Helgarpósturinn - 20.03.1986, Side 24

Helgarpósturinn - 20.03.1986, Side 24
Bjarnfríður Leósdóttir fv. formaður verkalýðsmólaróðs Alþýðu- bandalagsins segir verkalýðsforystuna komna ó móla hjó ríkisstjórninni MÉR LEIÐILLA í ALÞÝDIIBANDALAGINU Valdatíð Ásmundar Stefánssonar mesta niðurlægingarskeið íslenskrar verkalýðshreyfingar — Flokksforystan stofnaði skuggaráðuneyti Sunnudaginn 9. mars stdasllidinn sagði sig ,úr Alþýðubandalaginu Bjarnfríður Leósdóttir formaður uerkalýðsmálaráðs Alþýðubanda- lagsins ásamt fjórum öðrum kon- um. Þetta gerðist á fundi uerkalýðs- málaráðsinsað uiðstöddum Svavari Gestssyni, Asmundi Stefánssyni og mörgum öðrum. Aðdragandinn er langur og á rœtur sínar í sögu Al- þýðubandalagsins, í sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar og síðast en ekki síst í sögu Bjarnfríðar Leósdótt- ur sjálfrar. Helgarpósturinn skrapp upp á Skaga þar sem Bjarnfríður hefur búið alla tíð, til að forvitnast um ástœður ársagnarinnar. „Úrsögnin á sér aðdraganda. Mér hefur fundist að á undanförnum ár- um hafi flokkurinn ekki staðið sig sem verkalýðsflokkur og það hygg ég að hafi verið fyrst og fremst vegna þess að hann hefur tengst allt of mikið þeirri forystu verkalýðs- hreyfingarinnar sem nú er við völd og sú forysta veldur ekki hlut- verki sínu. Pólitísk og fagleg verka- lýðsbarátta er nauðsynleg en þá verður það að vera til farsældar fyr- ir alþýðuna í landinu. Mér finnst að ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar sé mikil, það er engin hreyfing í land- inu sem ber eins rnikla ábyrgð. Og ég hef lýst vantrausti á forystuna og ég mun halda áfram að gera það á meðan hún ekki snýr við." Verkalýðsforystan hefur ekkt staðið sig í stykkinu „Ég les það núna í gegnum frétta- bréf kjararannsóknarnefndar að konur í verkalýðsstétt séu komnar niður fyrir taxtana, lægstu taxtana, þannig að fyrir konu þýðir ekki ann- að en mótmæla þessu. Ég vil ekki þurfa að vera að afsaka það sem er fjarri mínum hugsjónum og mínu eðli og ég vil ekki sjá ævistarf mitt ónýtt. Ég er vaxin upp úr verkalýðs- stétt og mér finnst að ég hafi barist hörðum höndum við að ná efna- hagslegu sjálfstæði en mér sýnist að það eigi að hrifsa það af okkur öll- um. Ég vil meina það að verkalýðsfor- ystan hafi ekki staðið sig í stykkinu. Núna knýr hún fram samþykki á þessum samningum í hverju félag- inu á fætur öðru með svipuna á lofti. Það er sagt við fólk að ef það sam- þykki ekki þá verði þetta svona og svona, þannig hafði Ásmundur Stefánsson það hér á fundi í verka- lýðsfélaginu, hann ógnaði fólkinu. Hann og formaður verkalýðsfélags- ins ógnuðu fólki til að samþykkja samningana en ég hygg að meiri- hlutanum hafi verið það þvert um geð. Áður hræddist fólk atvinnurek- endur en núna hræðist fólk sína eig- in forystu." Þeir hafa tekið sér völd „Samtryggingin er orðin alger. Og í þessum samningum var verka- lýðsforystan fyrst og fremst að semja fyrir atvinnurekendur, ekki fyrir verkafólk, því almenningur étur ekki þessa bíla. Þegar Alþýðu- bandalagið sem flokkur samþykkir þessa vitleysu inná Alþingi til þess að falsa vísitöluna þá er ekki lengur hægt að leita skjóls hjá flokknum. Það sýnir að hann hefur gert stefnu verkalýðsforystunnar að sinni. Er ekki verið að undirbúa nýja við- reisnarstjórn? Þurfa þeir ekki á styrk íhaldsins að halda? Annars veit ég ekki hvað þeir eru að hugsa, ég veit bara að þingmennirnir fara ekki eftir samþykktum hins al- menna alþýðubandalagsmanns, sú kjaraályktun sem var samþykkt á landsfundinum er ekki í þessum dúr. Þeir hafa því tekið sér völd og það stangast á við vilja almennings í Al- þýðubandalaginu. Þetta er skortur á lýðræði. Mér er það ákaflega þungbært að hafa þurft að segja mig úr flokki sem ég hef verið í frá því hann var stofn- aður og alla tíð hef ég gegnt trúnað- arstörfum fyrir flokkinn. Þær hug- sjónir sem ég hafði og hef, eru ekki í þeim dúr sem t.d. þessir kjara- samningar eru og fela í sér. Við gengum auðvitað úr Alþýðu- bandalaginu vegna þess að allt það sem við vorum búnar að gera og búnar að móta er látið afskiptalaust. Þegar við byrjuðum í stjórn verka- lýðsmálaráðs lögðum við upp með það mottó að verkalýðshreyfingin skyldi ráða tekjuskiptingunni og þá auðvitað alþýðunni í hag, en það hefur gengið svo langt fram sem raun ber vitni, það er búið að festa láglaunastefnuna í sessi og það er hlálegt og um leið sorglegt að vera að skrifa undir samninga þar sem fara á eftir töxtum sem allir viður- kenna að duga ekki einu sinni fyrir nauðsynlegasta lífsviðurværi. Og það er hópur af fólki sem verður að lifa af þessum töxtum, aðallega kon- ur. Launaskriðið kemur ekki til kvenna og undanfarnir samningar eru ekki til þess að hækka þær í !aunum.“ Ég fyrirlít verkalýðshreyfinguna „Auðvitað er verið að drepa alla verkalýðsbaráttu, verkalýðsforyst- an hefur ekkert vald á kjörunum, hún er að semja um taxta sem allir vita að ekki er hægt að lifa af og fólk samþykkir vegna þess að það nær sér í laun á annan hátt, með yfir- borgunum, gegndarlausri vinnu o.fl. Þetta verður þess valdandi að hér verður í framtíðinni einhver vinnulýður, ómenntaður og kannski vannærður, og hart að þurfa að horfa uppá þetta í landi með svo miklar þjóðartekjur. Það á að vera hægt að búa öllum góð lífsskilyrði. Ég fyrirlít þetta, ég er farin að fyrir- líta þessa verkalýðshreyfingu og ég fyrirlít ríkisstjórnina, þegar ég horfi á framámenn þjóðarinnar fyllist ég fyrirlitningu á þeim. Verkalýðshreyfingin sem ætti að vera aðal stjórnarandstaðan er komin á mála hjá stjórninni og binst undir kjararánið en þeir sem eru að skrifa undir þessa samninga myndu ekki bera það við að framfleyta sér eftir töxtunum. Forystan er komin langt frá umbjóðendum sínum og hún rekur fólk á undan sér einsog fé sem hún getur ráðið yfir og skipað fyrir verkum. A.m.k. á þeim fund- um sem ég hef verið á þar sem þess- ir samningar hafa verið samþykktir, er fólk rekið áfram, fólk fær ekkert að vita og stendur frammi fyrir gerðum hlut. Það treystir ekki for- ystumönnum til eins eða neins og oft held ég að fólk sé fegið að þeir séu hættir þessu til að þeir sem að það geta geti farið að semja fyrir sig. Hinir verða að sætta sig við það. Eg held að það þyrfti að bera þessa for- ystu út, bara hreinlega að bera hana út.“ Forystan er í fílabeinsturni „Ég hygg að það verði að fara aft- ur að vinna grasrótarstarf, og það er einmitt það sem ég er núna að starfa við í Samtökum kvenna á vinnu- markaði. Þar koma upp raddir um að nú þurfi að fara að brjóta upp verkalýðshreyfinguna og stofna frjálsa verkalýðshreyfingu. Á Is- landi er ekki frjáls verkalýðshreyf- ing, hún er það í orði en ekki á borði. Forystan er komin inn í ein- hvern filabeinsturn og hefur ekki samskipti við fólk, hinn almenna félagsmann. Forystan' veit ekkert um líðan fólks, veit ekkert um kjör þess. En ég ásaka fólkið um leið fyr- ir að láta bjóða sér þetta, fólk hefur flotið sofandi að feigðarósi, það hef- ur treyst apparatinu alltof mikið. Þessi forysta sem nú er reynir ekki að ná til fólksins. Fólk er að verða afskaplega hrætt um afkomu sína en er ekki ennþá nægilega hrætt til að gera eitthvað. Það hlýtur að koma að því, ef til vill ekki fyrr en hin klassíska öreigastétt er aftur komin á Islandi, þegar al- menningur er búinn að missa allar eigur sínar. Undanhaldið hófst þeg- ar þessi ríkisstjórn tók við völdum og það hefur verið rekið skarpt, fyrst og fremst af ríkisstjórninni en líka af verkalýðshreyfingunni. Ég get ekki lengur verið með í flokknum því þær forsendur sem ég hafði til að vera þar eru brostnar, þær eru brostnar þegar þeir menn sem ráða ferðinni eru farnir að taka sér óhóflegt vald. Og ég vil ekki taka ábyrgð á þessu. Ég er ekki málamiðlunarmanneskja og ég sættist ekki á þetta og þess vegna verð ég að finna mér annan vett- vang. Þetta er mér mikill léttir því mér er búið að líða mjög illa í flokknum undanfarin ár. Það er létt- ir að þurfa ekki að telja mig ábyrga fyrir einhverju sem ég vil ekki bera ábyrgð á, því það er gegn mínum hugsjónum sem hafa verið kaffærð- ar í flokknum. Ég hef aldrei þegið laun fyrir mín störf og ég er fegin því að ég skuli ekki hafa fest mig fjárhagslega og hafi getað verið einsog frjáls manneskja og ég fer sem frjáls manneskja." Mér var neitað um að koma á fund „Formennska í verkalýðsmála- ráði var mín úrslitatilraun í flokkn- um og ég var kosin af hinum al- menna alþýðubandalagsmanni. En það var eyðilagt því forysta verka- lýðshreyfingarinnar var ekkert með þessu almenna fólki. Flokksforystan hætti líka að vilja vera með þessu fólki og fór að fara á fundi og stofn- aði ráð á bak við verkalýðsmálaráð- ið, ráð sem var kallað skuggaráðu- neytið. Eftir landsfundinn sl. haust var hætt að boða mig á fundi í fram- kvæmdastjórn flokksins en einmitt á þeim landsfundi hóf verkalýðsfor- ystan innreið sína i framkvæmda- stjórn og meðan verið var að fjalla um þessa samninga var að sjálf- sögðu ekki hægt að boða mig, mér var neitað um að koma á fund. Ef Al- þýðubandalagið hreinsar sig ekki af þessari forystu þá eiga fleiri en ég eftir að fara úr flokknum. Það þarf að breyta til í forystunni, þetta eru orðnir svo miklir kerfiskarlar. Það er bara Guðrún Helgadóttir sem ekki samþykkir lögin sem eiga að vera forsendur þessara samninga. Á landsfundinum var mér fylli- lega ljóst að dagar mínir í flokknum voru taldir. Þegar ég sá að gamla flokksforystan sem er runnin uppúr gamla sósíalistaflokknum óg kommúnistaflokknum hafði náð saman við verkalýðsforystuna varð mér þetta Ijóst. Þessi hópur og lýð- ræðishópurinn svokallaði hafa völd- in og á landsfundinum var samið um jafntefli og eins í forvalinu í Reykjavík. En einsog er stendur lýð- ræðishópurinn verr gegn samein- aðri flokksforystu og verkalýðsfor- ystu. Lýðræðishópurinn er eina vonin. Því miður er ég ekki bjartsýn á að hann nái yfirtökunum en það er eina vonin fyrir flokkinn. Þessi forysta í flokknum er afturhald og hún heldur völdunum. Þetta sést vel á Þjóðviljanum, þar er líka barist. Að flokksforystan skyldi með þegj- andi samkomulagi þola vítur á Þjóð- viljann af hendi Guðmundar J. og Dagsbrúnar þegar blaðið horfði með gagnrýnum augum á samning- ana og lá ekki hundflöt fyrir þessari verkalýðsforystu, lýsir ástandinu vel.“ Flokkurinn hefur verið afvegaleiddur „Það er sorglegt til þess að vita ef valdatíð Ásmundar Stefánssonar, núverandi forseta ASÍ, verður ef til vill mesta niðurlægingarskeið ís- lenskrar verkalýðshreyfingar, því hann er fyrsti forseti ASÍ sem er al- þýðubandalagsmaður. Það var brot- ið blað þegar Alþýðubandalagið hóf samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og studdi Björn Þórhallsson til varafor- manns. Áuðvitað er verkalýðshreyf- ingin pólitísk og núna hefði verið í lófa lagið fyrir verkalýðshreyfinguna að koma þessari rikisstjórn frá. Þetta samkrull við íhaldið er að skila sér núna í niðurlægingunni. Flokkurinn hefur verið afvega- leiddur af þeirri verkalýðsforystu sem nú er við völd og þáttaskilin verða þegar ákveðið er að fara í samstarf við íhaldið. Þessi forysta var styrkur ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens og hún er líka styrkur núverandi ríkisstjórnar. Hún styrkir íhaldið. Það er þetta sem er að fella bæði Alþýðubandalagið og Alþýðu- flokkinn, þeir eru að verða of borg- aralegir. Þegar verkalýðsflokkur hverfur frá uppruna sínum deyr hann. Það er sorglegt, að þegar Alþýðu- sambandið er 70 ára og Alþýðu- flokkurinn líka, eru báðar þessar hreyfingar bitlausar og einnig Al- þýðubandalagið. í framtíðinni hef ég hugsað mér að starfa innan Sam- taka kvenna á vinnumarkaði," segir Bjarnfríður Leósdóttir. iTexti og mynd: G. Pétur Matthíasson 24 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.