Helgarpósturinn - 20.03.1986, Blaðsíða 38

Helgarpósturinn - 20.03.1986, Blaðsíða 38
HELGARDAGSKRÁVEIFAN eftir Sigfinn Schiöth Föstudagurinn 21. mars 19.15 Á döfinni. 19.25 Brúðuleikur. Helga Steffens og Sigga Hannesar skrfkja á bak við tjöld með tuskur á fingrunum. Endursýnt til vonar og vara. . . 19.40 Björninn og refurinn. Grrrrr. . . 19.50 Táknmálið. 20.00 Veðrið (og fréttir kannski). 20.30 Auglýsingar. Og varalitað þulubros með silkiáferð. 20.40 Unglingarnir í regnskógabeltinu. Sonus Gustafae lyftir brúnum. 21.10 Þingsjá. Helgi E. Helga líka. 21.25 Kastljós. Sonja Bé fjallar og fjallar. 22.00 Det Alte. Fyrsti þáttur nýs flokks um Derrick á efri árum eða því sem næst og þó all fjarri, því hér er um allt annað dítektív að ræða, en þýskan . . . ich glaube. . . 22.55 Seinni fréttir (Seinni en hinar skilj- iði. . .) 23.00 Miðja heimsins (Le milieu du monde) ★★★ Frönsk-svissnesk bíómynd frá 1974 undir stjórn Alain Tanners. Aðal- leikarar Olivia Carlisi, Philippe Léotard, Juliet Berto og Jacques Denis. í miðri kosningabaráttu hrífst ungur frambjóðandi f Sviss af ítalskri alþýðustúlku og hættir með því stjórnmálaframa sínum. Vel skrifuð og hugljúf saga með góðum leik, ró- legri en hnitmiðaðri leikstjórn. Tanner eins og hann gerist hvað þýðastur! 00.30 Dagskrárlok ef Guð lofar. Laugardagurinn 22. mars 16.00 Bjarni Felixson í umsjón enska fót- boltans og reyndar alls annars sem - rúllar! 19.25 Búrabyggð í þýðingu Guðna Kol- beinssonar. 19.50 Fróttaútbrot á fingrinum. 20.00 Fréttaáblástur á vörunum. 20.25 Auglýsingar og þula. 20.35 Frjálsaðferð — íslenski Pan-hópur- inn leikur listir sfnar, nei, nei; fyrir- gefiöi... islandsmeistarakeppni í diskódanski. Úrslit íTónabæ án leðurs eða svipa, enda ekki svipur hjá sjón.. . 21.20 Glettur Flosa Ólafssonar, þessa unga og bráðefnilega leikara sem útskrifað- ist úr Leiklistarskólanum fyrir fáum ár- um (til þess að gera). Flosi hneggjar eitthvað og geggjast í kortór. 21.45 Dagbókin hans Dadda. Fyrsti þáttur bresks myndaflokks í sjö hlutum eftir samnefndri metsölubók Sue Towns- end. Flokkurinn lýsir heimilislífi 14 ára drengs, skóla og framtíðardraumum eins og hann upplifir þá. Sætt efni, kristilegt og krassandi. 22.15 Monsjör Kíkóti (Monsignor Quixote). Ný bresk sjónvarpsmynd gerð eftir samnefndri skáldsögu Graham Greene þar sem hann færir ævintýri Kíkóta og Panza fram um nokkrar ald- ir. Makalaust skemmtilega skrifuð saga sem ku hér komast vel til skila í höndum ekki ófrægari leikara en Alec Guinnes og Leo McKern, en leikstjóri er Rodney Bennett. 00.20 Góða nótt, en muniði bara: Slökkviöi nú á öllum kertum fyrir svefninn. Manni líður alltaf betur svoleiðis upp á framtíðina að gera! Sunnudagurinn 23. mars 14.00 Hreint ekki amaleg gamanópera eftir Amadeus. 17.15 Sunnudagshugsvæfa. 17.25 Feim. Bandariskur endaleysuþáttur án innihalds. 18.15 Stundin okkar á barnsaldri og yfir. 18.45 Spurningakeppni framhaldsskól- anna. Nemendur FS og MS leiða sam- an draghaltar hryssur sínar. 19.20 Hléið okkar. 19.50 Tákn... 20.00 Málið. 20.25 Bíla- og húðkrems-auglýsingar. 20.55 Sjónvarp næstu viku. Gunna Skúla sýnir fram á páska dagskrána og kemst við. 20.35 „Diddúladderí!" — Brot úr skemmtan íslensku hljómsveitarinnar á öskudag- inn. Diddú og Laddi djöflast með Gvendi Emils og félögum. 21.30 Jesús frá Nasaret. Bresk-ítölsk sjón- varpsmynd í fjórum hlutum í leikstjórn Franco Zeffirelli. Tónlist: Maurice Jarre. Aðalleikarar: Robert Powell, Anne Bancroft, Ernest Borgnine, Valentina Cortese, James Farentino, James Earl Jones, Stacy Keach, Tony Lo Bianco, James Mason, Tan McShane, „Bessi Bjarnason", Laurence Olivier, Donald Pleasence, Ralph Richardsson, Christopher Plummer, Anthony Quinn, Fernando Rey, Rod Steiger, „Róbert Arnfinns- son", Peter Ustinov, Michael Vork og Olivia Hussey. Myndin er um fæðingu Jesú, líf hans, dauða og upprisu. 23.10 Dagskrárlokum í Jesú nafni, amen. © Fimmtudagskvöldið 20. mars 19.00 Fréttir. 19.50 Sigurður G. Tómasson getur ekki lengur oröa bundist. 20.00 Sveinn Einarsson ekki heldur. 20.30 Jónfóníumúlinn í Háskólabíóinu. 21.10 Cesar Vallejo. Þáttur um það per- úska skáld. 21.40 Hamrahlíðarkórinn svo hár og fag- ur. . . 22.20 Passíubögurnar. 22.30 Fimmtudagsumræðan — Unga fólk- ið og fíkniefnin. Ekki beint frumlegt umræðuefni. . ., en þarft. 23.30 Kammó-tónleikar. Feikilega, að sögn. 24.00 Þulur í dagskrárlok. * Eg mœli meö Rás 1 föstudagurinn 21. mars klukkan 11.10: Skáldsagan „Sorg undir sjóngleri". Síra Gönnsó Bjöss ekkasýgur þýðingu sína, yfirbug- aður af harmi. Föstudagurinn 21. mars 07.00 Bæn. 07.15 Vakt. 09.05 Börn. 09.45 Þing. 10.40 „Sögusteinn" Haraldur Ingi Haralds- son segir nokkur orð viö hljóðnem- ann. 11.10 Skáldsagan ,,Sorg undir sjón- gleri" Síra Gönnsó Bjöss ekka- sýgur þýðingu sína, yfirbugaður af harmi. 11.30 Þungir morguntónleikar við hæfi. 12.20 Frétt. 14.00 Miðdegissagan. 14.30 Sveiflur. S.P. Erlendsson setur nokkra notalega tóna á fóninn. 16.20 Síðdegisdrunginn. 17.00 Helgarútvarp barnanna. Vernharður Linnet sussar á skarann milli skamma. 17.40 Úr atvinnulífinu — ef eitthvað er... 19.00 Fréttirnar. 19.45 Þingmál. Ei Ar Halldórsson slær í bjölluna. 19.55 Daglegt mál. örn Ólafsson spekúlerar upphátt. 20.00 Lög yngra fólksins (samanber eldri borgarar). 20.40 Kvöldvaka (samanber fastasvefn). 21.30 Atli Heimir. 22.20 Kvöldtónleikar. Úggasagga. 23.00 Heyrðu mig — eitt orð. Kolla Halldórs fitlar við hljóðnemann þannig að til heyrist.. . 543-áq. . . 00.05 Djassþáttur. Jón Múli slær taktinn á lær sér... 01.00 .. .en fer hér út af lagi, svo slökkva verður á samanlögðu ríkisútvarpi landsmanna. Laugardagurinn 22. mars 07.00 Góðan dag! 07.30 íslenskir kórar og sólósöngvarar opna gúlann. 09.30 Óskalög sjúklinga. ,,Sjúklega góð- ur þáttur", segja mér læknar! 11.00 Heimshorn. 12.20 Fréttir. 13.50 Hór og nú og hvergi annarstaðar og þó víðar væri leitaö fanga frá föngum til fanga. 15.00 Miðdegistónleikar. Jééé, nú er ég sko alveg Bithóven. 15.50 islenskt mál. Jón Aðalsteinn Jóns- son beyglar tunguna upp í sér. 16.20 Listagrip. 17.00 „Árni í Hraunkoti". 17.30 Tónlist eftir Jórunni Viðar. 19.00 Engar fréttir qru góðar fréttir. 19.35 „Sama og þegið". 20.00 Nikkan þanin. 20.30 Kvöld á Siglufirði. Jónas Jónasson kveikir á nokkrum merkikertum stað- arins í báða enda. 21.20 Vísnakvöld. Gísli Helga á útblæstrin- um. 22.30 Bréf frá Danmörku. Gluggabréf kannski. 00.05 Miðnæturtónleikar Jóns Arnar Marinós. 01.00 Búið í bili. Sunnudagurinn 23. mars 08.00 Morgunandakt. 08.35 Létt morgunlög. 09.05 Morguntónleikar. 10.25 Passíusálmarnir og þjóöin. 11.00 Messa í Háteigskirkju. Boðið verður upp á oblátu og vín aö hætti hússins. 12.20 Fréttir. Og tilkynningar. 13.30 Einararnir Már og Kárason gera gys að landi og þjóð. Endurflutt. 14.30 Miðdegistónleikar. 15.10 Bjarni Sveinsson verslm. í Austur- stræti. Efni um hann. 16.20 Vísindi og fræði. 17.00 Síðdegistónleikar. 19.00 Fróttin stóra. 19.35 Erindi. 20.00 Stefnumót. 21.00 Ljóð Et Lag. 21.30 Útvarpssagan. 22.20 íþróttir. 22.40 Svipir. 23.20 Kvöldtónleikar. 00.05 Milli svefns og vöku. 00.55 ZZZzzzzzzhh. m Fimmtudagskvöldið 20. mars 20.00 Óskalagaþáttur símhringjenda. 21.00 Maður er nefndur. .. 22.00 Svavar Gestagangur. 23.00 Þrautakóngur. Nýr spurningaþáttur um allt milli himins og jarðar þar sem tveir menn keppa við hvorn annan og annar vinnur sennilega. 24.00 Suðið. Föstudagurinn 21. mars 10.00 Morgunþáttur. Páll og Ásgeir spyrna í ístöðin í eyrum landsmanna. 12.00 Hléið okkar. 14.00 Valdís Gunnars fær fólk til að fíla föstudaginn. 16.00 Jón Ólafsson fær fólk til að fíla sjólf- an sig. 18.00 Suð. 20.00 Hljóðdósin. 21.00 Dansrásin. 22.00 Rokkrásin. 23.00 Á næturvakt. 03.00 í stimpilklukkunni. Laugardagurinn 22. mars 10.00 Morgunþáttur. 12.00 Hlé. 14.00 Lukkudagur til lauga. Til dæmis Sundhaliarinnar. 16.00 Listapopp. Popp af útlenskum listum. 17.00 Hringborðið. 18.00 Línur. Heiðbjört Jóhanns að skýr- ast. 21.00 Milli stríða. Jón Gröndal byrgir sig upp. 22.00 Forskalning. Þáttur um þyngstarokk. 23.00 Svifflugur. Farið að svífa á menn. 24.00 Næturvakt. . . 03.00 . . .lokið. Sunnudagurinn 23. mars 13.30 Salt í samtíöina. 15.00 Dæmalaus þáttur. 16.00 Vesældarlistinn. 18.00 Vesældarsuöið. Svæðisútvarp virka daga 17.03-18.00 Reykjavík og nágrenni — FM 90,1 MHz. 17.03-18.30 Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz. UTVARP Hagsmunamál Moggans eftir Friðrik Þór Guðmundsson lesenda Ég hygg að lestur útvarpsins á úrdráttum úr forystugreinum dagblaðanna mælist misjafnlega fyrir í þjóðfélaginu. Skiptar skoðanir eru um gildi þess að blöðin, sem öll eru pólitískar málpípur, fái að notfæra sér þennan vettvang til að koma sínum hjartfólgnustu skoðunum á framfæri. Sjálf- ur er ég ekki í vafa um að lestur þessi eigi rétt á sér. A dagblaðamarkaðinum hafa hægri blöðin ótvíræða yfirburði. Flest heimili landsmanna kaupa að minnsta kosti tvö dagblöð og þá í yfirgnæfandi mæli Morg- unblaðið og Dagblaðið. Tíminn og Þjóðvilj- inn ná til sirka fimmta hvers manns, Dagur er svæðabundinn og varla þarf að fjölyrða um Alþýðublaðið (nema hvað mánaðar- lega er því dreift ókeypis um Stór-Reykja- víkursvæðið og þá er innihaldið að mestu auglýsingatengd viðtöl!). Því má segja að viðhorf pólitískra afla berist landsmönnum einkum frá hægri væng stjórnmálanna, þ.e. frá Sjálfstæðis- flokknum. Þetta eru sjálfstæðismenn vita- skuld afskaplega ánægðir með og vilja enn meiri yfirburði, ætla sér stóra hluti í fram- 38 HELGARPOSTURINN tíðinni. Hundrað og eitthvað síður af Mogga og nokkrir tugir síðna af DV á nán- ast hverju heimili í dag, útvarpsstöðvar og sjónvarpsstöðvar á morgun. Og það eru einmitt sömu öfl sem helst stinga upp á því að Ríkisútvarpið leggi niður leiðaralesturinn og leggi af styrki til blaðaútgáfu úr ríkissjóði. Ekki veit ég hversu mikil hlustunin er á leiðaralestrinum, en þó hygg ég að hún sé lúmskt mikil, að minnsta kosti verð ég ekki var við annað. Þannig rekst maður iðulega á fólk sem kynnist viðhorfum vinstri flokka nær eingöngu í gegnum þennan útvarps- lestur. Þannig er það til dæmis með Al- þýðuflokkinn, málgagn hans Alþýðublaðið nær nánast eingöngu til dyggustu stuðn- ingsmanna og er sama og hvergi hægt að kaupa í lausasölu. Fáir kratar neita því enda að ein helsta röksemdin fyrir því að blaðið sé gefið út er að leiðarinn er lesinn í útvarpinu. Þjóðviljinn og Tíminn ná Jil fleiri lesenda, en mikilvægi leiðaralesturs- ins er útgefendum þeirra þó ákaflega mikil- vægur. Og er þá bara spurning hvort útvarps- hlustendur kæri sig á annað borð um að j kynnast viðhorfum útgefenda þessara blaða, þó ekki væri nema endrum og eins. Auðvitað eru allir sammála um að það sé öllum mönnum nauðsynlegt að kynnast báðum/öllum hliðum umdeildra mála. Fæstir hafa hinsvegar efni á því að vera áskrifendur að öllum dagblöðunum. Það má því heita að það sé einmitt brýnt hags- munamál fyrir hina fjölmörgu landsmenn sem einkum lesa Moggann og DV að geta eftir morgunkaffið kveikt á útvarpinu til að hlýða á andstæðar skoðanir! SJÓNVARP Talaö ofan í Það er sennilega bezt að byrja strax á því að taka fram, að Stefán Jóhann Stefánsson fréttaritari útvarpsins í Svíþjóð stóð sig með mikilli prýði í beinni útsendingu frá minningarathöfninni um Olof Palme í ráð- húsinu í Stokkhólmi. Stefán hafði augljós- lega kynnt sér vel dagskrána og undirbúið sig með því að vitna til gamalla ummæla Palmes, sem áttu vel við á þessari drama- tísku stundu. Hins vegar kom í Ijós í þessari útsend- ingu beint um gervihnött að vísasti vegur- inn til þess að eyðileggja sitthvað í útsend- ingu af þessu tæi er að taka „ofan í“ talað mál. Þannig reyndi Stefán að þýða ræður þeirra manna og kvenna, sem fluttar voru við athöfnina. Hann hafði auðheyrilega ekki textann við höndina og því tókst hon- um ekki að þýða nema svona sjöunda hverja setningu. Og þetta hafði í för með sér, að áhorfandinn missti meira og minna af ræðunum. Og þar með mikilvægasta þætti minningarathafnarinnar. Beinar útsendingar sjónvarpsins eru enn á bernskuskeiði og því gæti verið lærdóms- ríkt fyrir ráðamenn Ríkisútvarpsins að velta þessu máli fyrir sér. Á það að vera stefna sjónvarpsins að þýða jafnharðan tal- að mál í beinum útsendingum eða ekki? Mér skilst að Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra sé á þeirri skoðun að það beri að þýða allt erlent efni, t.d. knatt- spyrnulýsingar. Slíkt væri fásinna. En minningarathöfnin um Palme er verðugra umhugsunarefni. Við hana voru talaðar enska og sænska. Lunginn af íslendingum skilur ensku og sænskan getur ekki vafizt fyrir mörgum. Og vefjist hún fyrir einhverj- um, þá þori ég að fullyrða að langflestir hafi skilið a.m.k. fimmtu hverja setningu, eða nánast jafnmikið og Stefán Jóhann náði að þýða. Fyrir þá sem skilja þessi tungumál fór því miður alltof stór hluti hins talaða máls fyrir ofan garð og neðan. Til viðbótar má jafn- framt skjóta að þeirri fullvissu minni, að þeir sem fylgdust með athöfninni hafi ein- mitt verið það fólk, sem skilur ensku og sænsku. En hvort sem svo hefur verið eða ekki fóru allar ræðurnar í vaskinn. Það sem ég er í rauninni að segja er það, að sum atriði í beinum útsendingum verða aldrei þýdd sómasamlega. Þá liggur í aug- um uppi að með því að láta íslenzkan þul lesa undir þá slitnar á vissan hátt þetta beina samband áhorfandans við þann at- burð, sem er að gerast á sama augnabliki. Við sitjum uppi með millilið sem sker á þetta beina samband við umheiminn, sem sjónvarpið getur nú boðið okkur upp á. Hinum lifandi atburði er beint í farveg flatneskjunnar. En það má svo vel vera, að tæknin gefi okkur möguleika á því að heyra útlenzkuna, ef íslenzka talið er nógu lágt? Með núverandi fyrirkomulagi verður maður skitsófren. Ef við ætlum að taka þátt í samfélagi þjóðanna verður að standa öðru vísi að þessum beinu útsendingum. Rétt er að taka fram, að hér er ég fyrst og fremst að tala um þann óþarfa að þýða ensku og Norðurlandamálin (að undanskilinni finnsku). En þrátt fyrir allt og allt, þá á sjónvarpið þakkir skildar fyrir að senda minningar- athöfnina um þann merka stjórnmála- mann Olof Palme beint.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.