Helgarpósturinn - 21.11.1985, Síða 11
næstu helgi er farið að segja til sín í
fjölmiðlum. Flestöll blöð lands-
manna eru yfirfull af auglýsingum
frá frambjóðendum sem ýmist
„minna á sig“ eða segja frá afrekum
sínum og mannkostum. Morgun-
blaðið er yfirfullt af greinum eftir
frambjóðendur til prófkjörs þar sem
þeir reifa ýmis mál og málefni af
óvenju miklu innsæi og gáfum.
Margir minna á starf sitt og stöðu og
telja það gefa þeim sjálfsagðan rétt
til kjörs í ákveðin sæti. Mörgum
manninum brá a.m.k. í brún þegar
hann las auglýsingu frá Magnúsi L.
Sveinssyni þar sem stóð skýrum
stöfum: „Við minnum á, að 2. sætið
er sæti forseta borgarstjórnar" og í
framhaldi af því: „Kjósum því Magn-
ús L. Sveinsson, forseta borgar-
stjórnar í 2. sætið.“ Þessi auglýsing
hefur farið heldur betur fyrir brjóst-
ið á hinum frambjóðendunum og
vakið almenna furðu og jafnvel
hneykslan, því 2. sætið er alls ekki
frátekið fyrir forseta borgarstjórnar,
enda þyrfti Magnús L. þá ekki að
fara í prófkjörsslag yfirhöfuð. HP vill
minna á, að Albert Guðmundsson
hafnaði í 3. sæti í prófkjörinu 1981
en varð engu að síður forseti borgar-
stjórnar. Og þá viljum við ennfrem-
ur minna á að Magnús L. hefur að-
eins verið forseti borgarstjórnar í 5
mánuði af 41 mánuði sem er eðlileg-
ur valdatími forseta borgar-
stjórnar...
c
C^Ftofnfundurinn um Samtök
nm gamla miðbæinn, sem haldinn
var síðastliðinn fimmtudag, var helst
til einlitur að því er mörgum fannst.
Reyndar hefur HP heyrt honum lýst
sem framboðsfundi fyrir prófkjör
Sjálfstæðisflokksins vegna borgar-
stjórnarkosninga á næsta ári, en
fyrir utan Davíð Oddsson sem
fundarstjóra á staðnum voru tveir
aðalræðumanna fundarins þeir
Árni Sigfússon og Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, báðir frambjóðend-
ur fyrir kjörið um helgina. Fundar-
ritari var síðan Ásgeir Hannes
Eiríksson pylsusali og helsti hvata-
maður að þessum fundi ekki ódygg-
ari sjálfstæðismaður en Guðlaugur
Bergmann í Karnabæ.. .
l „framboðsræðunum" á þessum
stofnfundi var lögð rík áhersla á þrjú
atriði sem gætu glætt lífið í mið-
borginni. Eitt þeirra var að fjölga
íbúum hverfisins, annað að breikka
gangstéttir á svæðinu og það þriðja
að auka bílastæði þess. Margir
heimsborgaranna á fundinum
hristu hausinn þegar þeir heyrðu
þessar tillögur, minnugir þess í
hvaða borgum Evrópu mesta götu-
lífið er; París, Róm, Köben, Amster-
dam. í fáum borgum heims er jafn
mikið bílastæðahallæri og einmitt í
þessum fjórum borgum og miðbæj-
arlífi þeirra líkt við kaos af flestum
sem um þær fara. í borg á borð við
Stokkhólm hinsvegar, þar sem
drjúgur hluti miðbæjarins hefur
verið jafnaður við jörðu fyrir bíla-
stæði og breiðari gangstéttir, er
götulífið með eindæmum fábrotið.
Og Brasilía, dauðasta borg heims að
margra mati, var fyrst og fremst
byggð með þarfir bíla og gangandi í
huga.. .
s_ _
á Akureyri, Tryggvi Gíslason, hef-
ur verið ráðinn í stöðu deildarstjóra
á deild 1 á skrifstofu norrænu ráð-
herranefndarinnar í Kaupmanna-
höfn frá og með fyrsta apríl á næsta
ári að telja, en deild þessi annast
samvinnu Norðurlandanna á sviði
menningar- og skólamála, fjölmiðl-
unar og endurmenntunar. Það var
Halldór Ásgrímsson samstarfs-
ráðherra norrænna málefna í ríkis-
stjórn Steingríms Hermannsson-
ar sem gekk frá ráðningunni, en
Tryggvi er sem kunnugt er fram-
sóknarmaður. Þetta er í fyrsta skipti
sem íslendingur hlýtur deildar-
stjórastöðu á skrifstofu norrænu
ráðherranefndarinnar. Þess má líka
geta að einn af fyrirrennurum
Tryggva í þessu starfi er Ivar Eske-
land, en hann tók við þessu emb-
ætti eftir að hann hætti hérlendis
sem fyrsti forstöðumaður Norræna
hússins í Vatnsmýrinni. . .
^f^^lienn eru strax að
velta því fyrir sér hver muni verða
eftirmaður Tryggva Gíslasonar í
embætti skólameistara á Akureyri
eftir að hann heldur til Köben. Eftir
því sem HP heyrir þykir einna lík-
legast að núverandi konrektor
menntaskólans, Jóhann Sigur-
jónsson, hreppi stöðuna. Jóhann
mun vera hallur undir Sjálfstæðis-
flokkinn í svipuðum mæli og Sverr-
BÍLALEIGA
REYKJAVIK:
AKUREYRI:
BORGARNES:
VÍÐIGERÐI V-HÚN.:
BLÖNDUÓS:
SAUÐARKRÓKUR:
SIGLUFJÖRDUR:
HÚSAVÍK:
EC'.ILSTAÐIR:
VOPN AFJÖRDU R:
SEYDISFJÖRDUR:
FÁSKRÚÐSF'JÖRÐUR:
HÖFN HORNAFIRDI
91-31815/686915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4Í50/4568
95-5884/5969
96-71498
96-41940/41594
97-1550
97-3145/3121
97-2312/2204
97-5366/5166
97-8303
interRent
ir Hermannsson menntamálaráð-
herra sem mun skipa í stöðuna þeg-
ar þar að kemur. Annar innanbúð-
armaður í M.A. hefur reyndar líka
verið orðaður sem næsti skóla-
meistari á brekkubrúninni nyrðra
og er hann líka íhaldsmaður. Hér er
átt við Guðmund Heiðar Frí-
mannsson heimspeki- og ensku-
kennara.. .
n
agblaðið NT skýrði frá því í
síðustu viku að Guðna Baldurs-
syni formanni samtaka homma og
lesbía á fslandi hefði verið meinað-
ur aðgangur að Loftleiðasundlaug-
inni af ótta starfsfólks hennar og
fastagesta við að hann væri haldinn
AIDS. HP getur upplýst að Guðna
hefur nú borist formleg afsökunar-
beiðni frá forráðamönnum hótels-
ins vegna þessa máls. í bréfinu, sem
er undirritað af Einari Olgeirssyni
hótelstjóra, er Guðni beðinn vel-
virðingar á þeim óþægindum sem
hann varð fyrir og honum jafnframt
boðið að sækja sundlaugina og sam-
hliða þjónustu eftirleiðis eins og ekk-
ert hafi í skorist. ..
^^^^^iklar líkur eru á því að
sjónvarpið hefji fasta starfsemi á
Akureyri, jafnvel þegar frá áramót-
um. Ýtir það vafalaust undir þetta,
að þegar er vitað um að minnsta
kosti tvo aðila í bænum sem í alvöru
hafa kannað möguleika á grenndar-
sjónvarpi ásamt gervihnattamót-
töku eftir að ný útvarpslög taka
gildi. Talið er að það muni verða
Erna Indriðadóttir fréttamaður
meðal annars við svæðisútvarpið
sem veita muni þessari fyrirhuguðu
starfsemi forstöðu. Af svæðisútvarp-
inu er það annars heist að frétta að
innan skamms mun hefja þar störf
Haukur nokkur Ágústsson guð-
fræðingur að mennt og kennari á
Laugum. Sá er eiginmaður Hildu
Torfadóttur sem lengi hefur unnið
við dagskrárgerð hjá RÚVAK. Sem-
sagt: Fjölskyldurnar á fullu, sam-
kvæmt gömlum góðum útvarps-
hefðum. . .
eir eru lævísir Bandaríkja-
mennirnir á Miðnesheiði og landar
þeirra í sendiráðinu við Laufásveg-
inn. Fyrir mörgum árum rituðu
þjóðkunnir íslenskir menningar-
jöfrar undir plagg, þar sem andmælt
var amerísku hermannasjónvarpi
á íslandi. Það var tekið úr sam-
bandi. Nú, mörgum árum síðar, hafa
þessi sjónvarpsmál fallið í sama far-
ið. Málavextir eru þeir, að efni kana-
sjónvarpsins er sent frá Keflavíkur-
flugvelli í gegnum jarðstöðina
Skyggni og geislanum beint í átt að
bandaríska sendiráðinu til þess að
starfsmennirnir geti skemmt sér við
efni frá Bandaríkjunum. Sá böggull
fylgir þó skammrifi, að kleift er að
ná geislanum frá Skyggni í Breið-
holti, Árbæ, Hlíðunum, Þingholtum
og hluta af Kópavogi. Samkvæmt
þessu geta tugþúsundir íbúa á
Reykjavíkursvæðinu horft á kana-
sjónvarpið. Ekki vitum við hvort ís-
lenska sjónvarpið hefur orðið vart
við þessa óvæntu samkeppni. . .
||
H H já Verslunarráði eru í vænd-
um mannabreytingar. Kjartan
Stefánsson, sem verið hefur blaða-
fulltrúi ráðsins ku vera á leið upp í
Ármúla til þess að ritstýra Frjáisri
verslun. Margir urðu til þess að
sækja um blaðafulltrúastarfið enda
mun það vera nokkuð vel borgað. Á
lokasprettinum eru nú einir fimm
umsækjendur og það skondna við
það er, að tvö þessara eru fjandvin-
irnir úr Bandalagi jafnaðarmanna,
Kristófer Már Kristinsson og
Jónína Leósdóttir...
BÖRN í BÍLUM
ÞURFA VÖRN
RÁÐGJAFAR
STÖÐfi
HÚSNÆÐISSTOFNUNAR
Húsnæðisstofnun ríkisins hefur komið á fót sérstakri Ráðgjafarstöð.
Við stöð þessa, og í tengslum við hana, starfa sérfróðir menn
á öllum þeim sviðum, er snerta byggingarframkvæmdir og húsnæðiskaup.
HLUTVERK:
Að veita þeim einstaklingum ráðgjöf sem hafa hug á að eignast húsnæði.
VIÐFANGSEFNI m.a.:
Að aðstoða við gerð áætlana um fjármögnun.
Að reikna út greiðslubyrði fólks og gjaldþol.
Að miðla tæknilegum fróðleik.
Að gefa góð ráð til sparnaðar og aukinnar hagkvæmni vegna kaupa
eða byggingar húsnæðis.
MARKMIÐ:
Að húsnæðiskaupendur geti náð settu marki
án þess að reisa sér hurðarás um öxl.
KAPP ERBESTMEÐ FORSJÁ
o&Húsnæðisstofnun ríkisins
LJ LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVÍK
Flutt í Brautcarholt 3
(MJÖLNISHOLT 14)
Sýnum 86 línuna í innréttingum
frá r INVtTA í nýju húsnæöi
ELDASKÁLINN
Nóatún
BRAUTARHOLTI 3 • NYTT SIMANUMER: 621420
HELGARPÓSTURINN 11