Helgarpósturinn - 23.04.1986, Page 9
þeir hafa nýtt í Borgarfirði og ganga
sögur um jarðakaup þeirra þar
efra, en HP hefur enga staðfestingu
á því. Heimildarmenn HP segja að
leigan á Þverá sé milljónafyrirtæki á
ári.
Menningarneysla
Heimili þeirra bræðranna Jóns og
Vilhjálms eru prýdd málverkum og
góðum bókum og mun þar vera um
að ræða eignir upp á milljónatugi.
Annar þeirra keypti til að mynda ný-
lega málverk Jóns Stefánssonar af
stóðhestinum fyrir 1,8 milljónir
króna. Bókasöfn þeirra munu afar
verðmæt.
Hvers vegna Grandi hf.?
Margir hafa velt fyrir sér þeirri
spurningu, hvað hafi rekið Reykja-
víkurborg til að stofna Granda hf. og
yfirtaka þar með skuldir ísbjarnar-
ins og forða honum frá gjaldþroti,
sem virtist óumflýjanlegt. Því hefur
m.a. oft verið haldið fram að með
því hafi Davíb Oddsson borgarstjóri
Íagt pólitískan heiður sinn og fram-
tíð í mikla hættu, engin framkvæmd
hans sem borgarstjóra hafi orkað
jafnmikils tvímælis. Andstæðingar
hans segja að ef aðeins hag-
kvæmnisjónarmið hafi ráðið ferð-
inni, hefði verið eðlilegt að kanna
hvort fleiri aðilar væru tilbúnir að
leggja í púkkið, en eftir því var ekki
leitað og umleitunum Kirkju-
sands hf. að eiga aðild að sam-
runa fyrirtækjanna var hafnað
af borgarstjóra, en ekki er vitað
hvort hugur fylgdi máli hjá
forráðamönnum fyrirtækisins eða
hvort verið var að reyna að gildra
borgarstjórann.
Eftir stendur að Reykjavíkurborg
gengst fyrir stofnun fyrirtækis sem
yfirtekur skuldir Isbjarnarins upp á
hundruð milljóna króna. Þær skuld-
ir sem Grandi hf. yfirtók ekki, 40
milljónir króna, eru allar tengdar
rekstrinum á Seyðisfirði og að auki
25—30 milljónir króna, sem OLIS
hefur nú að hluta yfirtekið og fengið
hlutabréf fyrir í Granda hf. eins og
fyrr var rakið. Hér er þó auðvitað
ekki um hina frægu pennastriksað-
ferð að ræða, heldur fylgir skulda-
byrðin áfram borgarsjóði Reykjavík-
ur og hinu nýja fyrirtæki, Granda hf.
Heimildarmenn HP telja að slæm
staða Landsbankans hafi ráðið hér
miklu. Landsbankinn hafði lánað ís-
birninum mikið fé og átti á hættu að
verða að afskrifa það að hluta.
Heimildarmaður HP komst þannig
að orði, að bræðurnir hefðu nánast
haft „sjálfsafgreiðslu" í bankanum
um árabil og fyrirgreiðsla bankans
Lóðin við Hamarsgötu 2. Fasteignamat'hennar er 1,243 milljónir.
Hesthús Jóns Ingvarssonar í Víðidal.
Hús Jóns Ingvarssonar við Skildinganes. Brunabótamat: 11,630 milljónir.
við þá hefði verið komin langt út
fyrir eðlileg mörk. Hin slæma staða
ísbjarnarins hafði líka þau áhrif að
hún ógnaði stöðu annars stórs við-
skiptaaðila bankans, OLÍS hf. Sam-
’engdir hagsmunir þessara fyrir-
tækja, svo og bankans, kölluðu á
skjótar aðgerðir. Hugmyndina að
stofnun Granda hf. segja heimildir
HP komna frá þessum þrem aðilum,
Isbirninum, OLIS og Landsbankan-
um, en tveir fyrrnefndu aðilarnir
lutu stjórn sömu manna að hluta,
eins og áður er rakið. Það kom svo
í hlut Reykjavíkurborgar að gera
þessar hugmyndir að veruleika, en
á það má benda að Landsbankinn
er viðskiptabanki borgarinnar og
það er mikið hagsmunamál fyrir
hana að staða bankans sé sem best,
ekki síst á tímum mikillar fram-
kvæmdagleði.
Menn halda hins vegar áfram að
velta fyrir sér hvort réttlætanlegt
hafi verið að grípa til þessara að-
gerða á grundvelli þeirra takmörk-
uðu upplýsinga sem fyrir lágu. A
þeim tíma sem borgarfulltrúar
greiddu atkvæði um samninginn
um stofnun Granda hf. gengu sögur
um mikil umsvif og einkafjárfesting-
ar bræðranna Jóns og Vilhjálms,
sem borgarfulltrúar höfðu ekki að-
stöðu til að meta hvort ættu við rök
að styðjast. Sögusagnirnar urðu að
nægja þeim og almennum borgar-
búum. Er upplýsingaþjóðfélagið
kannski meira í orði en á borði?
Deilur um uppgjör
eignanna
Hér hafa aðeins verið tilnefndir
sem eigendur Isbjarnarins þeir
Ingvar Vilhjálmsson og synir hans,
Jón og Vilhjálmur. En að Isbirninum
stendur einnig systir bræðranna,
Sigríður Ingvarsdóttir, með 25%
eignarhluta.
Heimildir HP segja að Sigríður
hafi talið sig mjög hlunnfarna í fram-
angreindum viðskiptum öllum. Mun
Sigríður telja að hlutur hennar hafi
mjög verið fyrir borð borinn og
ýmislegt hafa við eignavörslu
bræðranna að athuga. M.a. mun nú
vera í gangi löghaldsmál vegna
meintra vanefnda bræðranna í
skiptum eignanna. Stendur málið
um hlutabréf í Hampiðjunni hf., þar
sem Sigríður telur að hún hafi ein-
ungis fengið í sinn hlut bréf upp á
eina milljón króna í stað rúmra
tveggja, sem um hafi verið samið.
Alls munu um 50 milljónir hafa fall-
ið henni í skaut að undan-
genginni sáttargjörð. Ekki eru þetta
þó allt hreinar og tærar krónur,
heldur bréf ýmiss konar.
HELGARPÖSTURINN 9