Helgarpósturinn - 21.11.1985, Blaðsíða 3
FRÉTTAPÖSTUR
íslenska skipafélagið kaupir eignir Hafskips.
Hafskip hf. fékk á mánudag heimild til þriggja
mánaða greiðslustöðvunar, en áður en sú
heimild var veitt, stofnaði stjórn félagsins nýtt
skipafélag, íslenska skipafélagið hf., sem keypti
skip Hafskips og aðrar eignir sem tilheyra ís-
landssiglingum þess. íslenska skipafélagið
kaupir eignir Hafskips á 625 milljónir króna og
semur síðan við Útvegsbankann um yfirtöku
skulda á móti. Hið nýja skipafélag tók við eign-
um og rekstri á mánudag, en af starfsemi Haf-
skips er Atlantshafssiglingaleiðin eftir en stór
hluti skulda Hafskips er til kominn vegna þeirr-
ar starfsemi.
Kjaramálaályktun þings VSHÍ: kaupmáttar-
trygging.
Allar tillögur kjörnefndar um fulltrúa í stjórn
og varastjórn Verkamannasambands íslands
voru samþykktar mótatkvæðalaust á 12. þingi
sambandsins um helgina. Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður Dagsbrúnar var endur-
kjörinn formaður til næstu tveggja ára, og Karl
Steinar Guðnason formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur var endurkjörinn vara-
formaður. í kjaramálaályktun þingsins segir
m.a. að VSMÍ geri kröfur um kaupmáttartrygg-
ingu og bætt lífskjör og sé reiðubúið til viðræðu
um nýjan kjarasamning án þess að gera kröfur
um að gamla visitölukerfið verði aftur upp tek-
ið. Ástand, þar sem allt er í reynd verðtryggt
nema launin, verði ekki þolað.
Okurlánamálið: fjölmargir hafa játað.
Allt bendir til að tala þeirra sem verða yf irheyrð-
ir vegna okurlánamálsins fari yfir hundrað áð-
ur en yfir lýkur. Bannsókn er nú í fullum gangi,
en þó má gera ráö fyrir að nokkrar vikur liði áð-
ur en rannsókn lýkur. Pjölmargir þeirra sem
hafa lagt til fé í starfsemina hafa játað aðild
sína. Eins og málið litur út í dag er ljóst að um
200 milljónir króna hafa verið í veltunni hjá
Hermanni Björgvinssyni.
Xalsverðar skemmdir á Urriðafossi.
Urriðafoss slitnaði frá bryggju á Grundartanga
í óveðrinu á föstudag og rak skipið upp í fjöru.
Beynt var að ná því aftur á flot samdægurs en
aðstæður voru erfiðar vegna veðurofsans. Tölu-
verðar skemmdir urðu á botni skipsins. T.d.
hafa tveir af eldsneytistönkum skipsins rifnað
og svartolía og gasolía sem í þeim var lekið i sjó-
inn. Skipið liggur nú við Sundahöfn.
Hólmfríður Karlsdóttir kjörin „Miss Worid“.
Á miðvikudagskvöld bar Hólmfríður Karlsdótt-
ir 22 ára fóstra úr Garðabæ fulltrúi íslands í
keppninni Ungfrú alheimur sigur úr býtum og
var hún þegar krýnd þeirri kórónu sem titlin-
um fylgir að viðstöddu fjölmenni í Boyal Albert
Hall í London. Sigur Hólmfríðar hefur vakið
mikla athygli víða um heim. Pyrir keppnina
höfðu augu manna beinst mjög að henni og er
nær dró keppninni fóru ýmsir aðilar og veð-
bankar að veðja á sigur hennar.
Orkumál: 240 milljónir í nýframkvæmdir.
í umræðum á Alþingi um lánsfjáráætlun i síð-
ustu viku viðurkenn.di Þorsteinn Pálsson fjár-
málaráðherra að ætlunin sé að Landsvirkjun
fjárfesti í nýjum orkumannvirkjum fyrir 240
milljónir á næsta ári, þrátt fyrir þá gífurlegu
umframorku sem i landinu er.
188% aukning gjaldþrotabeiðna í Reykjavík.
Gjaldþrotabeiðnir i Beykjavik hafa aukist gífur-
lega á síðustu árum. Þess eru dæmi að fólk lendi
í þessu vegna okurlána en athyglisvert er að nú
eru tegundir krafna mun fjölbreyttari. Sem
dæmi um fjölda má nefna að árið 1981 voru
gjaldþrotabeiðnirnar 195 en allt útlit er fyrir að
þær verði yfir 700 á þessu ári. Fari sem horfir
verður aukningin í valdatíð rikisstjórnar Stein-
gríms Hermannssonar um 185%. Flestar beiðn-
irnar eru gerðar á hendur einstaklingum.
Frumvörp um verðbréfaviðskipti og dráttar-
vexti væntanleg.
Matthías Bjarnason, ráðherra bankamála,
kunngerði í utandagskrárumræðu á Alþingi á
þriðjudag að stjórnarfrumvarp um verðbréfa-
viðskipti yrði lagt fram á Alþingi fyrir jól. Það
felur i sér að leyf i ráðherra þurfi til að reka verð-
bréfaviðskipti og að slik leyfi verði háð skilyrð-
um. Unnið er að frumvarpi til breytinga á lögum
um dráttarvexti. Ný lög um viðskiptabanka og
sparisjóði ganga í gildi um næstu áramót. Bráð-
lega verður lagt fram frumvarp að nýjum seðla-
bankalögum. Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra
upplýsti að seld spariskírteini ríkissjóðs frá
áramótum fram til 8. nóv. sl. næmu 81% inn-
leystra bréfa, svo útstreymi úr ríkissjóði væri
meira en innstreymi vegna spariskírteina.
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
sagði 55% þess fjármagns, sem lánað væri í pen-
ingakerfinu, erlent.
Játningar liggja fyrir í amfetamínmálinu.
Fjórmenningunum sem handteknir voru vegna
amfetaminsmyglsins á dögunum hefur verið
sleppt úr gæsluvarðhaldi og liggja játningar fyr-
ir. Auk þeirra er sambýliskona eins þeirra við-
riðin málið. Þau hafa viðurkennt að hafa gert til-
raun til aö smygla 520 grömmum af amfetamíni
til landsins um borð í togurunum Breka og
Karlsefni.
Fréttamolar.
• Nýi Laugavegurinn var formlega opnaður sl.
laugardag við mikla viðhöfn. Af lokinni ræðu
Davíðs Oddssonar borgarstjóra hófust aðal-
hátíðarhöldin; hljómsveitir, brúðuleikhús, ný-
listamenn og karnivaluppákomur í góðri
stemmningu að viðstöddu miklu fjölmenni.
• Sigurður Guðmundsson myndlistarmaður
sem starfað hefur i Hollandi sl. ár var á þriðju-
dag sæmdur sænsku Prins Eugen orðunni fyrir
list sína. Áður hafa þrír íslenskir listamenn
fengið þessa orðu, þeir Kjarval, Erró og Einar
Jónsson.
• Mikið hvassviðri gekk yfir landið um helgina.
Víða fuku járnplötur af húsum og talsvert
eignatjón varð af þeim sökum.
• Jón Páll Sigmarsson lyftingakappi varð í öðru
sæti í keppninni „Sterkasti maður heims“ sem
haldin var í Portúgal i síðustu viku. Geoff Capes
sigraði hann naumlega.
• Hjálparstöð fyrir börn og unglinga, sem eiga
við vanda að stríða vegna neyslu fíkniefna, verð-
ur opnuð í Beykjavík í byrjun desember á veg-
um Bauða kross íslands.
• Júgóslavinn Marjan Zak, sem starfar sem bar-
þjónn á Naustinu, hlaut um helgina hæsta vinn-
ing i sögu íslenskra getrauna. Hann var sá eini
sem hafði 12 rétta og fékk kr. 1.349.710.
• í síðustu viku lést á Borgarspítalanum í
Beykjavik fyrsti sjúklingurinn af völdum AIDS
hér á landi. Hann hafði þjáðst af því sem lækna-
vísindin nefna forstigseinkenni AIDS.
SMARTSKOT
Er Þjóðminja- og
Listasafn íslands
hriplekt?
Geir Björnsson
„Það er leitt til þess að vita að ég þurfi að svara þessari
spurningu játandi þar sem þetta hús geymir dýrmætustu minj-
ar íslandssögunnar og muni sem eru svo nátengdir okkar sjálf-
stæði. Þar af leiðandi yrði það tjón aldrei bætt ef illa tækist til
og verulegur skaði yrði á þessum munum vegna leka. Margvís-
legt tjón hefur hlotist af því hvað húsið var illa byggt, það er
stríðsframleiðsla, getur maður sagt."
— Og fulinægjandi endurbætur hafa aldrei verið gerð-
ar á húsinu?
„Nei. Það hefur svo sem ýmislegt verið gert en þær fram-
kvæmdir hafa ekki nýst nógu vel. Það litla fjármagn sem hefur
fengist til viðgerða hefur fyrst og fremst farið í það að troða í
götin. Þess vegna er þarna um að ræða margra áratuga upp-
safnaðan vanda Lekinn stafar bæði frá þaki og gluggum og
eyðileggur svo margt annað. Hér var t.d. æði fullkomið raka-
kerfi sem er nauðsynlegttil að halda svona hlutum í góðu horfi
en það eyðilagðist fyrir löngu og síðan hefur ekki verið til pen-
ingur til að endurnýja það."
— Hafa orðið skaðar á verkum?
„Ekki beinir skaðar. Starfsfólkið hefur lagt í það ómælda
vinnu að forða munum frá skemmdum. Mér hefur skilist að
það hafi mestmegnis gert það í þegnskylduvinnu."
— Og hvað gerðist svo í óveðrinu um helgina?
„Það var svo sem ekkert frábrugðið því sem hér hefur gerst
á hverju ári annað en það að starfsfólk Listasafns sem er til húsa
á efstu hæðinni þurfti að bjarga Kjarvalsmálverkunum undan
ágjöf og einnig þurfti að bjarga ýmsum munum Þjóðminja-
safnsins á neðri hæðum hússins. Gluggarnir voru lengi vel að-
altjónvaldurinn en þeir voru endurnýjaðir fyrir nokkrum árum.
Eftir að Þór Magnússon tók við hér hafa fjármunir mestmegnis
farið í að bæta vinnuaðstöðu starfsfólks. Á meðan hefur ekki
verið hægt að eyða miklu fé í viðhald. En jafnvel þótt allri fjár-
veitingunni væri varið til viðhalds myndi það engan veginn
duga til."
— Hvað telur þú að þurfi að gera við húsið svo vel
verði?
„Fyrst og fremst þarf að endurnýja þakið að miklu leyti. Það
er dýrt verk því það er úr kopar."
— Hvað er áætlað að viðgerðirnar myndu kosta?
„Ég heyrði það eftir verkfræðingnum okkar, Sveini Torfa,
sem hefur verið okkar hægri hönd og gefið margar góðar
ábendingar og skýrslur, að til að gera húsið fokhelt þyrfti u.þ.b.
18 milljónir."
— Og nú hefur fjárveiting til nýja listasafnsins verið
skorin niður um 20 milljónir þannig að flutningurinn
frestast?
,^Já, þau voru farin að hlakka til að komast í annað húsnæði
og við til að geta tekið eitthvað af þeim munum sem eru í
geymslu út um allan bæ og bætt þeim við hér. Margir af þeim
munum eru geymdir í lélegu húsnæði, þannig að þeir eru í jafn-
mikilli hættu og þeir munir sem hér eru geymdir, því miður."
— Hversu háa fjárupphæð fær safnið fyrir næsta ár til
viðhalds?
„1,4 milljónir. Það dugir skammt. Af þeirri fjárhæð fara 400
þúsund til uppbyggingar nýs öryggiskerfis. Svo er annað sem
ég vil gjarnan minnast á. Hér uppi er hleðslugler í gluggum sem
er ansi mikið verk að endurnýja. Þeir eru mjög farnir að gefa sig
og springa. Glerin eru u.þ.b 15 sm á þykkt og 20 á kant. Það
safnast vatn í þessar rúður og þær springa annað hvort út eða
inn. Inni á Listasafninu falla þessi gler úr sex metra hæð niður
á gólf. Það er náttúrulega ekki forsvaranlegt að hafa fólk þar
undir þegar frost eru og þessar rúður springa. Það gæti hæg-
lega valdið lífshættulegu slysi. Síðan er stétt meðfram húsinu
og ef rúðurnar springa út þá falla þær úr yfir tuttugu metra
hæð. Ég get því ekki séð annað en ef á að halda þessari stofnun
opinni þá þoli viðhald hennar ekki lengri bið."
— Hafa einhver glerjanna þegar sprungið?
„Já, þau hafa fallið niður bæði að utan- og innanverðu. Að-
búnaðurinn er lífshættulegur og kominn fram úr öllu velsæmi.
Það er undarlegt hversu sinnulaus stjórnvöld eru í þessum efn-
um, eins mikið og þeim er í mun að sýna safnið erlendum þjóð-
höfðingjum."
Geir Björnsson rafvirkjameistari er umsjónarmaður Þjóðminja- og Lista-
safns islands á horni Hringbrautar og Suðurgötu. Um helgina komst
mikill leki að húsinu {óveðrinu sem geisaði. Með snarræði starfsfólks
safnanna tókst að bjarga Kjarvalsmálverkum og ýmsum fornum minj-
um frá skemmdum. Geir hefur verið umsjónarmaður safnanna f tvö ár
en áður hafði hann haft umsjón með raflögnum byggingarinnar frá
upphafi.
UÓSMYND JIM SMARt
HELGARPÓSTURINN 3