Helgarpósturinn - 20.03.1986, Blaðsíða 31
LISTAPÓSTURINN
Erla B. Skúladóttir:
„Þessi vika er krafta-
verkavikan, þegar allt
fer aö ganga saman."
Erla B. Skúladóttir í sínu fyrsta hlutverki:
„Oft veriö á
nippinu aö
gefast upp“
Leikur móðurina í Blóðbrædrum
eftir Willy Russel sem Leikfélag
Akureyrar frumsýnir um helgina
„Þetta er spennandi en erfitt hlut-
uerk" segir Erla B. Skúladóttir sem
leikur módurina Jónu, eitt aðalhlut-
verkanna í leikritinu Blóðbrœður
sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir
nk. laugardag. ,,Leikritið gerist á 25
árum, og ég eldist á sviðinu sem því
nemur. Par að auki er stór hiluti
verksins sunginn, sem er ný reynsla
fyrir mig á sviði," segir Erla enn-
fremur viö HP.
Leikritið Blóðbrœður er eftir Bret-
ann Willy Russell sem einna þekkt-
astur er fyrir leikritið Educating
Rita sem hann síðar umskrifaði fyrir
kvikmynd sem síðar varð fræg með
Michael Caine og Julie Walters í
aðalhlutverkum. Blóðbræður segir
frá tvíburunum Mikka og Edda sem
alast upp sitt í hvoru lagi, þar sem
móðirin gefur Edda frá sér við fæð-
ingu. Hann elst upp í allsnægtum en
Mikki og systkini þeirra við sult og
seyru hjá móðurinni sem er einstæð
með sex börn. Enginn veit um
skyldleika bræðranna nema móðir-
in og stjúpmóðirin. Eddi og Mikki
verða hins vegar leikfélagar, síðar
vinir og fóstbræður og ástfangnir af
sömu stúlkunni. í gegnum leikinn
gengur trú og hjátrú. 1 leikskrá segir
að Blóðbræður sé lífsglaður sorgar-
leikur, hressilegur og margbrotinn,
kraftmikill og tímabær. Það er mikil
og flókin tónlist í verkinu eftir höf-
und sjálfan. Roar Kvam stjórnar
hljómsveit og fjögurra manna kór.
Tónlistin er frá ýmsu skeiði, swing,
djass, rokk og rólegar ballöður.
Hlutverk Erlu B. Skúladóttur er
hið langstærsta á ferli hennar. Hún
útskrifaðist úr Leiklistarskóla ís-
lands 1982 en hélt síðan til Parísar
þar sem hún stundaði framhalds-
nám í látbragðsleik hjá Jacquis
Lecoq og Ellu Jaroscewicz. Eftir að
hún kom heim til íslands hefur hún
leikið í Jóhönnu frá Örk í uppsetn-
ingu Nemendaleikhússins og í Svöl-
unum eftir Genet og Þórdísi þjófa-
móður eftir Böðvar Guðmundsson,
en þau verk voru einnig sýnd hjá
Nemendaleikhúsinu. Þá lék Erla
hlutverk Karínar í uppsetningu Al-
þýðuleikhússins á verki Fassbind-
ers, Beisk tár Petru von Kant. Erla
hefur áður starfað með Leikfélagi
Akureyrar, lék bæði í Jólaævintýri
eftir Dickens og Siifurtúnglinu eftir
Halldór Laxness. Rödd Erlu hefur
einnig heyrst í ýmsum útvarpsleik-
ritum.
Um hlutverk móðurinnar í Blóð-
bræðrum segir Erla B. Skúladóttir:
„Þetta er kona með stórt hjarta.
Hún er líkt og tré sem svignar, en
brotnar ekki og reisir sig við aftur.
Hún lendir í miklu basli. Fæðir átta
börn og karlinn hennar stingur af
frá henni. Og hún Iifir alltaf við það
samviskubit að hafa gefið frá sér
barn. Þessi kona á alla mína samúð."
Um leikritið almennt segir Erla:
„Það sem gerir Blóðbræður að
skemmtilegu verki, er að það slær á
svo marga strengi tilfinninga."
Og um hinn fræga frumsýningar-
skrekk: „Taugarnar eru misgóðar.
Maður hefur náttúrulega oft verið á
nippinu að gefast upp, spurt sjálfan
sig hvern andskotann maður sé að
gera í þessu aðalhlutverki. En þessi
síðasta vika fyrir frumsýningu er
kraftaverkavikan, þegar allt fer að
ganga saman. Þetta eru dagarnir
þegar holdið fer að komast utan á
beinin." Bræðurna Mikka og Edda
leika þeir Ellert A. Ingimundarson
og Barði Guðmundsson. í öðrum
hlutverkum eru Práinn Karlsson,
Sunna Borg, Theódór Júlíusson,
Pétur Eggertz og Vilborg Halldórs-
dóttir. Leikstjóri er Páll Baldvin
Baldvinsson, þýðandi verksins er
Magnús Pór Jónsson (Megas), leik-
mynd er eftir Gylfa Gíslason og bún-
ingar gerðir af Ereygerði Magnús-
dóttur. Lýsingu annast Ingvar
Björnsson. Aðstoðarleikstjóri er
Teódór Júlíusson. -im
Eyjólfur Einarsson
opnar
sýningu á Akureyri:
„Á kafi í
vatnslitum“
„Ég hef eingöngu fengist við
vatnsliti frá áramótum," segir Eyjólf-
ur Einarsson, listmálari en hann
opnar sýningu á 20 vatnslitamynd-
um í Gamla Lundi á Akureyri laug-
ardaginn 22. mars og stendur sýn-
ingin til 31. mars.
Eyjólfur, sem þekktastur er fyrir
olíu- og akrýlmyndir, segist vera al-
veg á kafi í vatnslitum þessa dag-
ana. Hann hélt síðast sýningu 1978
á Akureyri í Gallerí Háhól en býr og
starfar að myndlist í Reykjavík að
öllu jöfnu. Sýning Eyjólfs verður op-
in alla daga frá kl. 14-19.
Eyjólfur Einarsson myndlistamaður sýnir
20 vatnslitamyndir í Gamla Lundi á Akur-
eyri.
KVIKMYNDIR
Saga sem blómstrar
Regnboginn, Trú, von og Kœrleikur (Tro
háb og Kœrlighed): ★★★★
Dönsk, árgerð 1985.
Leikstjórn: Bille August. Handrit: Bille
August og Bjarne Reuter. Kvikmyndun: Jan
Weincke. Tónlist: Bo Holten. Aðalleikarar:
Adam Tansberg, Lars Simonsen, Camilla
Soeberg og Ulrikke Juul Bondo.
Dönsku leikstjórarnir Bille August og Nils
Malmros eru sér á báti í evrópskri kvik-
myndagerð. A undanförnum árum hefur
þeim tekist að gera úrvals unglingamyndir
sem einkennast af einstaklega sterkri
næmni fyrir þeim hræringum sem eru að
gerast í hugarheimi mannsins á þessum
furðulegu árum í lífi hans. „Skilningstréð" og
„Dísin og Drekinn" eftir Malmros, „Zappa"
og nú síðast „Trú, von og kærleikur" eftir
August, eru nauðsynlegt mótvægi við það
innantóma rugl sem flestar bandarísku
krakkavellurnar eru sem komið hafa úr
þeirri áttinni upp á síðkastið.
Regnboginn sýnir núna Trú, von og kær-
leik eftir Bille, en árið 1983 hlaut hann ásamt
Bjarne Reuter, einum vinsælasta unglinga-
bókahöfundi Dana, mikið lof fyrir kvik-
myndina Zappa. Hér heima var hún til dæm-
is á lista yfir fimm bestu myndir ársins 1984
hjá langflestum gagnrýnendum blaðanna, til
dæmis í öðru sæti hjá HP á eftir „Fanny og
Alexander" Bergmans. í þessari nýju mynd
taka þeir upp þráðinn að nýju og fylgja nú
aðalsöguhetjunni úr Zappa, Birni, og því
sem fyrir hann kemur tveimur árum seinna,
árið 1964, á sextánda ári. Úr Zappa hittum
við aftur Kirsten og kynnumst nánar ung-
mennunum tveimur, Erik, sem er besti vinur
Björns og stúlkunni Önnu.
Trú, von og kærleikur er þó ekki í svo mikl-
um tengslum við Zappa að ekki megi líta á
hana sem sjálfstætt verk. Það er hún og það
„Frásagnarmátinn er
hlýlegur. Manneskjan
er í fyrirrúmi. Og sá
frumkraftur sem ástin
er, kemst innilega til
skila," segir Sigmund-
ur Ernir m.a. í umsögn
sinni um nýjustu
unglingamynd danska
leikstjórans Bille
August. Hér að ofan
sjást Camilla Seeberg
og Adam Tonsberg í
hlutverkum önnu og
Björns.
eftir Sigmund Erni Rúnarsson
sem meira er; sennilega fyllra og enn magn-
aðra verk en Zappa var og fór þar þó fyrsta
flokks kvikmynd. Þetta gerist afskaplega
sjaldan með framhaldsmyndir og fer þar að
sjálfsögðu enn annar vitnisburður um það
hvað August er þroskaður og metnaðargjarn
listamaður í grein sinni. Sem fyrr leggur
hann megináhersluna á að segja frá því
hvernig krakkarnir mæta raunveruleikanum
af alvöru og án þess að flissa eða snúa samtöl-
unum upp i vangaveltur um miðhlutann á
sér.
Frásagnarmátinn er hlýlegur, framsetning-
in einlæg. Manneskjan er í fyrirrúmi. Og sá
frumkraftur sem ástin er, kemst innilega til
skila. Einnig örvæntingin, óvissan og gremj-
an yfir því hlutskipti að vera annaðhvort of
ungur eða of gamall til þess að maður fái að
gera hlutina. Trú, von og kærleikur er mjög
margbrotin mynd hvað söguna snertir og svo
þétt að myndin blómstrar eftir á í hugum
áhorfandans. Þetta hefði þó aldrei komist til
skila ef ekki hefði notið jafn hæfileikaríkra
unglinga og eru í meginrullunum og svo
hinna lærðu í fullorðinshlutverkunum. Sá
þáttur ásamt frábærri umgjörð; nosturlega
unnum búningum og kostulegri leikmynd,
gera Trú, von og kærleik að einni bestu ungl-
ingasögu sem sett hefur verið á hvíta tjaldið.
HELGARPÖSTURINN 31