Freyja - 01.01.1908, Side 44
i8o
FREYJA
X. 6 7.
legt, eins og t.d. í nóv, nr. Breiöabliks: „Réttindi kvenna og
menning heimsins. “ Jafnvel Hkr. sem fannst kvennfrelsis
baráttan á Englandi í fyrra-haust og meöferö lögreglunnar á
foringjum liennar hlœgileg og enda makleg, sér ekkert hlœgi-
legt viö meöferöina á Mrs, Pankhurst f síðustu fréttum sem
hi'in flytur um það mál. Mrs Pankh. er þó ein af foringjum
kvennréttindamálsins,—var það í f\'rra og er enn, og þetta
upphlaup, sem Hkr. getur nú um, var út úr pólitiskum skœr-
um. En nú var Mrs- Pankhurst að vinna fyrir afturhalds-
flokkinn. Gjöra má ráð fyrir að liann launi henni liðveizl-
una, þegar hún næst sækir mál sitt á náðir ’nans. Þetta
leiðir tíminn í ljós, og eins það, hvernig Heimskringla flytur
þá þær fréttir.
Til skamms tíma var það viðkvœðið hjá þingmönnum
vorum og blaðamönnum, að það borgaði sig ekki aö vera
kvennréttindamaður, —vœri ekki kominn tímitilþess, ogþað
menn, sem prívatlega töldu sig með því.
Ritst- Freyju hefir aldrei hugsað um það, hvort þaö
borgaði sig eða ekki. Hún hefir verið með því og barist fyr-
ir því af því að j>að var og er hennar sannfæring að j:>að sé
Gott inálefni, —að það sé œfinlega tÍmi til aö berjast fyrir
hverju því málefni, sem til heilla horfi, og að maður eigi að
nota tímann til að skapa hugsunarhátt fólksins þeirn málefn-
um í vil.
Nú er kvennréttindamálið farið að ryðja sér til rúms.
Fáir kœra sig um aö vera á móti, og hagfræðingarnir jafnvel
farnir aö gefa í skyn, aö það ,,borgi‘ ‘ sig álíka vel að vera með
því, eins og að yrkja bindindisljóö, [sjá ritd. um ljóð M. M. í
Hkr].
Að j>essi breyting á hugsunarhætti almennings sé ein-
göngu Freyju að þakka, dettur mér ekki í hug að segja, En
hún á góðan þátt í því, —betri og stærri ef til vill en öll hin
vestur- íslenzku blöðin til samans, af j>ví að hún barðist fyrir
því, meðan það átti fáa eða enga formælendur, en marga
óvini oghefir ávalt haldið því vakandi síðan.
Kvennréttindamálið var líka og er aðalmál hennar.
Freyja hefir og flutt eina hina ágœtustu sögu í þarfir