Freyja - 01.01.1908, Blaðsíða 14

Freyja - 01.01.1908, Blaðsíða 14
0 FREYJA X. 6 7. .,Ariö 1878 var mál vort loks tckiö fyrir. Eitt hundraö af hópnum haföi ýmist dáiS eöa oröið brjálaö. Eitt lnmdráð níu- tiu og þremur manneskjum var raöaö í ganginn. Mcira en helmingur þessa fólks stóö í félagi voru, og brá mér kynlega viö, er ég í fyrsta sinni sá svo margt fólk, sem ég haföi talaö viö um al-la mögulega hluti á þriðja ár. Flest leit þaö illa út og mátti sjá á i ví mörgu mcrki rússnesku píningarverkfæranria. Við afréðum aö mótmæla rannsókn og réttarhaldi, þvi við viss- um, að réttarhaldið yröi ekkert nema yfirskin hvort sem var, og dómnefndin átti að veröa skipuö af keisaranum. Okkur var samt skift upp í smáhópa, er samanstóðu af 10 eða 15 manns. Þiegar að mér kom mótmælti ég þessu réttarhaldi og var fang- elsisvist mín fyrir það lengd upp í 5 ár við þrælaviunu í Siber- íunámunum, og eftir það til æfilangrar útlegðar í Sí-beríu. „Til þess að forðast upphlaup, vorum við tekin aö nætur- lagi tíu og tíu í hóp, og drifin upp í lokaða vagna. Til beggja liliða við mig sátu digrir varðmenn. Fyrir vagninum gengu þrír hestar. Vagnarnir höföu engar stálfjaðrir, og varð því hristingurinn lítt Þolandi. í 'þessum vögnum áttum við aö vera í tvo mánuði og fara yfir 5,000 mílur vegar. Vagnarnir voru voridir, en þrátt. fyrir það héldum við oft áfram nætur og daga í senn og stönzuðum ekki, nema meðan að skift var um hesta, og tók þaö um tíu mínútur. Urðu þá margir fárveikir af svefn- leysi og öllum leið illa. Varömönnunum var skipað að yfirgefa okkur hvorki nætur né daga, og höfðum við konurnar ekki önn- ur ráð til að fría okkur stund og stund við hið óvelkomna eftir- lit þeirra, en að halda sjölunum okkar upp á rnilli þeirra og okkar, og skiftumst viö á um Þaö verk klukkutímum saman. Þrjár konur voru í förinni, sem komu einungis til að vera hjá mönnum sínum, er voru útlagar. Samt sættu þær sömu með- ferð og við hinar. „A'7iö vorum öll í fangafötmn, og karlmennirnir fjötraðir á liöndum og fótum og hálf-rakaðir og klipptir. Varðmennirnir stálu af oss peningum þeim, cr vinir og vandamenn gáfu oss aö skilnaöi, og urðum við þvi aö lifa á því, er stjórnin skammtar föngum sínum, en það eru //2 cent á mann yfir daginn. Þegar okkur var sérstaklega ætlað aö sofa, vorum við lokuö upp eitc

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.