Helgarpósturinn - 21.11.1985, Side 19
ing Verkamannasambands-
ins sem haldið var um sl. helgi var
með flestu stórtíðindalaust. Allir
voru sjálfkjörnir í stjórn og vara-
stjórn mótatkvæðalaust. Þetta fór
reyndar eins og flestir höfðu spáð
sem til bræðralagsins og samtrygg-
ingarinnar þekkja í VMSI. Þó var
undirólga og þá einkum í hinni
þriggja manna kjörnefnd sem sat
sveitt við að stilla upp lista um
stjórnarrrienn og grynnka á ölduróti
meðal landssambanda og fjórð-
ungssambanda sem gætu leitt til
kosninga um einstaka menn. Það
munaði þó litlu, að Jón Kjartans-
son, formaður Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja yrði endurkjörinn
sem gjaldkeri sambandsstjórnar-
innar. Jón hefur verið mjög um-
deildur maður og vinsældir hans
farið nokkuð þverrandi. Var búið að
leita að tveimur mönnum sem hugs-
anlegum frambjóðendum í hans
stað, einum frá Siglufirði og öðrum
frá Þorlákshöfn. En þegar til kom,
hafði hvorugur áhuga á gjaldkera-
stöðunni, og enginn annar fékkst til
þess að fara fram gegn Jóni. Segja
menn að Jón Kjartansson hafi
sloppið með skrekkinn, því fullvíst
er talið að ef annar mannanna hefði
boðið sig fram, hefði Jón fallið í
kjöri...
D
Hm.ithöfundar erumargir hverj-
ir farnir að gefa út verk sín sjálfir
enda þykjast þeir bera meira úr být-
um á þann hátt en að láta forlögin
annast útgáfuna. Mörg skáldin hafa
tekið upp á nýstárlegum auglýsinga-
brögðum til að vekja áhuga almenn-
ings á hugverkum sínum. Sá frum-
legasti mun þó vera Hafliði Vil-
helmsson sem gefið hefur út nýja
skáldsögu eftir sig er nefnist „Beyg-
ur“ og við höfum áður sagt lítillega
frá. Hafliði hefur nefnilega látið
prenta fjórar valdar blaðsíður úr
sögu sinni á plastpoka sem liggja
frammi í ákveðnum matvöruversl-
unum. Þannig geta húsmæður og
aðrir kaupendur matvæla dundað
við að lesa brot úr skáldsögu Hafliða
í strætó eða einkabílum á leiðinni
heim. Er þetta ekki annars upplagt
fyrir Ijóðskáld. . .
||
I já Ríkisútvarpinu hefur ver-
ið tekin ákvörðun um útgáfu innan-
hússfréttablaðs. Á árum áður mun
slíkt blað hafa verið gefið út og
raunar annars konar útvarpstíðindi.
Umsjónarmaður fréttablaðs útvarps
og sjónvarps verður Baldur
Óskarsson skáld og fréttamaður
um margra ára skeið. Hann hefur
óskað eftir því að verða leystur und-
an fréttamannsstarfinu og þótti því
kjörið að fela honum þetta verkefni.
Ekki er okkur kunnugt um hvenær
fyrsta tölublaðið kemur út. . .
A
H^Hlmenningsóttinn við al-
næmissjúkdóminn AIDS er nú tek-
inn að gera illilega vart við sig hér-
lendis. En sem betur fer hefur þessi
fjöldahystería sínar broslegu hliðar
eins og sótthreinsun almennings-
vagna SVR á dögunum bar með sér.
Og nú eru gárungarnir farnir að
spauga með þennan háalvarlega
sjúkdóm. Við heyrðum þessa gátu
um daginn: Hvað er sameiginlegt
með AIDS og Skoda? Veistu ekki
svarið? Jú, það er auðvelt að ná sér
í hann en alveg vonlaust að losna
við hann. ..
SKIPSTJÓRNARMENN ATHUGIÐ!
Það getur valdið mörgum hugarangri og kvíða þegar skip heimilisföðurins er beðið að tilkynna sig strax
til næstu strandstöðvar Landssíma fslands.
REYNSLAN SÝNIR AÐ EKKERT KEMUR I VEG FYRIR SLYS Á SJÓ NEMA
ÁRVEKNI, DÓMGREIND OG KUNNÁTTA SJÓMANNA SJÁLFRA.
ÖRYGGISMÁLANEFND SJÓMANNA midas
HELGARPÖSTURINN 19