Helgarpósturinn - 21.11.1985, Page 20
ÍNRÍíikill urgur er í mörg-
um verkalýðsfélögum sem eiga
landspildur og hús í orlofsbyggð
verkalýðsfélaganna í Svignaskarði.
Hin nýja orlofsbyggð, þar sem Iðja
og fleiri verkalýðsfélög hafa byggt
bústaði sína og reka sameiginlega
undir einu rekstrarfélagi, hefur yfir
að ráða þjónustumiðstöð sem nú er
að mestu risin. Um þessa þjónustu-
miðstöð stendur mikill styrr. Málið
er þannig vaxið, að verkalýðsfélög-
in höfðu gert ráð fyrir fundarher-
bergi og annarri þjónustuaðstöðu í
húsinu en í ljós hefur komið að þjón-
ustumiðstöðin er eiginlega stórt
baðhús. Flestir bústaðanna hafa aft-
ur á móti engin böð eða sturtur og
eru menn mjög óhressir með að
þurfa að rölta upp í þjónustumið-
stöð til að skella sér í sturtu þegar lít-
ið mál hefði verið að tengja fyrir
böð í húsunum. í þjónustumiðstöð-
inni er ennfremur mikil og góð íbúð
fyrir forstöðumann miðstöðvarinn-
ar og líta margir svo á að þarna sé
risið nokkurs konar einbýlishús
með fjöldasturtum. Arkitekt að mið
stöðinni er Jón Ólafsson en for-
maður stjórnar rekstrarfélags
Svignaskarðs er Guðmundur Þ.
Jónsson, formaður Landssam-
bands iðnverkafólks og nýlegur fall-
kandidat í miðstjórn Aiþýðubanda-
lagsins. Guðmundur hefur þótt
einkar ósveigjanlegur og einræðis-
legur í vinnubrögðum sínum við
byggingu þjónustumiðstöðvarinnar
og vilja margir kenna honum um að
byggingin sé orðin eins og hún er.
Þó gekk gjörsamlega fram af mönn-
um nýverið þegar lögð var fram
kostnaðaráætlun fyrir rekstrar-
félagið og kom í ljós að áætlunin
hafði orðið helmingi meiri en gert
hafði verið ráð fyrir í upphafi.
Reiddust margir forráðamenn
verkalýðsfélaga og harðneituðu að
taka þátt í þessari vitleysu og mikla
kostnaði. Lauk þessu máli á þann
veg að tveimur aðilum var falið að
kanna öll þessi mál til hlítar og
hvernig á þessum háa kostnaði og
mistökum gæti staðið. Hinir tveir
aðilar eru Gudmundur Hilmars-
son formaður félags bifreiðavirkja
og Pétur A. Maack hjá Verslunar-
félagi Reykjavíkur. Guðmundur Þ.
Jónsson mun vera mjög óánægður
með þessi málalok en umsjónar-
maður staðarins, Þórhallur
Björnsson frá Akranesi mun hins
vegar vera mjög ruglaður á þessu
uppistandi öllu því flestir aðilar eru
upp á kant og leita til hans með öll
sín vandræði...
■ lötuútgáfan fyrir jólin mun
vera nokkuð minni en í fyrra. Búist
er við um 70 LP-plötum íslenskum
og verða flestar þeirra gefnar út af
einkaaðilum. I fyrra og hitteðfyrra
var fjöldinn rösklega hundrað plöt-
ur en dreifðist útgáfa þeirra á nokkr-
ar vikur fyrir jól. Nú mun hins vegar
útlit fyrir að plöturnar komi út á
sama tíma; nokkrum dögum fyrir
jól. Talið er að um 80—90% af þess-
um plötum hreinlega standi ekki
undir sér í þessari hörðu samkeppni
á fáum dögum...
ESinn þeirra sem verður með
plötu á jólum er grínistinn og leikar-
inn Þórhallur Sigurðsson, öðru
nafni Laddi. Plata hans sem kemur
út á næstu dögum heitir „Einn voða
vitlaus" og er samansafn af nýju og
gömlu glens- og grínefni. Þar eru
margar frægar gamlar persónur
eins og Eiríkur Fjalar og fleiri, en
einnig eitthvað um nýja, alþjóðlega
karaktera, t.d. Tarsan apabróðir og
James Bond. Þá mun Laddi einnig
syngja söng um bjórlíkið sem vænt-
anlega verður útfararsöngur. ..
^^^ttir úr tónlistarheiminum:
Breytingar munu væntanlegar á
hljómsveitinni Mezzoforte. Bassa-
leikarinn Jóhann Amundsson
mun vera á förum frá hljómsveitinni
og ku ástæðan vera sú, að hann vilji
helga sig meira fjölskyldunni. Ekki
er enn búið að finna nýjan bassa-
leikara .en við heyrum að hans sé nú
leitað logandi ljósi...
B
W/0 ókaforlagið Svart á hvítu er
um margt sérstætt. Eins og fram hef-
ur komið [ fréttum sendir forlagið
frá sér Islendingasögurnar í
tveimur rúmlega þúsund síðna
bindum núna um mánaðamótin.
Hlálegt verð safnsins var ákveðið
löngu áður en farið var að vinna
verkið á fullum dampi, en það
skyldi verða krónur 2450 í venju-
legu bandi, hvort bindið fyrir sig. Nú
mun hinsvegar vera komið í ljós, að
því er HP hefur heyrt, að kostnaður
við vinnslu bókanna sé að æða fram
úr öllum áætlunum og verði allt að
tveimur milljónum meiri en upphaf-
lega var talið. Er haft fyrir satt að ná-
kvæmni fræðinganna sem annast
framsetningu textans og færslu yfir
á nútímamál sé það óskapleg að
jafnvel hafi hálfu dagarnir farið í að
komast að réttri kommusetningu
einstakra setninga, en þetta sé ein af
ástæðunum fyrir kostnaðarhækk-
uninni við undirbúning verksins.
Ætla mætti að forlagið þyrfti að
hækka verð íslendingasagnanna í
samræmi við þessa útgjaldaaukn-
ingu. Og vissulega þarf það þess, en
ætlar bara ekki að gera það. Eftir því
sem HP heyrir telja forráðamenn
þess sig hafa skuldbundið sig gagn-
vart þeim aðilum sem þegar hafa
pantað bindin á upphaflega gefnu
verði. Verðinu verði því ekki hagg-
að, en þess freistað í staðinn að selja
bara fleiri bindi svo útgáfan geti
staðið undir kostnaðaraukanum.
Þetta er sannarlega gleðifrétt á vor-
um verðbólgnu tímum...
TRYGGJUM
ATHAFNA-
MANNINUM
ÞÓRI
LÁRUSSYNI
ÖRUGGT SÆTI í
BORGARSTJÓRN
SkrifstQfa okkar í Síöumúla
29 — er opin alla virka daga
kl. 14 - 22 ® 34425 & 82314
Stuðningsmenn
... að fenginni reynslu á
störfum Þóris Lárussonar —
innan og utan
Sjálfstæðisflokksins —
lýsum við okkar fyllsta
stuðningi við hann í
væntanlegu prófkjöri, sem
fram fer í Reykjavík 24. og
25. nóv. nk.
ÞÓRI í
BORGAR
STJÓRN
20 HELGARPÓSTURINN