Helgarpósturinn - 23.04.1986, Qupperneq 3
FYRST OG FREMST
UM DAGINN sögðum við frá
tveimur einstaklingum, sem væru
komnir í „exklúsívan" hóp rithöf-
unda í Rithöfundasambandinu
vegna ritverka sinna, sem annars
vegar fjölluðu um ,,gómsæta“ og
„ljúffenga" átrétti og hins vegar
um alls kyns gátur. Staðreyndin er
víst sú, að ekki er búið að sam-
þykkja þetta fólk inn, heldur hefur
það einvörðungu sent inn um-
sóknir. Hins vegar má geta þess í
leiðinni, að danski rithöfundurinn
Klaus Rifbjerg, sem var staddur
hér á dögunum sagði við kollega
sína hérlendis, að í Danmörku
þyrftu menn bara að hafa skrifað
ávísun til þess að komast inn í
danska rithöfundasambandið.
Hann tók ekki fram hvort tékkinn
þyrfti að vera falsaður eða ekki,
en íslenskur rithöfundur, sem á
hlýddi taldi, að það hlyti að vera
skilyrði, að ávísunin væri fölsuð,
því þá væri hægt að flokka hana
mánaðar en átti að vera þar 15.
apríl. Námsmenn eru fokillir, sér-
staklega þó út í Sverri Hermanns-
son menntamálaráðherra sem
hafði svo tekið var eftir lofað
bættri þjónustu sjóðsins. Ástæðan
ina að gera og er það hluti hinnar
miklu yfirvinnu þeirra sem Sverrir
gagnrýndi mjög. Pétur gekk út
þegar Sigurjón var rekinn og því
voru góð ráð dýr í LÍN. Enginn
gat unnið þau verk sem Sigurjón
og Pétur höfðu innt af hendi. Pví
var útreikningurinn færður yfir til
SKÝRR. Þeir byggðu svo á forriti
Sigurjóns en það tók allt saman
mjög langan tíma, lengri tíma en
hinn nýi framkvaemdastjóri hafði
reiknað með. SKÝRR hefur nefni-
lega fleira að gera en vinna fyrir
LIN. Lánasjóðurinn þarf t.d. oft að
bíða eftir því að komast inn í
tölvuna hjá SKÝRR. Þetta veldur
því að þeir sem þurfa að fá leið-
réttingu á sínum málum geta þurft
að bíða í hálfan mánuð. Áður gátu
starfsmennirnir pikkað upplýs-
ingar beint á útstöðvarnar á borð-
inu hjá sér og nýtt skuldabréf varð
til samstundis. Núna verða þeir að
bíða eftir tíma hjá SKÝRR. Þjón-
ustan sem átti að batna hefur
þvert á móti versnað um allan
helming . . .
UPPI VARÐ fótur og fit meðal
mæðra drengja úr níunda bekk í
einum grunnskóla borgarinnar
fyrir stuttu. Inn um bréfalúguna
hafði nefnilega dottið bréf til
drengjanna frá PAN s/f. Bréfið
innihélt umsóknareyðublað og
voru drengirnir hvattir til að sækja
um svo framarlega sem þeir hefðu
ahuga á kynlífi, að koma fram á
sýningum og á hjálpartækjum.
Samkvæmt bréfinu þurftu dreng-
irnir að vera bæði líkamlega og
andlega eðlilegir. Þeir voru einnig
spurðir hvort þeir væru tilbúnir að
taka þátt í sýningum með hinni
einmana ambátt þar sem hún
væri sýnd í notkun. Hinir ungu
drengir voru þéraðir af PAN s/f
en ekki á kórréttan hátt enda tíðk-
ast ekki mjög þéringar nú til dags.
Þrátt fyrir þennan ágalla bréfsins
létu margar mæður blekkjast.
Synirnir létu ekki blekkjast þó það
hafi eflaust verið hugmyndin hjá
þeim sem sendu bréfið. Flestir
drengjanna hafa gert sér grein
fyrir því að um gabb væri að
ræða þar sem þeir vissu að fyrir-
tækið sem gefið er í skyn að hafi
sent bréfið heitir í raun Póst-
verslunin Pan en ekki PAN s/f.
Einnig hafa þeir vitað sem var að
umrætt tól heitir ekki hin ein-
mana ambátt heldur útlimalausa
ambáttin. En það er ekki nema
von að margar mæður hafi látið
blekkjast a.m.k. þær sem ekki eru
vel inni í málum hjálpartækja
ástarlífsins. . .
undir „fiksjón", uppspuna, þ.e.
skáldskap.
STARFSMENN Ftugleida hafa
veitt því athygli, að þeir sem feng-
ið hafa stöðuhækkanir við skipu-
lagsbreytingarnar á undanförnum
mánuðum, hafa flestir átt eitt sam-
eiginlegt. Þeir hafa gengið með
gul hálsbindi. Slík bindi voru seld
á útsölu í Herraríkinu fyrir
skömmu og fréttist af einum
starfsmanni Flugleiða, sem festi
þar kaup á sex gulum hálsbindum
fyrir fólk í ákveðinni deild félags-
ins. Er bindunum nú flaggað ákaft
á göngunum en enginn hefur
verið hækkaður í tign enn sem
komið er. ..
í ÞESSARI VIKU komu loks-
ins skuldabréf frá Lánasjóði ís-
lenskra námsmanna til þúsunda
námsmanna. Fé þetta kemur inn á
bankabækur í fyrsta lagi 25. þessa
HELGARPUSTURINN
■Örninn er sestur
Gaddafí er góður sómadrengur,
grunar mig að okkur vel hann dugi.
Það yrði nú heldur happafengur
ef hlutabréf hann keypti í Arnarflugi.
Niðri
SMARTSKOT
fyrir þessari seinkun námslánanna
nú mun einmitt vera verk ráðherr-
ans. Hann rak Sigurjón Valdimars-
son framkvæmdastjóra sjóðsins en
Sigurjón hafði hannað forritið sem
notað var við útreikning námslán-
anna. Sigurjón og Pétur Antonsson
höfðu haft mest með forritun-
UÓSMYND JIM SMART
Ertu að líða undir lok?
Ómar Ragnarsson
„Það fer eftir því hvað þú kallar að líða undir lok. Ég er dálítið
að draga saman seglin, hætti að ralla í fyrra og í Sumargleðinni
núna í vor. Og frá og með miðvikudeginum hætti ég með þætt-
ina „Á líðandi stundu". En ég verð eitthvað áfram að rölta hérna
í húsinu."
— Þetta eru umdeildir þættir. Hvernig finnst þér
sjálfum hafa til tekist?
„Ætli ég sé ekki manna síst dómbær á það. Það fór náttúr-
lega ekki hjá því að þættirnir yrðu umdeildir, við máttum alltaf
eiga von á því. Þetta var tilraun, en ekki hugarfóstur sem stökk
alskapað út úr kollinum á okkur þremenningunum. Ég veit að
ýmsar sjónvarpsstöðvar hafa átt í erfiðleikum með að finna
heppilegt form á svona þætti og kannski er það á mörkunum
að lítil sjónvarpsstöð geti haldið úti fyrirtæki af þessu tagi til
lengdar. En ég fer ekki ofan af því að þetta hafi verið tilraunar-
innar virði."
— Þið hafið fengið óhemju mikla gagnrýni — líklega
er þetta umtalaðasta þáttaröð í sögu íslenska sjón-
varpsins. . .
„Jú, jú, við fengum þá gagnrýni að þetta væru of litlir
skemmtiþættir og þá gagnrýni að þetta væru of miklir
skemmtiþættir. Við fengum ákúrur fyrir að tala við of mikið af
pólitíkusum og líka fyrir að tala við of lítið af pólitíkusum. Svo
fékk Agnes skammir fyrir að vera alltof grimm við Gvend Jaka
í fyrsta viðtalinu sínu og viku síðar var hún aftur skömmuð —
í þetta sinn fyrir að taka á Jóhannesi Nordal með silkihönskum.
Það er ekki hlaupið að því að gera öllum til hæfis í svona þætti."
—> Stundum hefur manni fundist þetta vera hálfgerð-
ur hrærigrautur, ekki satt?
„Eftilvill höfum við brennt okkur á því að leita fanga of víða,
þeir hafa máski eitthvað til síns máls sem segja að við höfum
stundum seilst svolítið of langt. En við fengum líka að heyra frá
öðrum sem mislíkaði við það efni sem tók langan tíma og
héldu því fram að það væri ekki nógu gott tempó í þáttunum."
— Nú er fyrirhugað að svipaðir þættir verði á dagskrá
sjónvarpsins næsta vetur, tvisvar í viku — er nokkurt vit
í því?
„Ég hef ekki breytt þeirri skoðun minni að sjónvarpið eigi að
hafa beinar útsendingar reglulega. Raunar vorum við líka gagn-
rýnd fyrir að hafa efni í beinni útsendingu sem hefði verið hægt
að taka upp fyrirfram — jú, það er svosem hægt að taka allt upp
fyrirfram, fréttirnar líka. En ég stend ennþá á því föstum fótum
að beinar útsendingar séu iðulega besta og skemmtilegasta
sjónvarpsefnið. Ég á von á því að öll aðstaða verði miklu betri
næsta vetur — við lögðum upp með tækjakost sem engin sjón-
varpsstöð hefði vogað sér að nota i þessum tilgangi, tvær
myndavélai í Volkswagenrúgbrauði. í sumar á sjónvarpið loks-
ins von á almennilegum upptökubíl sem hlýtur að auðvelda alla
vinnuna næsta vetur. En náttúrlega verður það líka einhvers
konar tilraun."
— En þú ætlar ekki að vera með í þeim slag?
„Nei, ég ætlaði bara að gera þessa fjögurra mánaða tilraun,
það var alltaf ráðgert að mínu hlutverki yrði lokið eftir það."
— Hvernig er þér svo innanbrjósts, nú þegar þessu
áhlaupi er að Ijúka?
„Auðvitað er maður aldrei ánægður, og þó — þetta hefði
getað farið miklu verr... Þetta hefur verið mjög erfitt og krefj-
andi og ég er guðslifandi feginn að sjá fyrir endann á þessu.
Nú er ég farinn að hlakka til að komast i langþráð sumarfrí sem
ég hef ætlað að taka mér í mörg ár. Það er skömm frá því að
segja, en blessuð börnin hafa aldrei farið með pabba til út-
landa."
— Hvað tekur svo við?
„Ég verð áfram hérna á sjónvarpinu, tvískiptur; hálfur á
fréttastofunni og hálfur á dagskrárdeildinni. Svo verð ég á ein-
hverjum lausagangi í skemmtibransanum einsog hér áður
fyrr. .."
— Stikluþættirnir vinsælu?
„Ég á ennþá stikluefni sem mér tókst ekki að Ijúka í fyrra, ætli
ég fari ekki að líta á það einhvern tíma á næstunni..."
Tólf þaettir sem hafa gengið undir samheitinu „A Ifðandi stundu" eru
líklega umdeildasta efni í sögu íslenska sjónvarpsins, og kannski líka
það vinsaelasta. Síðasta vetrardag ösla þau í síðasta skipti fram á hring-
sviðið, Sigmundur Ernir, Agnes og Ómar. Hvernig skyldi þeim gamal-
vana sjónvarpsmanni Ómari Ragnarssyni vera innanbrjósts eftir þessa
miklu þolraun?
HELGARPÓSTURINN 3