Helgarpósturinn - 21.11.1985, Blaðsíða 32
ið heyrðum það á dögunum,
að nú væri leitað dauðaleit að 100
gámum frá Hafskipi sem ekki hafa
komið fram af einhverjum sökum.
Leit var gerð hérlendis og í leitirnar
komu víst 4 eða 5 gámar vestur á
fjörðum. Það síðasta, sem við á HP
heyrðum um málið, er að Interpol
sé komið í þetta og leiti nú gámanna
ákaft. . .
A
ríkisstjórnarfundi á þriðju-
dagsmorgun ákvað stjórnin að lagt
yrði fram frumvarp á Alþingi þess
efnis, að ákvörðunarvald um veit-
ingu vínveitingaleyfa yrði tekið úr
höndum dómsmálaráðherra (og um
leið úr höndum áfengisvarnanefnd-
anna hans Jóns Helgasonar) og
fæTt til sjálfra sveitarstjórnanna. Svo
iffa vildi til, að þetta væntanlega
stjórnarfrumvarp er bæði hugmynd
og verk Jóns Baldvins Hannibals-
sonar formanns Alþýðuflokksins.
Þannig var nefnilega, að Jón Bald-
vin var með frumvarp þessa efnis í
höndunum fyrir allnokkru en ætl-
aði að fá meðflutningsmenn á frum-
varpið úr stjórnarflokkunum. Þess
vegna talaði hann við Friðrik
Sophusson Sjálfstæðisflokki og
Stefán Gudmundsson Framsókn-
arflokki. Þeir Friðrik og Stefán
höfðu frumvarpið í höndunum í
viku. Stefán kynnti efni þess í þing-
flokki Framsóknar og Friðrik kynnti
það meðal sinna manna. Það var
svo ekki fyrr en eftir heila viku, sem
Friðrik lét Jón Baldvin vita af nýrri
„vinnureglu" meðal stjórnarsinna.
Hún gengur út á það, að stjórnar-
þingmaður má ekki flytja mál án
þess að tilkynna það þeim ráðherra,
sem fer með viðkomandi mála-
flokk. Þannig komst ríkisstjórnin í
þingmál Jóns Baldvins. En hann
fékk pata af þessu á þriðjudag og
var því ekki seinn að skila sínu
frumvarpi inn á miðvikudags-
morgni og skaut þar með ríkis-
stjórninni ref fyrir rass, og hún er
þar að auki búin á ríkisstjórnarfundi
að lýsa sig samþykka hugmyndinni.
Þannig hlýtur framvarpið að fljúga í
gegnum þingið. . .
A
JI^T^kveðið mun hafa verið að
skipa Guðrúnu Erlendsdóttur
lektor í embætti hæstaréttardóm-
ara frá og með 1. janúar næstkom-
andi. Þá losnar staða Björns Svein-
björnssonar, sem lætur af störfum
sem dómari við Hæstarétt fyrir ald-
urs sakir. Guðrún hefur áður gegnt
dómarastörfum í Hæstarétti sem
settur dómari, en með þessari emb-
ættisveitingu verður hún fyrsti skip-
aði hæstaréttardómarinn af kven-
kyni. ..
l baráttunni um fréttirnar er
gripið til ýmissa ráða. Við heyrðum,
að DV hefði sent ljósmyndara með
drjúga aðdráttarlinsu í Auðbrekk-
una í Kópavogi, þar sem RLR er til
húsa í von um að ná myndum af ein-
hverjum persónum í okurmálinu.
Hallvarður Einvarðsson rann-
sóknarlögreglustjóri mun hafa
reynt að koma í veg fyrir þetta, en
án árangurs. Þá var rætt við Ómar
Vaidimarsson formann Blaða-
mannafélags íslands, en eftir því
sem við vitum best hefur ekki slegið
í brýnu út af þessu máli. . .
^Ri^Íhkill er máttur varnarliðs-
ins. Hinar stórtæku framkvæmdir í
Helguvík munu kosta um 200 millj-
ónir dollara sem eru 8 milljarðar
íslenskra króna. Allt þetta greiðir
Kaninn með bros á vör. Þar að auki
rétta þeir Keflvíkingum heila höfn,
því ákveðið hefur verið að lækka
hafnarbakkann niður í bryggju-
stæði svo Keflvíkingar megi vel
njóta. Til samanburðar má nefna að
íslenska ríkið leggur um 60 milljónir
í allar hafnir landsins. Það er gott að
eiga Kanann að...
K
■ ^^.osningaslagur frambjóð-
endanna í prófkjöri sjálfstæðis-
manna fyrir borgarstjórnarkosning-
ar á næsta ári, minnir æ meira á
bandaríska háttinn í þessum efnum
eftir því sem nær líður kjörinu. Það
verður á sunnudag og mánudag.
Allir frambjóðendurnir sem fara
fram af alvöru, virðast kosta miklu
til, svo þeir nái athygli kjósenda. HP
hefur fyrir satt að yfirleitt verði
áróðurskostnaður manna á bilinu
frá 160 þúsund til 220 þúsund sem
að mestu fer í birtingu auglýsinga í
dagblöðum, svo og útgáfu bækl-
inga, en þeir eru allt að því prentað-
ir í fjórlit í sumum tilvikum. Tveir
frambjóðendanna skera sig þó
nokkuð úr hvað þennan útlagða
kostnað snertir. Það eru þeir Árni
Sigfússon, einn nýliðanna í kjör-
inu, og Júlíus Hafstein sem freistar
þess nú í þriðja sinn að ná öruggu
sæti fyrir flokkinn í borgarstjórn.
Talið er að kostnaður Árna vegna
framboðsins verði ekki undir 300
þúsundum, enda maðurinn næsta
ókunnugt andlit í augum flestra
kjósenda flokksins að undanskild-
um Heimdellingum. Kostnaður Júlí-
usar mun þó slá öllu við, en hann
verður líkast til eitthvað innan við
fjögur hundruð þúsund þegar upp
verður staðið á laugardagskvöldið.
Að minnsta kosti tveir frambjóðend-
ur hafa ráðið til sín launaða starfs-
menn á skrifstofu sína og er Júlíus
annar þeirra, en Katrín Fjeldsted
hinn...
D
■ ■kæða Alberts Guðmunds-
sonar vegna Útvegsbankamálsins á
þingi um daginn hefur vakið mikla
athygli. Þykir mönnum „hreinsun-
arræða" hans hafa verið með ólík-
indum og í kjölfarið hefur Albert
áunnið sér nýtt nafn: Engilbert...
l^eir af áhrifameiri hluthöfum í
Hafskipi hf. eru Sveinn R. Eyjólfs-
son og Hörður Einarsson hjá
Frjálsri fjölmiðlun hf„ en það hlýtur
meðal annars að vera skýringin á
undarlegum fréttaflutningi DV af
Hafskipsmálinu. Sveinn og Hörður
hafa um langt árabil verið einna hat-
römmustu andstæðingar Sam-
vinnuhreyfingarinnar og þá einkan-
lega sjálfs SÍS. Þessvegna eru menn
farnir að tala um það sem meirihátt-
ar pólitískan sigur fyrir Sambandið
fái Skipadeild SIS borgið Hafskip og
myndað með því nýtt skipafélag í
raunhæfri samkeppni við Eimskip.
Eftirleiðis yrði nefnilega fréttaflutn-
ingur DV af SÍS-veldinu að vera allur
annar og þokkalegri en hann hefur
verið til þessa, enda væru það
minnstu þakkir sem Sveinn og
Hörður gætu fært Sambandinu fyrir
greiðann...
Cross gullsjálfblekungurinn
er verðtnœtasti Crosspenni sem fœst á íslandi.
Oddurinn og penfiinn sjálfur eru húðaðir
meo 14 karata gulli.
Penninn kostar
10.238 krónur úl iír búó.
Síríus Gullið
er verðmesta rjámasukkulaði sem slei/pl er
hjá Nóa Síríus.
Uppskriftin er gamalreynd, hráefnin fyrsla flokks
og Guílið fœst bœði sem hreint rjómasúkkulaði
oq með hnetum, rúsínum,
rice crispies eða hnetum og rúsínum.
Gullið kostar innan við
60 krónur úl úr búð.
Veldu íslenskt...
ef það er betra !