Helgarpósturinn - 20.03.1986, Side 40

Helgarpósturinn - 20.03.1986, Side 40
iLieikhúsráð Akureyrar hefur ákveðið næsta leikhússtjóra Leikfé- lags Akureyrar en Signý Pálsdóttir lætur af því starfi í vor. Fimm Um- sóknir frá sex aðilum bárust og ósk- uðu fjórir nafnleyndar. En það voru einmitt hjúin sem sóttu sameigin- lega um og undir nafni sem hlutu hnossið. Hlín Agnarsdóttir og Hafliöi Arngrímsson sóttu um stöðuna í sameiningu og í gær- kvöldi, miðvikudag, komst leikhús- ráðið endanlega að niðurstöðu og ákvað að bjóða þeim starfið. Hlín er reyndar gamall penni Helgarpósts- ins og leikhúsgagnrýnandi blaðsins. Við óskum henni og Hafliða til ham- ingju með starfið og farsældar í verkefnum Leikfélagsins fyrir norð- an. . . að ku vera mesti rnunur að sitja í stjórn Landsvirkjunar. Setu þar fylgja ýmiss konar ferðalög. Fyrir nokkrum vikum var stjórnin stödd á Akureyri og gisti á Hótel KEA. 1 nýja hluta hótelsins er komin hin veglegasta svíta í stíl meiri háttar hótela og auðvitað þótti hún henta stjórn Landsvirkjunar til funda- halda. Eftir því, sem við vitum best hljóðaði reikningurinn upp á einar litlar 800 þúsund krónur.. . M ■ V ■ikillar oanægju gætir meðal félaga í Bandalagi jafnaðar- manna vegna þeirrar ákvörðunar Stefáns Benediktssonar alþingis- manns að láta flokka sig með hægri sinnuðum þingmönnum á vettvangi Norðurlandaráðs. Petta gerði Stefán í blóra við vilja landsnefndar BJ, sem rætt hefur málið. Þá hafa menn áhyggjur af því, að Stefán sé ekki nógu heill í samstarfi innan banda- lagsins og halli sér fullmikið að Kristófer Má og Valgerði Bjarna- dóttur, enda hefur Kristófer gefið Stefáni góða einkunn í blaðavið- tali. .. l aprílbyrjun rennur út frestur til að sækja um starf útvarpsstjóra á Akureyri. Þegar er farið að kvisast út að ólíklegustu menn muni sækja um stöðuna. Helgarpósturinn sagði frá því nýlega að væntanlega myndi Erna Indriðadóttir, fréttamaður RÚVAK sækja um og þykir sigur- strangleg. Nú hafa ný nöfn bæst á 40 HELGARPÓSTURINN listann yfir umsækjendur sem þykja líklegir til að sækja um. Þannig höf- um við heyrt að Stefán Jökulsson sé að íhuga að sækja um stöðuna og eins hefur nafni Hjartar Pálssonar fyrrverandi dagskrárstjóra Útvarps- ins verið fleygt í þessu sambandi. Þá er ekki talið loku fyrir það skotið að Olafur Torfason sem unnið hefur við RÚVAK og er fréttamaður sjón- varpsins á Akureyri, muni sækja um útvarpsstjórastöðuna fyrir norð- i byrjun þessa mánaðar opinber- aði Flokkur mannsins tillögu upp- stillingarnefndar í Reykjavík um skipan 15 aðalmanna og 15 vara- manna fyrir borgarstjórnarkosning- arnar og greindi jafnframt frá því að efnt yrði ti! könnunar meðal félags- manna um tillöguna. Nú hefur FM birt endanlegan lista eftir að hafa að eigin sögn gert könnun „meðal 2.700 félagsmanna flokksins í Reykjavík". Ein athyglisverð breyting varð á lista FM eftir skoðanakönnun þessa. Síðastur á listanum er nú tilnefndur enginn annar en Sigurður A. Magnússon, rithöfundur, öllum til mikillar furðu. Að vísu flokkast SAM í hóp pólitískra ævintýramanna og hefur alltaf verið óflokksbundinn. Hann hefur þó verið stimplaður ýmsum flokkum; var stimplaður sjálfstæðismaður þegar hann vann við Lesbók Morgunblaðsins, stimpl- aður Framsóknarflokknum þegar hann vann við Samvinnuna og gjarnan talinn Allaballi vegna and- stöðu sinnar við veru varnarliðsins hér. Tilkoma SAM á lista Flokks mannsins skýrist ef til vill helst á því að um ættartengsl er að ræða, þar eð svili hans og tengdasonur eru . báðir á lista FM. . . A A A G A ÆÐISLEGIR PÍTURÉTTIR SEM KITLA BRAGÐLAUKANA PÍTU-HÚ5IÐ Iðnbúð 8 Garðabæ — Sími 611290

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.