin að samþykkja breytingarnar – Samkomu­ lagið – en við í MTÍ erum enn að reyna að fá breytingu umfram sam komulagið á kafla 2 um vinnutíma og vaktir þar sem okkur telst til að lenging útkalla sé töluverð kjarabót og höfum við farið fram á það sama og í boði var 2001. Ekki hefur það gengið enn þá en við erum vongóðar í samninganefndinni. NML MTÍ tók við ábyrgð á NML í Tromsö í júní 2003 og mun skila henni af sér í lok NML2005 ráðstefnunnar sem við stöndum fyrir í næstkomandi júnímán uði. Við höfum lítið aðhafst þrátt fyrir samstarfsvilja, fyrir utan mjög góða fundi í Reykjavík um blóðtökur og nándarrannsóknir (í febrúar 2004). Þess í stað höfum við beint öllum kröftum í að fá lögum um okkur breytt svo að Norðurlandaþjóðirnar með forystu Íslands komist á stall með öðrum lífvísindamönnum. Svíar eru komnir langt en við þurfum að fá hreina og skýra lagalega stöðu hér innan lands sem utan, stöðu sem aðrir geta síðan bent á sér til framdráttar. NML2005 Undirbúningur ráðstefnunnar NML- 2005 hefur verið í höndum dagskrár nefndar NML2005. Formaður nefndar innar er Brynja R. Guðmundsdóttir og með henni í nefndinni starfa Anna S. Ingvarsdóttir, Erla Sveinbjörnsdóttir, Þjónustuskrifstofan SIGL Flutningar í nýtt húsnæði að Borg artúni 6 (Gömlu rúgbrauðsgerðina) standa fyrir dyrum á næsta ári en gengið var til samninga um kaup á þessu húsnæði fyrir nokkrum mánuðum. Þegar við flytjum þangað verður þjónustuskrifstofa SIGL loksins með almennilegt húsnæði og ætti hún þá að fara að festast félögum innan SIGL félaganna í minni. Meinatæknafé lagið stóð fyrir stofnun SIGL þjónustu skrifstofu sem er þjónustuskrifstofa fjögurra heilbrigðisstétta: Sjúkraþjálf ara, iðjuþjálfa, geislafræðinga og líf eindafræðinga. Stofnun SIGL þjón ustuskrifstofu var gæfuspor fyrir okkur í MTÍ, við höfum náð okkur upp fyrir skuldastrikið á meðan við höfum aukið þjónustu við félagsmenn þar sem Margrét Eggertsdóttir sem áður starfaði aðeins fyrir okkur í 40% starfi er nú í fullri vinnu sem fram kvæmdastjóri SIGL og heimasíðu meistari okkar með meiru. Heimasíðan hefur verið lengi í þróun en nú er flest það sem við stefndum að komið inn á hana. Þá er komið að félagsmönnum að nota hana. Furðulega oft hafa félagsmenn sagt að þeir fái ekki tölvupóstföng á vinnustöðum sínum, fái ekki að fara í tölvur til að athuga með tölvupóst eða jafnvel að þeir vilji ekki fá tölvu póst. Nú á 21. öldinni er almenna reglan í sambandi við tölvunotkun sú að eðli legt þykir að starfsmenn fái a.m.k. 10 mínútur á dag í vinnunni til að skoða tölvupóst sinn. Áhyggjur yfirmanna af margra klukkustunda hangsi í tölvum eru jafn einkennilegar og það að starfsfólk sé sagt vera að prenta út tugi blaðsíðna, gjarnan í lit, af ýmsum vefsíðum. Slík stjórnunarvandamál eru ekki á okkar könnu en það er á okkar könnu ef ekki er hægt að hafa samband við félagsmenn. Tölvupóstur sem félagsmenn setja sig sjálfir inn á, spjallsíða, fréttasíða og tölvubirting á öllum okkar félagsmálum er komið til að vera. Nefndir Fræðslunefnd og endurmenntunar nefnd hafa staðið sig með sama sóma og þær hafa gert á undanförnum Gunnhildur Ingólfsdóttir, Hólmfríður Hilmarsdóttir og Kristín Jónsdóttir. Þess skal getið hér sérstaklega að við gengum á fund Vilhelmínu Haralds dóttur lækningasviðsstjóra og fórum fram á það að LSH greiddi ráðstefnu gjaldið fyrir starfsfólk sitt í stéttinni svo ekki þyrfti hver að sækja um fyrir sig sem væri mikil vinna fyrir alla aðila. 161 lífeindafræðingur starfar á LSH og á lægsta skráningargjaldi hefði upp hæðin orðið 6.3 milljónir ef greitt væri fullt gjald fyrir alla. Eftir nokkurn tíma barst svar frá Vilhelmínu: 600 þúsund krónur, þar af 300 þúsund beint frá deildunum! Stuttu seinna fékk Félag klínískra sérfræðinga Ingunni Þor steinsdóttur lækni 300 þúsund krónur úr sjóði sínum til að styrkja okkur og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir sannan höfðingsskap. IFBLS Á alþjóðaráðstefnu lífeindafræðinga í Stokkhólmi, IFBLS2004, vék fráfar andi forseti IFBLS Martha Hjálmars dóttir úr embætti hjá alþjóðasamtök unum eftir að hafa verið verðandi forseti, forseti og fráfarandi forseti í samtals 6 ár og kunnum við henni þakkir fyrir að koma okkur verulega vel fyrir á korti alþjóðamála. Martha mun halda erindi á NML2005 þar sem hún fjallar um þróun náms í líftækni í Tækniháskólanum og flutning lífeinda fræðinnar í HÍ. Núverandi forseti alþjóðasamtakanna IFBLS sem er Lena Morgan frá Svíþjóð hefur þegið boð okkar um að koma á NML2005 og segja okkur frá þróun mála stéttar innar á alþjóðavettvangi. EPBS Í Evrópusamtökum lífeindafræðinga (EPBS) hefur MTÍ staðið framarlega í mótun stéttarinnar í Evrópu. Forseti samtakanna, Marie Culliton, hefur þegið boð okkar að koma og halda pallborðsumræður um þróun stéttar innar á NML2005. MTÍ hefur gengið með forustuliði EPBS hvað varðar samvinnu við nema og styrkti nema til farar til Luzern í Sviss til að sækja fund Evrópusamtakanna. Valgerður Jóhannsdóttir var fulltrúi NOXA og stóð sig með afbrigðum vel eins og hún gerði í Brussel á síðastliðnu ári.

x

Tímarit lífeindafræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lífeindafræðinga
https://timarit.is/publication/2067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.