Helgarpósturinn - 23.04.1986, Blaðsíða 8
Það orkar varla tvímælis að stofn-
un Granda hf, hlutafélagsins sem
myndað var úr Bœjarútgerö Reykja-
víkur annars vegar og ísbirninum
hins vegar nú í vetur, er umdeildasta
pólitíska aðgerð, sem núverandi
borgarstjórnarmeirihluti í Reykja-
vík hefur staðið fyrir. Þar gekk borg-
arsjóður Reykjavíkur í félag með
einkafyrirtæki í fiskvinnslu í hag-
ræðingarskyni að því er sagt var, en
margir trúa því að þar hafi ráðið
greiðasemi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík við illa stadda máttar-
stólpa flokksins, bræðurna Jón og
Vilhjálm Ingvarssyni, sem voru að-
aleigendur Isbjarnarins hf. Isbjörn-
inn var kominn að gjaldþroti, þegar
hið nýja hlutafélag var stofnað og
Grandi hf. yfirtók skuldir ísbjarnar-
ins upp á 560 milljónir króna. Þar af
voru skammtímaskuldir upp á
251,153 milljónir króna. Þar af voru
gjaldfallnar 43,4 milljónir króna,
þegar samningar um stofnun
Granda voru undirritaðir 8. nóvem-
ber sl. og 14,4 milljónir voru á gjald-
daga fyrir síðustu áramót. Fastafjár-
munir ísbjarnarins sem lagðir voru
til Granda hf. voru metnir á
525.674.000 krónur við undirritun
samnings, eða nokkuð undir skuld-
unum sem Grandi hf. yfirtók. Eign-
um ísbjarnarins á Seyðisfirði var
hins vegar haldið fyrir utan samn-
inginn, en þar rekur fyrirtækið
áfram síldarbræðslu.
Rekstur ísbiarnarins
leyndarmáí
Þeir borgarfulltrúar úr minnihlut-
anum sem HP ræddi við sögðu að
þeir hefðu staðið frammi fyrir gerð-
um samningi þegar málið kom til
kasta borgarstjórnar á liðnu hausti,
ákvörðun hefði þegar verið tekin og
uppiýsingar, sem hægt hefði verið
að byggja á afstöðu með eða móti,
verið af mjög skornum skammti.
Engar upplýsingar hefðu legið fyrir
um rekstur ísbjarnarins undanfarin
ár, né heldur um eignir og umsvif
aðstandenda ísbjarnarins, sem eru
ærin. Ingvar Vilhjálmsson og synir
hans eru hluthafar og í stjórnum
fjölmargra sterkra fyrirtækja og
eiga miklar persónulegar eignir.
Ingvar er orðinn háaldraður maður
og hafa synirnir haft veg og vanda
af rekstri Isbjarnarins undanfarin ár.
Eitt þeirra fyrirtækja sem þeir ís-
bjarnarfeðgar hafa átt stóran hlut í
er Olíuverslun íslands hf. Þar eru
þeir nú báðir í stjórn, Ingvar Vil-
hjálmsson og Vilhjálmur sonur
hans. Þegar Grandi hf. var stofnað-
ur, skuldaði ísbjörninn OLÍS samtals
yfir 100 milljónir króna. Þessi skuld
var utan samningsins um stofnun
Granda, en OLÍS hefur síðan keypt
hlutabréf í Granda upp í skuldina og
nemur nafnverð hlutar OLIS í
Granda nú 15 milljónum króna.
í stjórnum fjölda
fyrirtækja
Eigendur gamla ísbjarnarins
koma víðar við sögu en hjá OLÍS.
Ingvar Vilhjálmsson er í stjórn Sjó-
vá. Jón Ingvarsson sonur hans situr
hins vegar í stjórn Eimskips. Hann
er jafnframt stjórnarformaður Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna.
Hann situr sem slíkur í stjórn nýs
hlutafélags um sérfræðiaðstoð og
ráðgjöf erlendis á sviði sjávarút-
vegs, Icecon, en frá stofnun þess fé-
lags var greint í fréttum um helgina.
Auk framangreindra fyrirtækja
sitja ísbjarnarfeðgar í stjórnum fyr-
irtækja eins og Tryggingamiðstööv-
arinnar, Kletts og Slippfélagsins, en
upplýsingar um eignaraðild þeirra
að þessum fyrirtækjum liggja ekki á
lausu. Hlutafélagaskrá hefur aðeins
upplýsingar um stofnframlög til
hlutafélaga, en skráir ekki breyting-
ar á hlutabréfaeign eða kaup og sölu
hlutabréfa. Enn má nefna aðild
téðra manna að Hampiðjunni hf. Þá
situr Jón í stjórn Iðnþróunarsjóðs.
Oljós skil milli
einkaneyslu og
fyrirtækis
Örðugleikar fyrirtækja í útgerð
8 HELGARPÖSTURINN
Laugarnesvegur 39. Þar á Vilhjálmur Ingvarsson 8 íbúðir. Brunabótamat þeirra er samtals rúmar 13 milljónir.
eru ekki ný bóla á íslandi, né heldur
það fyrirbæri að illa staddir útgerð-
armenn og eigendur fyrirtækja á
þessu sviði hafi mikil umsvif per-
sónulega þótt illa ári hjá fyrirtækj-
unum. Hins vegar þykja einkaum-
svif Isbjarnarbræðra með ólíkind-
um, miðað við það hve hratt hefur
stefnt niður á við síðan uppbygging-
in í Örfirisey átti sér stað.
Samhliða byggingu frystihússins í
Örfirisey stóðu bræðurnir Jón og
Ingvar í fjárfrekum byggingarfram-
kvæmdum fyrir sjálfa sig. Jón
byggði einbýlishús við Skildinganes
í Skerjafirði, en Vilhjálmur við Sæ-
braut á Seltjarnarnesi. Brunabóta-
mat á húsi Jóns er 11,630 milljónir
króna, en lóðarmat 1,284 milljónir.
Brunabótamat á húsi Vilhjálms í
Skerjafirðinum er 6,044 milljónir en
lóðarmat 867 þúsund.
Fleiri stórræðum stóðu þeir bræð-
ur í á þessum tíma. Vilhjálmur
byggði blokk með 8 íbúðum við
Laugarnesveg um þetta leyti. Sú
blokk mun nú vera til sölu. Saman-
lagt brunabótamat íbúðanna er
13,811 milljónir króna. Þá á Vil-
hjálmur óbyggða lóð við Hamars-
götu á Seltjarnarnesi, sem metin er
á 1,243 milljónir króna.
Heimildarmenn HP segja að ekki
hafi alltaf verið ljóst hvaða fram-
kvæmdir voru á vegum þeirra
bræðra og hverjar á vegum ísbjarn-
arins hf.
Fleiri eignir eiga þeir bræður, en
þær sem hér hafa verið tíundaðar.
Jón á sumarhús í landi Skógræktar
ríkisins við Hreðavatn, sem metið er
á 506 þúsund samkvæmt fasteigna-
mati. Var úthlutun byggingarleyfa í
landi Skógræktarinnar gagnrýnd
mjög á sínum tíma. Nágranni Jóns
við Hreðavatn er Halldór H. Jóns-
son, kunnur athafna- og fjármála-
maður og samstjórnarmaður Jóns í
Eimskip hf.
Vilhjálmur bróðir Jóns á hins veg-
ar sumarhús í Grafningi við Þing-
vallavatn, sem er metið á 249.000,
en lóðin á 40 þúsund samkvæmt
fasteignamati, en þær tölur segja
hins vegar lítið um endursöluverð.
Að sögn fasteignasala má giska á
neðri mörk við eina milljón króna.
Jón lngvarsson er kunnur hesta-
maður og á veglegt hesthús í Víði-
dal, sem gengur undir nafninu
„marmarahöllin". Heimildarmaður
HP segir að sérstakur maður hafi
lengi verið á launaskrá ísbjarnarins,
en ekki haft annan starfa en að gæta
hesta Jóns og hesthúss.
í bók Pamelu Brement, fyrrum
sendiherrafrúar Bandaríkjanna á
íslandi, Iceland 66° North getur að
líta mynd af þeim Jóni Ingvarssyni
og Þórði Ásgeirssyni forstjóra OLÍS
þar sem þeir njóta samveru við
hesta og náttúru. Sumum þykir það
næsta kaldhæðnislegt í ljósi þeirra
viðskipta sem átt hafa sér stað milli
þeirra fyrirtækja sem þeir Jón og
Þórður hafa veitt forstöðu.
Dýrar laxveiðar
Þverá í Borgarfirði er með dýr-
ustu laxveiðiám landsins. Fjöldi
jarða á land að henni og hafa eig-
endur veiðiréttarins stofnað með
sér félag er nefnist Veiðifélag Þverár
sf. Stöngin í ánni kostaði á síðasta
ári tæplega 3000 krónur á dag, en
við það bætist dýrt og gott fæði,
sem veiðimenn verða að kaupa í
skála félagsins. Og það eru einmitt
þeir bræður Jón og Vilhjálmur sem
í félagi við fleiri hafa haft ána á leigu
og nýtt gæði hennar. Fleiri ár munu
Grandi hf. er hlutafélag borgarsjóðs, ísbjarnarins, OLÍS, Ingvars Vil-
hjálmssonar, Vilhjálms Ingvarssonar og Jóns Ingvarssonar. Hlutir skipt-
ast þannig:
Borgarsjóður 150 milljónir
Isbjörninn 34,970 milljónir
OLIS 15 milljónir
Ingvar Vilhjálmsson 10 milljónir
Jón Ingvarsson 10 milljónir
Vilhjálmur Ingvarsson 10 milljónir
Fyrirtækið yfirtekur skuldir ísbjarnarins að upphæð 560 milljónir
króna. Áfram hvíla á Isbirninum um 40 milljónir króna vegna rekstrar
síldarbræðslu á Seyðisfirði. Þá skuldaði ísbjörninn 25—30 milljónir
króna til viðbótar, en af þeim yfirtók OLÍS 15 milljónir og fékk hlutabréf
í Granda hf. í staðinn. Tveir eigenda Isbjarnarins sitja í stjórn OLIS.
Borgarsjóður Reykjavíkur hafði forgöngu um stofnun nýs fyrirtækis,
sem yfirtók langstærstan hluta skulda Isbjarnarins. Eigendur ísbjarnarins
hafa þannig losnað við skuldabyrðina, en halda sjálfir eftir eignum upp
á tugi milljóna.