Helgarpósturinn - 21.11.1985, Síða 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea J. Matthíasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steinþór Ólafsson
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimastmi: 74471)
Afgreiðsla:
Berglind Björk Jónasdóttir
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Sigur HP og nýi
pappírsbáturinn
i júníbyrjun á þessu ári varp-
aði Helgarpósturinn fram þeirri
spurníngu hvort Hafskip væri
að sökkva, og undirbyggði þá
tilgátu í greinargóðri og vand-
aðri umfjöllun. Þeim skrifum
var svarað með ofstæki af hálfu
skipafélagsins, og stjórnarsam-
þykkt aðalfundar að stefna rit-
stjóra og Ijósmyndara. Allir ís-
lenskir fjölmiðlar birtu við-
brögð Hafskipsmanna með
miklum uppslætti en ekkert
blað, og hvorki útvarp né sjón-
varp, gerði sjálfstæða tilraun til
að kanna málið og rannsaka
hvort eitthvað væri til í staðhæf-
ingum Helgarpóstsins. Blaðið
stóð eitt uppi. En Helgarpóstur-
inn gafst ekki upp. Málið var
unnið áfram og unnið til hlítar á
íslandi, í Bandaríkjunum og
víða um Evrópu. í fjölmörgum
greinum í sumar og haust hefur
Helgarpósturinn flett skipulega
ofan af lygum forráðamanna
Hafskips. Allt það sem Helgar-
pósturinn hefur verið að segja á
síðustu mánuðum hefur reynst
rétt. Og nú keppast fjölmiðlar
við að segja frá hruni skipafé-
lagsins og málið er tekið upp á
Alþingi.
Svarið við forsíðuspurningu
Helgarpóstsins þ. 6. júní er
komið: Hafskip er sokkið. Og
nú er reynt að dylja botnsigl-
ingu skipafélagsins með stofn-
un pappírsfyrirtækis með DV-
kóngana Svein R. Eyjólfsson
og Hörð Einarsson í fararbroddi
en þeir eru skyndilega orðnir
stórvinir Sambandsins.
Það er öllum þenkjandi
mönnum Ijóst, að þótt stofnun
fyrirtækisins sé talin lögleg
samkvæmt lagabókstaf, er
þarna á ferðinni algjört siðleysi
gagnvart öllum þeim sem Haf-
skip skuldar fé, og þá einkum
erlendum aðilum. Og yfir þenn-
an skollaleik leggur ríkisbank-
inn Útvegsbanki blessun sína.
Það sýnir best hve mikil ör-
vænting hefur gripið um sig í
bankanum. Nú skal allt reynt til
þess að pólitískt skipaðir
bankastjórar og pólitískt skipað
bankaráð haldi andlitinu þótt
þeir séu búnir að missa niður
um sig.
En víst er að sitthvað á eftir
að koma í Ijós þótt eitt hlut-
verka hins nýja skipafélags sé
að fela bókhald Hafskips hf.,
því þar er hinn Ijóti sannleikur
falinn. Og þá erum við ekki að
tala um maðk í mysunni heldur
maðkaveislu í mysunni.
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
Um Hermann Másson og Gudberg Bergsson
„Bráðum koma jólin“; mælti vitur
maður forðum og hlaut heimsfrægð
fyrir og offjár að launum. Síðan hafa
skáld, heimspekingar og bóhem
víða um jarðir haft þessi fleygu orð'
að leiðarljósi, einkum þó er jólin
nálgast. Rísa þá á menningarfram-
leiðendum hin ýmsustu tippi, þar á
meðal bókaútgefendum. Bækur
verða vinsælar upp úr þurru og mik-
ið húllumhæ á sér stað um heims-
byggð alla. Keppist hver útgefandi
og rithöfundur um að gera vöru sína
sem boðlegasta markaðnum og er
litlu til sparað.
Einni bók hefur öðrum fremur
tekist að slá í gegn á innsíðum dag-
blaða borgarinnar. Ég á við Frosk-
mann Hermanns Mássonar. En í því
tilfelli er það ekki bókin sjálf sem
mesta athygli vekur, heldur hin kyn-
lega nánast kynferðislega dula sem
umlykur höfundinn, líkt og þari,
skeljar, dauðir krabbar, kúkar og
klósettpappír umlykja hafmeyjar,
hverjar við sjáum aldrei nokkurn
tíma vegna þessa.
Höfundur kveðst vera undir sterk-
um áhrifum Rolands nokkurs Barth-
es, strúktúralísks textakafara, sem
því miður kemst aldrei upp á grunn-
sævið þar sem hafmeyjarnar baða
sig allsnaktar upp úr löðri. Roland
er líka jafn fjarri því að spyrja „por-
uque pas“ og ísbirnir eru fjarri mör-
gæsum. Hann hefði í mesta lagi
spurt „pourque" eða bara sleppt því
alveg. Hér eru því maðkar á sveimi
í mysu.
Athygli mína vakti Ijósmynd er
líktist óþægilega Guðbergi nokkr-
um Bergssyni á hátindi gelgjuskeið-
is síns á kápu umræddrar bókar.
Hvað átti fyrsta flokks skallapoppari
uppá dekk á bókarkápu yngsta og
athyglisverðasta ungskáldsins? A
mig runnu tvær grímur, önnur kóm-
ísk, hin ekki. Þriðja gríman grómleit
mjög, híaði framan í heiminn er ég
steig oná bók Gubba, Hermann og
DíDí fyrir tilviljun oní kjallara á dög-
unum.
Upp rann ljós, ég minntist hinna
mörgu hermanna sem læðst hafa
mismunandi pukurlega um síður
bókanna hans Gubba í gegnum ár-
in. Þvílík hugmynd, þvílíkt trikk,
þvílíkur snillingur ertu Guðbergur,
það má segja. Látum vera þó Kurt
Vonnegut, Volesjin hinn rússneski
og fleiri hafi uppgötvað trikkið fyrir
löngu, það spillir ekki. Maðurinn
nærist jú á umhverfi sínu. En að
hugsa sér Guðberg Bergsson tala
um klofstykkislausar hafmeyjar á
rómantískan hátt, er næsta óhugs-
andi.
En trikkið hans hefur sennilega
heppnast, bókin hefur hlotið sína at-
hygli (um það vitnar þessi grein), til-
ganginum er náð. En peningaþefur-
inn er óbærilegur, hreinræktuð
Ioðnustybba, hálfu verri en kúka-
lykt. Ég óska þó froskmanni þínum
ekki hægrar drukknunar í loðnuþró,
slíkt væri ósæmilegt. Ég vona samt
af heilum hug að hún DíDí reyni
ekki að sanna sjálfstæði sitt, sem
kona, og gerist frægur rithöfundur á
einni nóttu um næstu jól.
Vonandi ekki, því við sjáum í
gegnum þig helvítið þitt Guðbergur
og kvikindishátt þinn og Davíðs og
alls íhaldsins og kapítalísk vinnu-
brögð ykkar, þó froskmaðurinn
gangi laus. Hann fær að ösla loðnar
leirurnar loðinn um lófana og rakur
upp í klof við ætisleit, til hverrar
hann var jú skapaður. En svona
mynd fá þeir á sig sem nálgast íhald-
ið um of og taka upp á því að grýta
steinvölum úr glerturni með glott á
vör.
Þú ert skallapoppari Guðbergur
og því verður ekki bjargað fyrir
horn með svo döpru sölutrikki að
lífga eina af þreyttustu persónum
þínum við líkt og gerðist með
Frankenstein forðum, og að hleypa
henni síðan æpandi frjálsri út í þá
hömlulausu ofneysluorgíu sem nú
fer í hönd og á ekkert frekar skylt
við Jesús Jósefsson en þú, Guðberg-
ur Bergsson átt skylt við ungskálda-
hópinn sem þú óður og uppvægur
vilt troða þér í. Þú hefur ekki fundið
upp neitt yngingarmeðal, því miður.
Taktu því þessu heilræði Guðbergur,
farðu beina leið í steininn, þú færð
engar tvö þúsund krónur þótt þú
farir yfir byrjunarreitinn, mundu
það.
Þannig lýk ég þessum pistli.
R.Ó.
(Freyr Þormódsson)
„Fátt er svo
meö öllu illt,
aö ekki boöi
nokkuð gott“
Fátt hefir vakið meiri gagnrýni al-
þjóðar á undanförnum áratugum en
hin skefjalausa útþensla bankakerf-
isins. Er nú svo komið að fleiri eru
við störf í peningabúðum en við sjó-
sókn. A síðustu árum hafa ráðandi
ríkisstjórnir haft uppi nokkra til-
burði til þess að ráða bót á þessari
ráðleysu. A áttunda áratugnum
starfaði nefnd valinkunnra sæmdar-
manna á vegum þáverandi ríkis-
stjórnar að því að leita leiða til að
fækka bönkum, en án árangurs.
Þegar Matthías Matthiesen varð
ráðherra bankamála vorið 1983
skipaði hann nýja nefnd til að semja
frumvarp til nýrra bankalaga, þar
sem fækkun banka með samein-
ingu væri ofarlega á blaði. Þetta
nýja frumvarp til bankalaga var af-
greitt sem lög á síðasta þingi og öðl-
ast gildi um næstu áramót. Ekki
náðist samkomulag um fækkun
banka, en þó mun hafa komið til tals
sameining Búnaðarbanka og Út-
vegsbanka. Nú virðist í augsýn sjálf-
virkur samdráttur í bankakerfinu,
þar sem þekkt skipaútgerð er á
góðri leið með að sigla Útvegsbank-
anum í strand.
LAUSNA
SKÁKÞRAUT
23. Mátin standa í röð og bíða eftir
svarti: 1. —c6 2. Rb6, 1. c2 2.
Dxc2, 1.—H- 2. Bb5. Það er aðeins
einn leikur sem ekki leiðir til máts,
1. —dc5, og þá er að bjarga því:
1. Ha4 dc5 2. b5 mát. Hin mátin
eru óbreytt.
24. Hér er svipaða sögu að segja: 1.
—Ka4 2. Rc3,1.-Kc4 2. Ra3,1.-Kxa6
2. Rxc7. Það er aðeins 1—Kxc6 2.
Rd4 sem ekki er mát og auðvelt að
bæta úr því:
1. Bh3.
Yrðu þá ríkisbankarnir aðeins
tveir, eins og margir hafa talið nægi-
legt. Með þessu gæti ríkið loks leyst
að stórum hluta húsnæðismál
Stjórnarráðsins, með því að fá mikið
skrifstofuhúsnæði við Lækjartorg.
Vonandi verður þetta tækifæri
ekki látið ónotað. Eins og fyrir fáum
árum þegar ríkið fór að styrkja
sama banka með milljónaframlög-
um til fleiri ára, í stað þess að leggja
hann þá þegar niður.
Til eru þeir menn, sem ekki mega
hugsa til þess að Útvegsbankinn
verði iagður niður. Núverandi ráð-
herra bankamála Matthías Bjarna-
son sagði í ræðustóli á Alþingi 14.
þ.m., að ef Útvegsbankinn yrði lát-
inn hætta störfum myndi öll útgerð
í stærsta útgerðarbæ landsins, Vest-
mannaeyjum, leggjast niður, því þar
væri hann eini bankinn. Minna má
það ekki kosta. Það átti með öðrum
orðum að verða meira áfall fyrir
Vestmannaeyinga að missa Útvegs-
bankann, en að fá yfir sig eldgosið
1973, þegar allir urðu að flýja eyj-
arnar. Þó var útgerð Eyjaskipa þá
haldið áfram af fullum krafti til ver-
tiðarloka, þó við erfiðar ástæður
væri að fásL
Nei, sól Útvegsbankans má alls
ekki ganga til viðar þótt tímabund-
inn sólmyrkvi hafi orðið.
Vakri Skjóni hann skal heita . ..
þó að meri það sé brún.
Þegar íslandsbanki lokaði útibúi
sínu í Vestmannaeyjum 1. febr. 1930
eftir að það hafði verið starfrækt frá
1919 sendi Landsbankinn þegar
Hilmar Stefánsson til Eyja og hann
einn annaðist alla bankafyrir-
greiðslu til vertíðarloka. Voru þá
gerðir þaðan út uppundir hundrað
vélbátar.
Ekki held ég að það hafi heidur
hamlað útgerð og uppbyggingu á
Seyðisfirði þó Landsbankinn yfir-
tæki fyrir nokkrum árum útibú Út-
vegsbankans þar. Fjárfesting bank-
anna í útibúum hér í Reykjavík og
úti á landi hefir verið gegndarlaus.
T.d. hafa fjórir bankar útibú í Kefla-
vík til viðbótar öflugum sparisjóði.
Bankarnir hafa Ieikið það, að gleypa
sparisjóði dreifbýlisins, svo heima-
menn hafa orðið ómyndugir um
ráðstöfun eigin fjármuna.
Eins og alþjóð er kunnugt eru
bankastjórar með kauphæstu
mönnum landsins. Og . hafa auk
fastra launa rífleg fríðindi til margra
átta. Þeir hafa vísitölutryggðan líf-
eyrissjóð, án þess að þurfa að greiða
tillag til hans, frían síma og eru þar
á sama bási og öryrkjar og einstæð
gamalmenni með fulla tekjutrygg-
ingu. Þá eru ótalin bifreiðahlunn-
indi. Almenningur hrökk við á sið-
asta vori þegar upplýst var að
bankastjórar ættu að fá 450 þúsund
krónur á ári í bíiastyrk, til þess að
komast í vinnu og úr. Svo mikil um-
ræða hófst í fjölmiðlum um þetta
mál að það var tekið til umræðu á
Alþingi. Og var látið heita svo að
þessu styrkjaformi yrði breytt. En
trúlega til lítillar skerðingar.
Þessi háu laun og hlunnindi eru
réttlætt með því að þessir menn hafi
svo mikla ábyrgð. En hver er hún?
Ekki bæta þeir skakkaföllin úr eigin
vasa. Og hver er ábyrgð Seðlabank-
ans? Þessa stóra hjarta fjármálanna,
sem allar lífæðar bankakerfisins
iiggja til. Á hann ekki ásamt banka-
eftirlitinu að sjá til þess að reglur um
lánveitingar séu haldnar? Sam-
kvæmt síðustu fréttum skuldar Haf-
skip h/f Útvegsbankanum yfir 700
millj.
Er það látið afskiptalaust að ein-
um aðila séu lánuð hundruð millj-
óna, án fullgildra trygginga, á sama
Athugasemd
Það er alvörumál að vera kennd-
ur við okurmál. Þannig hafa tveir
prýðismenn í miðbænum, báðir
rakarar, haft samband við HP og
óskað eftir því, að fram kæmi í blað-
inu, að þeir hefðu hvergi komið ná-
lægt okurlánum. í okurlánagrein í
síðasta blaði var einn í „potti"
Hermanns nefnilega rakari, með
köflum að vísu. Þeir sem óskuðu
þess, að við tækjum fram, að þeir
tíma og „litla manninum" er neitað
um lágt víxillán gegn margfaldri
tryggingu, með hinu hefðbundna
svari bankastjóra. „Engir peningar
til.“ Hefur Útvegsbankinn áður
tengst vafasömum viðskiptum? Lít-
um til baka um tæpa tvo áratugi.
Fyrir réttum 19 árum, um miðjan
nóvember 1966, upphófst hið svo-
nefnda Jörgensensmál. Þá hrópuðu
allir fjölmiðlar hátt um það, að hér
væri uppkomið svo stórfellt misferli
í gjaldeyrisviðskiptum að slíks væru
engin dæmi hér á landi. En hvað
skeður? Jörgensensmálið er að
velkjast í dómskerfinu í þrettán ár,
en löngu áður en því lauk með
hæstaréttardómi og eftir að löggiltir
endurskoðendur voru búnir að
vinna í því árum saman fyrir hundr-
uð þúsunda, var ríkissaksóknari
neyddur til að afturkalla ákæruna
um gjaldeyrisbrot. Vegna hvers?
Þáverandi ráðamenn bankans
höfðu gert svo á sig í viðskiptum við
Jörgensen, að þeir hefðu ekki slopp-
ið heilskinna frá máiinu, ef það
hefði gengið rétta boðleið í dóms-
kerfinu.
En allir aðilar undir huliðshjálmi
Frímúrarareglunnar.
Sigurjón Sigurbjörnsson
hefðu hvergi komið nálægt okurlán-
um, eru þeir Páll Sigurðsson rakari í
Eimskipafélagshúsinu og svo Sig-
urður Runólfsson í Hafnarstræti 8.
Hafi þessir menn orðið fyrir óþæg-
indum biðjumst við velvirðingar á
því. — Þá hefur þeim tilmælum ver-
ið beint til okkar, að þess væri getið
í HP, að Guðmundur Eiðsson frá
Þúfnavöllum í Hörgárdal, fyrrver-
andi útibússtjóri Búnaðarbankans í
Stykkishólmi sé ekki sá útibússtjóri
sem HP hefur nefnt í sambandi við
okurmál Hermanns Björgvinssonar.
10 HELGARPÓSTURINN