Tímarit lífeindafræðinga - júl. 2006, Blaðsíða 56

Tímarit lífeindafræðinga - júl. 2006, Blaðsíða 56
56 TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. Smávegis kjarabót náðist í stofn anasamningi við LSH. Samþykki fékkst fyrir því að lífeindafræðingar í veiru fræði, ónæmisfræði og blóðbanka gætu fengið samþykktar ýmist þriggja eða fjögurra launaflokka hækkanir gegn framsali fastra yfirvinnutíma á föstu gengi (3 klst. fyrir launaflokk). Áfram var haldið við að leita skárri kjara til undirbúnings fyrir samræm inguna miklu. Haldinn var fundur með stækkaðri samstarfsnefnd. Auk fastra samstarfsnefndarfulltrúa mættu í boði formanns FL fulltrúar lífeinda fræðinga frá ýmsum deildum (aðal lega trúnaðarmenn) og Oddur Gunn arsson fyrir LSH. En á næstu fundum samstarfsnefndar var öllum kröfum okkar hafnað. Í skýrslu samstarfsnefndar til stjórnar MTÍ í apríl 2005 kemur skýrt fram sú aðstaða sem við í samstarfs nefndinni erum stöðugt settar í, en þar stendur: „Launamisrétti leiðrétt? Verið er að leita leiða til að hækka laun meinatækna á LSH sem fyrst og fá leiðréttingu miðaða við nátt­ úrufræðinga á sömu vinnustöðvum. Samstarfsnefndarfundur sem átti að vera 15. mars var blásinn af vegna þess að Niels Chr. Nielsen var eitthvað slappur eftir utanlands­ ferð!“ Athugið! Okkur eru skammtaðir fundir með margra vikna, stundum mánaða millibili! Jafnrétti Guðrún Schmidhauser lífeinda fræðingur sem starfar í Blóðbank anum hefur staðið ein í málaferlum fyrir Kærunefnd jafréttisráðs þar sem hún fór fram á sömu laun fyrir sömu vinnu. Hún krafðist þess að fá sömu laun og náttúrufræðingur og félags maður í FÍN sem vann við sömu störf og hún, en hann var karlkyns. Það er hart í þessum heimi að lög skuli hamra á jafnrétti fyrir mismunandi kyn því að það veit sá sem allt veit að okkur veitti ekki af jafnrétti milli stétta! Guðrún fékk jákvæð viðbrögð hjá Kærunefnd jafnréttisráðs. Sam kvæmt þeim er bannað að greiða annað en sömu laun fyrir sömu vinnu að minnsta kosti ef um er að ræða konu og karl. Í áliti Kærunefnd ar jafnréttisráðs er skýrt kveðið á um það að ekkert tillit skal tekið til mis munar milli stéttarfélaga og þeirra samninga. Eitthvað hafði Fjármála ráðuneytið við þessar niðurstöður að athuga en LSH greiddi Guðrúnu upp launamismuninn og þessi niðurstaða varð til að undirstrika nauðsyn launa jöfnunar milli heilbrigðisstétta. Námið flyst í HÍ Eins og við vitum öll sem í félaginu erum tókst okkur ásamt geislafræð ingum að fá nám í lífeindafræði og geislafræði flutt í læknadeild Háskóla Íslands. Flutningurinn hafði það í för með sér að allt í einu stóð til „kynning á námi í HÍ“ (kynning sem nemar standa að hverjir í sinni skor, Þeir kynna nám sitt fyrir væntanlegum háskólastúdentum) og við vorum ekki með neitt! Enga nema, enga kennara, ekki svo mikið sem pínulítið pósthólf í byggingum HÍ! En það sannaði sig einu sinni enn að þegar á reynir standa lífeindafræðingar sig alveg sér staklega vel. Með engum fyrirvara skelltu sér á staðinn þar sem kynn ingin fór fram ungar mæður og stóðu sig aðdáunarlega þegar þær kynntu væntanlegt nám í lífeindafræðiskor í læknadeild Háskóla Íslands. Þetta voru þær Steinþóra Þórisdóttir, Elísa bet Rós Birgisdóttir og Gyða Hrönn Einarsdóttir. Launakjör Vaxandi óánægja var og er meðal félagsmanna með launakjörin. Líf eindafræðingar horfa sérstaklega til launamismunar hjá okkar félögum og hjá félagsmönnum FÍN. En innan stétt arinnar var líka rótgróna mismunun að finna innan sömu stéttar og innan sömu stofnunar. Lífeindafræðingar á Sýklafræðideild Rannsókarstofnunar LSH voru sérstaklega ósáttir og kröfð ust leiðréttingar til samræmis við aðra lífeindafræðinga sem hlýtur að teljast lágmarkskrafa. Ljóst var að við svo búið mátti ekki standa. FL yrði að ná samræmdum kjörum félaganna og til samræmis við aðrar heilbrigðisstéttir. Slík vinna verður eingöngu fram kvæmd við gerð stofnanasamnings. Við vildum ekki ganga til stofnana samningsins illa undirbúnar og fórum í mikla vinnu við að skoða sambæri leg starfsheiti annarra heilbrigðis stétta og skoðuðum starfslýsingar þeirra þar sem þær fundust. Mikill tími fór í þá vinnu en margt hefur mjakast til í sambandi við hana. En betur má ef duga skal! Við erum að stíga fyrstu spor sjálfstæðrar stéttar sem á að hafa innbyrðis „gogg Aðalfundurinn var haldinn í hinu nýja húsnæði BHM í Borgartúni 6 en þar hefur SIGL nú skrifstofu sína. Félagsmál / aðalfundur FL 2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lífeindafræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lífeindafræðinga
https://timarit.is/publication/2067

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.