Helgarpósturinn - 21.11.1985, Síða 12
lins og fram kemur í viðtali á
bls. 3 við Geir Björnsson, húsvörð
Þjóðminja- og Listasafns fslands,
komst mikill leki að húsinu í óveðr-
inu sem geisaði um síðustu helgi. En
það var fráleitt í fyrsta skipti sem
slíkt gerist því ástand hússins hefur
verið mjög slæmt í áratugi. Ástand-
ið er langverst í Listasafninu þar
sem það er til húsa á efstu hæð
byggingarinnar. Þar stendur nú yfir
sem kunnugt er sýning á verkum
meistara Kjarvals.
Starfsfólk Listasafnsins veit gjörla
af gamalli reynslu hvar vatn kemur
helst niður í salarkynnum safnsins
og því fór það strax á stúfana eftir
hádegi á.föstudag og tók niður þær
myndir sem voru í hættu. Um kvöld-
ið var vatn svo farið að fossa inn í
bókstaflegum skilningi og regnhljóð
barst að eyrum Köriu Kristjáns-
dóttur deildarstjóra safnsins þegar
hún kom sérstaklega kl. 7 um kvöld-
ið til að kanna ástandið. Milli 7 og 10
þurfti hún t.d. að tæma eina vatns-
fötuna tvisvar því hún fylltist svo
ört. Þá greip starfsfólk safnsins til
þess ráðs að vaða polla og taka nið-
ur allar myndir í austursölunum og
auk þess nokkrar myndir í hliðarsöl-
unum. Það var því snarræði þess að
þakka að engin Kjarvalsmynd
skemmdist.
Það er "fyrst og fremst þak Þjóð-
minjasafnsins sem er ónýtt, mjög
mikið vatn kemur inn á þakplötuna
þegar rignir og það hefur verið að
leka inn í sali Listasafnsins frá föstu-
degi og fram á þriðjudag og hefur
það náttúrlega verið lokað þann
tíma.
Á föstudag mætti sjónvarpið á
staðinn og myndaði fossandi regnið
í salarkynnum Listasafns íslands en
af einhverjum ástæðum var upp-
takan ekki send út. Kannski hefur
lekinn ekki þótt nógu fréttnæmur
fyrst tókst að bjarga listaverðmæt-
unum frá skemmdum. Einungis var
minnst á lekann í síðari fréttatima
sjónvarpsins á föstudagskvöid.
Núverandi ríkisstjórn hafði lofað
að verklok nýja listasafnsins yrðu
um mitt ár 1986 og átti að heita svo
að fjárveiting næsta árs, 35 milljónir
króna, ætti að vera hundrað ára
afmælisgjöf til Listasafnsins og þá
jafnframt þjóðarinnar í heild.
Stjórnin hefur greinilega tekið af-
mælisgjöfina til baka því nú er áætl-
að að skera fjárveitinguna niður um
15 milljónir eins og annað í menn-
ingargeiranum. Því er ljóst að verk-
lok verða ekki á næsta ári.
Þór Magnússon þjóðminjavörð-
ur kallaði á mann frá embætti húsa-
meistara ríkisins og fjárlaga- og hag-
sýslustófnun og verkfræðingur kom
og kannaði húsakynnin. Þessir að-
ilar hafa gert kostnaðaráætlun og
samkvæmt henni kostar a.m.k. 18
milljónir að gera þannig við húsið
að það haldi veðrum og vindum.
Þar sem ástand hússins er svo slæmt
sem raun ber vitni er öll frestun sem
verður á flutningi ákaflega bagaleg.
Bón- og þvottastöðin hf.
Sigtúni 3,
Sími 14820.
Bón- og þvottastöðin hf.
Sigtúni3
AUGLYSIR: **
Bifreiðaeigendur, vitið þið að það tekur aðeins 15 mínútur að
fá bílinn þveginn og bónaðan, ótrúlegt en satt.
Ath. eftirfarandi:
Móttakan er í austurenda hússins, þar er
bíllinn settur á færiband og leggur síðan af
stað í ferð sína gegnum húsið. Eigendur
fylgjast með honum.
Fyrst fer bíllinn í hinn ómissandi há-
þrýstiþvott, þar sem öll lausleg óhrein-
indi, sandur og því um líkt, eru skoluð
af honum, um leið fer hann í undir-
vagnsþvott. Viðskiptavinir eru mjög
ánægðir með þá þjónustu, því óhrein-
indi safnast mikið fyrir undir brettum
og sílsum.
Síðan er hann þveginn með mjúkum burst-
um (vélþvottur), þar á eftir kemur hand-
þvotturinn (svampar og sápa). Hægt er að
sleppa burstum og fá bílinn eingöngu
handþveginn.
Næst fer bíllinn í bónvélina og er þar
sprautað yfir hann bóni og síðan herði.
Að þessu loknu er þurrkun og snyrt-
ing.
8 bílar eða fleiri geta verið í húsinu í einu,
t.d. einn í móttöku, annar í háþrýstiþvotti,
þriðji í handþvotti o.s.frv.
Bíll, sem þveginn er oft og reglulega,
endist lengur, endursöluverð er hærra
og ökumaður ekur ánægðari og
öruggari á hreinum bíl.
Tíma þarf ekki að panta.
Þeir sem koma með bílinn sinn í fyrsta
skipti til okkar undrast hvað margt
skeður á stuttum tíma (15 minútum).
Verkfræðingurinn sem kallaður var ráðamönnum landsins virðist
til telur að í hvert skipti sem rigni standa á sama þótt mestu menning-
þurfi að taka verk safnsins niður í arverðmæti þjóðarinnar séu geymd
öryggisskyni því leki getur komið í hripleku húsi og liggi nánast undir
að safninu hvenær sem er. En for- skemmdum allan ársins hring. . .
JOLAFAKGJOLD
Sto
KVcbO
Os\ó
Til London helgarferðir - vikuferðir
brottför mánudaga eða föstudaga
Verð frá 18.234.- (vikuferð)
frá 13.922.- (helgarferð)
faiandi
Vestunjötu 5, tel. 17445
VEITINGAHUS
AMTMANNSSTÍG 1 REYKJAVÍK SÍMI 91-13303
FIMMTUDAGS- OG
SUNNUDAGSKVÖLD
12 HELGARPÓSTURfNN