Tímarit lífeindafræðinga - Jul 2006, Page 62

Tímarit lífeindafræðinga - Jul 2006, Page 62
62 TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. Stjórn sjóðsins Í fyrstu stjórn voru Þrúður Haraldsdóttir, formaður, Guðrún Yrsa Ómarsdóttir, varaformaður, Arna Auður Antonsdóttir ritari, Elínborg Stefánsdóttir og Halla Hauksdóttir með stjórnendur. Þrúður, Arna og Halla hafa verið í stjórn frá upphafi. Árið 2000 kom Helga Birna Ingimundardóttir inn í stað Elínborgar Stefánsdóttur og 2002 hætti Guðrún Yrsa og Emil Karlsson frá Útgarði kom inn og tók við for mennsku af Þrúði. Nú á vormánuðum tók Ingibjörg Halldórsdóttir, líf eindafræðingur, við formennsku í sjóðsstjórn en Arna Auður Antonsdóttir hætti stjórnarsetu eftir að hafa setið í stjórn í 7 ár. Á næsta vori fer Halla Hauksdóttir einnig úr stjórn þar sem enginn má sitja lengur en 8 ár. Sæunn Marínósdóttir hjá FÍN var þjónustufulltrúi og sá um rekstur sjóðsins og afgreiðslur umsókna í byrjun. Árið Félagsmál / sjúkrasjóður BHM 2003 var gerður þjónustusamningur við BHM um rekstur inn og hefur Bryndís Jónsdóttir haldið utan um hann síðan. Hver á aðild að SBHM Að lokum skal áréttað að Sjúkrasjóður BHM er aðeins fyrir starfsmenn aðildarfélaga BHM á almennum vinnu­ markaði. Áður en sjúkrasjóðurinn var stofnaður var eina leiðin fyrir háskólamenntaða starfsmenn á almennum vinnumarkaði að ganga í félög eins og VR til að eiga mögu leika á aðild að sjúkrasjóði. Við viljum ráðleggja öllum að kynna sér úthlutunar reglur sjóðsins á heimasíðu BHM þar sem Sjúkrasjóður BHM stenst fullkomlega samanburð við aðra sjóði verkalýðsfélaga. Frábærar rafpípettur frá BIOHIT í Finnlandi. Einnig hefðbundnar „mekanískar“ pípettur. Erum með á lager flestar stærðir rafpípetta og margar tegundir odda, t.d. steríla filterodda. Heimasíða BIOHIT er www.biohit.com Lynghálsi 11 • 110 Reykjavík • Sími 510 0400 • cetus@cetus.is • www.cetus.is

x

Tímarit lífeindafræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lífeindafræðinga
https://timarit.is/publication/2067

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.