Helgarpósturinn - 20.03.1986, Blaðsíða 18
Stjörnuspeki eda astrólógía er
jafngömul mannkynssögunni.
Framan aföldum var hún óumdeit-
anlega talin til vísinda, jafnvel œdst
á medal jafningja. A okkar tímum
eru skiptar skodanir á stjörnuspeki.
Sumir líta á hana sem frœdigrein
jafnvel listgrein í stöðugri þróun,
aðrir telja hana hreina hjátrú. Eigi
að síður hafa vinsœldir hennar auk-
ist mjög eftir því sem liðið hefur á
þessa öld, einkum á þann veg að
fólk leitar til svokallaðra stjörnu-
spekinga annaö hvort í eigin per-
sónu eða í gegnum blöð og tímarit,
og biður þá um að draga upp fyrir
sig stjörnukort og spá síðan um
framtíðina út frá því. Með tölvuvœð-
ingunni hafa meira að segja sprottið
upp stjörnuspekimiðstöðvar j>ar
sem tölva er látin sjá um alla út-
reikninga ogjafnvel spár. Ein slík er
starfrœkt hér við Laugaveginn.
Eysteinn Björnsson er af mörgum
nefndur „afi íslenskra stjörnuspek-
inga" þótt hann sé aðeins 32 ára
gamalt. HP hefur það eftir áreiðan-
legum heimildum að bœði Gulli í
Stjörnuspekimiðstöðinni og hinn
víðfrœgi galdrakarl, Hilmar Örn,
hafi mjög leitað í smiðju Eysteins
þegar þeir voru að byrja að stauta
sig fram úr stjörnustafrófinu. En Ey-
steinn er ekki einn þeirra sem bera
frœði sín á torg, kýs að stunda þau
í einrúmi, og er meinilla við að
teikna upp stjörnukort fyrir aðra.
Og þótt hann sé sjálfmenntaður á
tölvu og vinni um þessar mundir ó-
fáar stundirnar viö að tölvuvœða
Bóksölu stúdenta, er hann lítt hrif-
inn af tölvuútskrifuðum stjörnu-
spám.
Eysteinn var svo elskulegur að
veita blaðinu viðtal um hinar ýmsu
hliðar stjörnuspeki og teiknaði
meira að segja upp stjörnukort
blaðamanns og las út úr því. Fyrst
var Eysteinn spurður að því hvers
vegna honum væri svo illa við að
draga upp stjörnukort fyrir aðra. Og
að þessu gefna tilefni vilt hann
ítreka aðhann tekur slíkt ekki að sér
fyrir aðra.
„Ástæðan fyrir því að ég tel ekki
gagnlegt að leggja stjörnukort fyrir
fólk svona yfirleitt er sú að grund-
völlurinn sem stjörnuspekin býður
upp á byggist á því að maður tileinki
sér hana sjálfur, vinni úr sínu eigin
korti,“ segir Eysteinn. „Það getur
verið ótrúlega lærdómsríkt og fylgt
manni eftir í gegnum lífið. Smám
saman lærir maður af reynslunni.
Ef ég lendi í einhverju sérstöku
kíki ég á kortið og athuga hvað er að
gerast, skrifa það niður. Síðan gerist
það kannski að eitthvað svipað
hendir mig skömmu síðar og þá
kveiki ég á perunni. Þannig lærir
■maður smám saman, t.d. að þegar
einhver tiltekin stjörnuafstaða kem-
ur upp í kortinu mínu get ég búist
við ákveðnum hlutum. Þetta er sér-
staklega gagnlegt ef um eitthvað
slæmt er að ræða, þá getur maður
búið sig undir það.“
Dagblaða- og tölvu-
astrólógía hæpin
— Hvaða augum líturðu þá
fjöldaframleiddu stjörnukortin sem
spýtast út úr tölvunum?
„Já, nú hefur fólk fengið mynd af
stjörnuspekingi sem situr átta tíma
á dag og talar við fólk. Ef ég ætla að
lesa út úr stjörnukorti einhvers
þannig að ég verði fyllilega ánægð-
ur með það, þarf ég helst hálfan
mánuð, viku í það minnsta. Sá mað-
ur sem tekur viðtöl við 5—6 manns
á dag og ætlar sér að lesa út úr
stjörnukortum þess getur ekki gefið
af sjálfum sér. Hann hlýtur að enda
uppi með frasa, kemur sér upp ein-
hverri rútínu. Hann temur sér á að
giska eitt til tvö hundruð hluti sem
er nokkuð öruggt að hægt er að
segja við alla.
Ætli maður sér að lesa úr korti af
einhverju viti verður maður líka að
vera jákvæður. En það er erfitt að
vera endalaust jákvæður við
kannski tuttugu og fimm manns á
viku sem maður þekkir ekki neitt.
Sumir tala meira en þú kemst sjálfur
til að segja, aðrir segja ekki auka-
tekið orð. Það er ógerlegt að af-
greiða tuttugu og fimm manns á
viku. Úr því verður aldrei annað en
dagblaðaastrólógía.
Það er bara goðsaga að stjörnu-
spekingur geti gert kort að gagni
fyrir fólk sem hann ekki þekkir, og
þá þaðan af síður tölva, þótt hægt sé
að nota hana til að reikna út afstöð-
ur. Frumskilyrðið er að maður hafi
persónuna fyrir framan sig svo að
maður geti að minnsta kosti skynjað
hvernig hún hefur unnið úr tækifær-
um sínum. Þá getur maður reynt að
þreifa fyrir sér og möndlað fortíðina
út frá því. Ef þú ert ekki í viðurvist
manneskjunnar sem á í hlut stoppar
flæðið. Ef stjörnuspekingurinn á að
geta lesið út úr kortinu verður eig-
andi þess að taka fullan þátt í þvi.
Þetta er alveg sambærilegt við
lækni sem er að gera sjúkdóms-
greiningu. Það gengur ekki par vel
ef sjúklingurinn leggur ekkert til
málanna sjálfur.
Til þess að ráða við þessa iðju, að
þylja fyrir fólk, verður maður að
hafa innsýn í mannlega hegðun og
reynslu. Maður fær auðvitað ekkert
út úr tölvu nema það sem maður
hefur matað hana á. Stjörnuspek-
ingurinn getur ekki lesið almenni-
lega út úr korti nema hann þekki
eitthvað til viðkomandi mann-
eskju."
Stjörnuspekin blóra-
böggull margra
— Finnst þér þá að fólk sem leitar
á vit stjörnuspekimiðstöðva líti á
stjörnuspeki og -spár sem hverja
aöra örlagahyggju? Að það vilji láta
lesa út úr stjörnukortinu sínu og spá
fyrir sér vegna þess að það treystir
sér ekki til að taka ákvarðanir um
eigið líf?
„Já. Margt fólk, bæði það sem
stundar stjörnuspeki eitthvað sjálft,
og svo það sem sækist eftir túlkun-
um annarra, hefur gefist upp í
grundvallaratriðum og notar
stjörnuspekina sem hálfgerðan
blóraböggul. Það á til að segja hluti
eins og: Já, Satúrnus kom og eyði-
lagði þetta allt saman. Slíkt er auð-
vitað lítið skapandi til lengdar og
kennir fólki fátt, af því það sér ekki
möguleikana á því að nýta stjörnu-
spekina sér til hjálpar. Vissulega get-
ur Satúrnus stundum verið vondur
og sett strik í reikninginn, en ef þú
veist af því getur það kannski hjálp-
að þér til að bæta úr skák og búið
þig undir næstu komu hans. Ef þú
ert búinn að fylgjast með Satúrnusi
lengi veistu hvernig hann hegðar
sér og kannt að mæta því. Þannig
verður stjörnuspekin eins konar sál-
arspegill.
Við vitum auðvitað ekki hvernig
þetta virkar. Það er af og frá að plán-
eturnar sem slíkar hafi einhver áhrif
á fólk. En það er af einhverjum
ástæðum hægt að fá þetta til að
virka! Guð má vita hvers vegna. All-
ir sem eitthvað fást við stjörnuspeki
hafa sínar hugmyndir um það. En
þér er alveg óhætt að bóka hér og
nú að Júpíter uppi á himninum hef-
ur engin áhrif á það hvernig þér líð-
ur eða hvað kemur fyrir þig. Það er
Júpíter á stjörnukortinu á blaðinu
sem skiptir máli. Þú verður bara að
gera upp við þig sjálf hvers vegna.
En ég veit að þetta virkar. Stund-
um virkar þetta svo vel að það er allt
að því ógnvekjandi. Þá þarf ég að
telja mér trú um að ég sé ekki orð-
inn alveg geggjaður, því rökræni
parturinn af mér veit að þetta getur
ekki virkað."
Stórt, siðferðilegt
vandamál
— Geturðu nefnt mér dœmi um
slíkt?
„Auðvitað er ógnvekjandi að fá
sannanir fyrir því að eitthvert kerfi,
sem engin rök eru fyrir, virkar, kerfi
sem er ekki einu sinni viðurkennt
vísindalega. Það kippir fótunum
undan veruleikaskynjun manns. Ég
veit mörg dæmi þess að vissar af-
stöður valda óþægilegum hlutum:
slysum eða jafnvel ástvinamissi. Ég
hef marg sannreynt það. Síðan rekst
ég á þessar afstöður í korti einhvers.
Það er hryllilegt því ég get auðvitað
ekki sagt: Það á eitthvað hræðilegt
eftir að koma fyrir þig á þessum til-
tekna tíma.
Þetta hefur stórt, siðferðilegt
vandamál í för með sér. Ef fólki sem
kann ekkert fyrir sér í astrólógíu en
trúir samt blint á hana er sagt eitt-
hvað í þessum dúr, getur það ýtt
undir að eitthvað hræðilegt gerist.
Þess vegna vil ég helst ekki leggja
stjörnukort nema fyrir fólk sem ég
treysti.
Fólk vill láta spá fyrir sér og fer til
stjörnspekings. Setjum svo að hon-
um sé i nöp við það. Hann getur
hreinlega eyðilagt líf þess. Ég veit
því miður dæmi þess að fólk hefur
verið miður sín í lengri tíma eftir að
hafa farið til stjörnuspekings. Einni
konu sem ég kannast við hafði t.d.
verið sagt að hún ætti eftir að verða
fyrir einhvers konar slysi á næst-
unni og yrði lengi rúmföst. Konan
lokaði sig inni og þorði varla að
hreyfa sig. Síðan taldist hún heppin
að hitta á annan stjörnuspeking sem
var vingjarnlegri og leit aðeins
öðruvísi á hlutina og þurfti hrein-
lega að sefa hana. Hún var honum
innilega þakklát."
Tóknrænt alheims-
tungumól
— Þú segir að stjörnuspeki sé.lif-
andi og skapandi grein, að maður
eigi að ástunda hana sjálfur en ekki
vera þolandi hennar. Geturðu útlist-
að hana nánar í mjög grófum drátt-
um?
„Það er erfitt, því hún tengist nán-
ast öllum sköpuðum hlutum. Ég lít á
stjörnuspekina sem list fremur en
vísindi og núna er hún í mjög mikilli
framþróun. Hún var endurvakin um
aldamótin og hefur síðan gosið upp
á yfirborðið á síðustu tuttugu árum
eða svo. í dag er hún sennilega á
mesta framþróunarskeiði sem hún
hefur átt frá upphafi. Þó hefur hún
verið til lengi og er móðir allra
hinna vísindanna. En hún féll í
gleymsku, greyið, og átti síðan erfitt
uppdráttar. Ég held að það hafi
fremur verið til góðs en ills að hún
skyldi ekki hafa lent inni í akadem-
íska kerfinu og staðnað þar. Þetta er
grein sem má alls ekki staðna, hún
er svo opin og margir möguleikar í
gangi. Hver og einn sem leggur
stund á hana getur lagt grundvöll-
inn að sinni eigin astrólógíu. Enginn
notar sama kerfið.
Þar við bætist að þetta er einhvers
konar alheimstungumál, í raun og
veru heimsmynd, stafróf til þess að
fá merkingu í hlutina. Þú ert með
stjörnumerkin tólf og pláneturnar
tólf. Svo tekurðu alla hluti sem fyrir-
finnast og flokkar þá niður á plánet-
urnar. Líkamshlutunum er t.d. rað-
að niður á stjörnumerkin: Hrútur-
inn hefur hausinn, Nautið hálsinn,
Tvíburarnir handleggi og herðar
o.s.frv. Þarna eiga atvinnugreinarn-
ar allar sinn stað líka, svo og hugs-
un, tilfinningar, vilji og aðrir þættir
mannssálarinnar. Að Iokum ertu
kominn með risastóra töflu sem
hægt er að skrifa á alveg endalaust,
flokkar niður alla skapaða hluti og
færð táknræn tengsl á milli þeirra.
Þetta er gífurlegt, táknrænt tungu-
mál sem nær yfir bókstaflega allt.
Það er hægt að beita því við hvað
sem er, bókmenntagagnrýni líka, ef
því er að skipta.
Stjörnuspekin hefur haft gríðar-
lega mikið að segja í mannkynssög-
unni. Þú ert ekki bara með tíu plán-
etur heldur líka tíu guði úr grískum
og rómverskum trúarbrögðum
þannig að fjölmargar goðsögur
tengjast hverri plánetu fyrir sig.
Jafnvel þó að stjörnuspekin væri
ekki notuð til að leggja stjörnukort
fyrir fólk þá hefur maður samt í
höndunum mjög stórt og öflugt
tæki, sem á ekki sinn líka. Mér finnst
algjör skömm að hún skuli ekki vera
notuð meira, þetta er alheimstungu-
mál sem hægt er að nota til þúsund
hluta."
— Eins og hverra?
„Jú, þetta aldagamla, þaulreynda
tæki nær yfir alla mannlega reynslu
og túlkar hana á sínu eigin tákn-
máli; það hefur safnað svo mikilli
innsýn í hina mannlegu veröld.
Stjörnuspekin er orðin til við leit
mannsins að merkingu í öllu því
sem fyrir hann kemur. Maðurinn vill
fá sönnun fyrir því að hann sé í nán-
um innri tengslum við veröldina í
kringum sig. Ef maður tileinkar sér
stjörnuspekina getur hún fullnægt
þessari þörf.
Það er víða hægt að nýta sér þetta
geysiflókna kerfi tákna í innbyrðis
tengslum. Nútíma sálarfræði hefur
t.d. mikið gert af því að stela tungu-
máli stjörnuspekinnar til að skil-
greina uppbyggingu mannssálar-
innar og því hvernig ýmsir þættir
hennar virka. Þó að Freud hafi verið
andstæðingur dulvísinda var læri-
sveinn hans, Jung, hliðhollur þeim.
Hann sagði að í stjörnuspeki væri
geymd öll vitneskja fornaldarinnar
um mannssálina. Og ýmsir frum-
kvöðlar raunvísindanna hafa byggt
kenningar sínar á stjörnuspeki, ég
18 HELGARPÓSTURINN
leftir Jóhönnu Sveinsdóttur mynd Jim Smart