Helgarpósturinn - 21.11.1985, Qupperneq 7
„TIL AÐ KOMA í VEG FYRIR STÓRSLYS"
FORRAÐAMENN
HAFSKIPS
AJUNDI
JANKASTJORNAR
UTVEGSBANKANS:
VILDU SELJA
HAFSKIP UM
JÓLIN í FYRRA
leftir Halldór Halldórsson mynd: Jim Smart
Hingad til hafa Útvegsbankinn og
Hafskip ekki viljad gefa upp ná-
kvœmar tölur um skuldir Hafskips.
Eftir því, sem Helgarpósturinn
kemst nœst nema skuldir Hafskips
um einum milljardi króna, þegar
reiknad er með tapi af Nordur-Atl-
antshafssiglingunum, sem hafa
gengid mjög brösuglega frá upphafi.
En hver svo sem skuldin er, þá er
orðið morgunljóst, að Hafskip er
sokkið. Helgarpósturinn varpaði
þessari spurningu fram í byrjun júní
á sl. sumri ogþá var henni harðlega
neitað og raunar var staðhœfing
okkar um það, að Hafskip vœri á
hausnum, kölluð atvinnurógur.
Hafskip hf. hótaði aö stefna blað-
inu. Nú er hið sanna að koma i Ijós.
Strax í kjölfar greinar HP var mál-
ið tekið fyrir í bankaráði Útvegs-
bankans, sem hafði lánað Hafskipi
á þeim tíma 260 milljónir króna um-
fram veð.
Raunar er það svolítið athyglis-
vert, að tveimur dögum áður en
grein Helgarpóstsins birtist átti
bankastjórn Utvegsbankans fund
með Björgólfi Guðmundssyni for-
stjóra, Ragnari Kjartanssyni stjórn-
arformanni og fjármálalegum fram-
kvæmdastjóra Hafskips um
greiðsluáætlun fyrirtækisins. f fram-
haldi af þeim fundi skrifaði banka-
stjórnin Hafskipi bréf þar sem segir,
að bankastjórnin ,,vill þegar á þessu
stigi leggja á það áherslu að verði
ekki framvegis staðið við að yfir-
dráttur myndist ekki á hlaupareikn-
ingi Hafskipa hf. umfram heimildir
lítur bankastjórnin svo á að sam-
komulag um viðskipti við Ú.l.sé rof-
ið afhálfu forráðamanna félagsins".
Þá óskar bankastjórnin, í sama
bréfi, eftir tillögum félagsins um
endurskipulagningu erlendra lána
þess sem miði að því að þau verði í
skilum á næstunni.
Þannig er bankastjórnin farin að
setja Hafskipi stólinn fyrir dyrnar
áður en HP birtir staf um laka stöðu
fyrirtækisins, og þar að auki kemur
fram, að bankinn telur þess kost i
júní, að kleift sé að koma skipan á
greiðslur erlendra lána „á næst-
unni“.
Fyrrnefnda athugasemdin bendir
til þess, að Hafskip hafi fengið ofan-
ígjöf, en hin sýnir að bankastjórnin
hefur alls ekki gert sér grein fyrir
umfangi hinna vondu mála, sem
bankinn var kominn í vegna Haf-
skips.
Bréfaskipti, skýrslur og fundir
Hafskips hf. og Útvegsbankans
leiða margt skemmtilegt í Ijós. Á
skrá Útvegsbankans er þetta rakið í
27 liðum.
í bréfi um Atlantshafsflutningana
er skýrt frá áformum um að Norður-
Atlantshafssiglingarnar hefjist
formlega 15. október og sagt, að
áætlanir sýni hreinan hagnað á bil-
inu 1—3 milljónir dollara á ári. En í
bréfinu, sem er dagsett 3. október í
fyrra, er þó þessi fyrirvari: „Allir
samningar hafa að leiðarljósi að
unnt verði að draga í land með
skömmum fyrirvara." HP sýndi í
grein um þessar siglingar, að Haf-
skip tapaði á þeim, eins og allir aðr-
ir. Það hefði því verið betra, ef þeir
hefðu dregið í land með skömmum
fyrirvara, þegar ljóst var, að um tap-
rekstur væri að ræða og framtíðin
svört. Á þetta bentu starfsmenn fyr-
irtækisins og urðu óvinsælir fyrir
vikið.
I framhaldi af þessu ríkir mikil
bjartsýni um Norður-Atlantshafs-
siglingarnar. Þó dró ský fyrir sólu í
BSRB-verkfallinu.
En skyndilega er komið allt ann-
að hljóð í strokkinn. Þann 17. des-
ember í fyrra var haldinn annar
fundur bankastjórnar og forráða-
manna Hafskips. Þar sögðu Haf-
skipsmenn: „Nú er svo komið að
meiriháttar uppstokkunar er þörfá
heimavelli." Og í framhaldi af þess-
ari óvæntu yfirlýsingu leggja Haf-
skipsmenn fram tillögur í tveimur
liðum:
1) Semja við Eimskip um íslands-
siglingar.
2) Stofnað verði sameiginlegt fyr-
irtæki um T.A. (Norður-Atlants-
hafssiglingarnar).
Og við þetta er bætt eftirfarandi at-
hugasemd frá Hafskipsmönnum:
„Ekki réttlœtanlegt að halda lengur
áfram að óbreyttu."
En um jólin hafa Hafskipsmenn
hvílzt vel og fengið gott að borða,
því á fundi 8. janúar með banka-
stjórn Útvegsbankans er tónninn
gjörbreyttur. Þar var skýrt frá stjórn-
arfundi í Hafskipi og síðan sagt orð-
rétt: „Dyrunum hefur verið hallað
aftur“ í viðræðum við Eimskip.
„Málið ekki nógu þroskað." (sic!) Og
síðan fylgdu tillögur um nýtt hluta-
fjárútboð upp á 80 milljónir kr., hag-
ræðingu í rekstri, m.a. með því að
selja Laxá og Langá og loks stefnt að
eflingu Norður-Atlantshafssigling-
anna, sem þó var sífellt verið að
vara forráðamennina við.
'Ef við lítum aðeins nánar á þetta
kemur í ljós, að Hafskipsmenn hafa
gert sér grein fyrir, að nú syrti í álinn
og kalla þyrfti á Eimskip til hjálpar.
Um leið sýnist svo sem bankastjórn-
in hafi ekki áttað sig á stöðu mála. Á
þessum fundi sátu fyrir hönd Haf-
skips Ragnar Kjartansson, Björgólf-
ur Guðmundsson og Páll Bragi Krist-
jónsson fyrrverandi fjármálastjóri,
„sem kominn var á bólakaf í vitleys-
una, en hljóp frá borði um leið og
færi gafst,“ eins og einn heimildar-
maður Helgarpóstsins orðaði þetta.
En áfram með samskipti Útvegs-
banka og Hafskips.
í lok janúar fær bankastjórn
skýrslu um afkomuhorfur fyrir árið
1984 og áætlun fyrir 1985. Þá var
áætlað tap 1984 á milli 50 og 60 millj-
ónir króna (varð opinberlega í árs-
skýrslu tæpar 100 milljónir króna)
HELGARPÓSTURINN 7