Helgarpósturinn - 23.04.1986, Side 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Friðrik Þór
Guðmundsson, Jóhanna
Sveinsdóttir, Jónína Leósdóttir
og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea J. Matthlasdóttir
Útgefandi: Goögá h/f
Framkvaemdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steinþór Ólafsson
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasfmi: 74471)
Afgreiðsla:
Berglind Björk Jónasdóttir
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sfmi
68-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 68-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Bækur þurfa
góða geymslu
Enn hefur byrjað smáum-
ræða um Þjóðarbókhlöðuna,
sem nú er einn feiknamikill
steinsteypuhlunkur vestur á
Melum. Það hús hefur liðið fyrir
þá hagfræðikenningu, sem
kalla mætti hagkvæmni hægðar-
innar. Þessi stefna hefur verið
ríkjandi hjá íslenskum stjórn-
völdum um margra ára bil og
skiptir þá sjaldnast hvaða
stjórnmálaflokkur eða -flokk-
ar sitja við stjórnvölinn.
Þjóðarbókhlaðan hefur verið
kölluð „þjóðargjöf", sem er eitt
af þessum óskiljanlegu hugtök-
um, er verða til, þegar stjórn-
málamenn ætla að höfða til
samkenndar og einhugar. Og
nú hefur Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra lagt fram
frumvarp um „þjóðarátak" til
byggingar Þjóðarbókhlöðu.
Hér er náttúrulega vísað beint
til nýyfirstaðins þjóðarátaks
krabbameinsmanna, sem söfn-
uðu á einni helgi 25 milljónum
króna.
Á Alþingi er ágreiningur um
það hvort afla eigi fjár til bygg-
ingarinnar með áframhaldandi
stóreignaskatti eða ekki. Og
nokkrir þingmenn hafa meira
að segja farið út í skak um heiti
frumvarpsins og vilja setja inn
orðið „eignamannaátak" í stað
þjóðarátaks.
Ekkert af þessu skiptir máli.
Það sem skiptir máli er, að hér
á landi er brýn þörf fyrir gott
bókasafn og með því að koma
Landsbókasafni og Háskóla-
bókasafni í eitt hús eykst gildi
þessara safna margfalt. Bæði
eru þau góð fyrir sinn hatt, en
saman eiga þau eftir að bæta
hvort annað upp svo um munar.
Þess vegna ber að fagna því,
að Sverrir Hermannsson skuli
halda áfram, þar sem Gunnar
heitinn Thoroddsen skildi við,
og beita sér fyrir því að þessi
safnbygging skuli rísa einhvern
tíma fyrir aldamót!
Það er vitað mál, að fram-
sóknarmenn hafa verið tregir í
taumi í þessu máli og raunar
einnig allmargir „framsóknar-
menn" í Sjálfstæðisflokknum
og öðrum flokkum einnig. Hjá
þeim er eilíflega lagður einhver
mælikvarði á fjárveitingar til
menningarmála, sem þeir
halda, að „atkvæðin" sín í kjör-
dæmunum skilji.
Menntamálaráðherra með
bein í nefinu gefur slíkum sjón-
armiðum langt nef. Og það hef-
ur Sverrir Hermannsson gert i
þessu máli.
10 HELGARPÓSTURINN
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
SALIR
Eftirfarandi kveðskapur barst
okkur í póstinum:
Ad gefnu tilefni
Flugleiða var formaður
frjór í sinni ræðu.
Ofurlítið óglaður
Arnarflugs á mæðu.
Allt er hjá þeim illa rekið
aldrei gott ráð frá mér tekið.
Ósæmilegt af flugsins freyjum
fara í „strejk" um betri laun.
Sætastríð við sífellt heyjum
sem að þýðir tap í raun.
Einkaleyfi á öllu flugi
okkar myndi gleðja hugi.
„Hins útvalda" (að eigin mati)
umsvif munu varla þverra.
Sækir laun á silfurfati
er sæma mundu ráðherra.
En óánægja einnig dafnar.
Aðalfundur máli hafnar.
Pílagríma-flug er fínt
við Flugleiðir skal ræða.
Enda hafa þeir áður sýnt
að aura má þar græða.
En Alsír-tilboð annað fór
Arnarflugs varð gleði stór.
H.E.
Skodana-
könnun HP
í skoðanakönnun HP um fylgi
stjórnmálaflokkanna vegna sveitar-
stjórnakosninganna í vor í nokkrum
bæjum út um land og í Reykjavík féll
niður tafla um fulltrúafjölda í Hafn-
arfirði samkvæmt könnuninni. Tafl-
an lítur þannig út:
1986
Alþýðuflokkur..................3
Alþýðubandalag................ 2
Framsóknarflokkur..............0
Sjálfstæðisflokkur............ 5
Fél. óháðra borgara............0
Mjög erfitt er að fullyrða hvar 11.
fulltrúinn myndi lenda. Samkvæmt
könnuninni gæti þessi fulltrúi orðið
efsti maður Framsóknar eða
Kvennalista, eða 4. maður Alþýðu-
flokks, sem þannig myndi tvöfalda
fulltrúatölu sína í Hafnarfirði.
Á Sauðárkróki hefðu Óháðir kjós-
endur fengið einn fulltrúa.
Athugasemd
I grein um fermingarbörn og
presta í síðasta blaði var sagt, að
Frank M. Halldórsson væri með á
bilinu 80—100 fermingarbörn í ár.
Hið rétta er, að Frank og séra Guð-
mundur Óskar Ólafsson skipta þess-
um barnafjölda með sér.
Leiörétting
í smáfrétt í síðasta blaði sögðum
við frá því, að Björn Vignir Sigur-
pálsson ritstjóri viðskiptasíðna
Morgunblaðsins væri ritstjóri áróð-
ursblaðs Alþýðuflokksins, sem nú er
unnið að. Þetta er ekki rétt. Einu af-
skipti Björns af þessu blaði eru þau,
að hann féllst á að taka viðtal við
Bjarna P. Magnússon, gamlan vin og
samstarfsmann af Helgarpóstinum.
LAUSN Á SKÁKÞRAUT
Hættan, sem fylgir því að svína
drottningu í fyrsta, er sú, að fái
austur á kónginn, þá mun hann
sennilega haldá áfram með hjarta
til þess að fækka innkomum í
borðið. Það minnkar möguleika
þína töluvert. Eftir að hafa tekið
nokkur tromp, getur þú reynt lauf-
ið, en vonin er smá, þar sem að-
eins er um eina innkomu að ræða,
þ.e.a.s. á tígulgosann. Því er aðeins
hægt að nýta litinn ef hann liggur
3-3. Enn er veik von að svíha spað-
anum, en sú von er nákvæmlega
útreiknuð 84%, en að öllu öðru
leyti þrungin vonleysi og ógæfu
fyrir afganginn.
Þannig voru öll spilin:
S 7-2
H Á-D-3
T G-4-3
L Á-K-8-6-5
S K-D-8-5 S 10-9-6-4-3
H 10-8-6-5 H K-G-9-2
T 6 T Á-K-D-10-8-7-5
L D-10-9-4 L G-2
S Á-D
H 7-4
T Á-K-D-10r8-7-5
L 7-3
Besta spilamennskan er að
draga að svína hjartanu. Láta
hjarta þristinn úr borði og þá tek-
ur austur með gosanum.
Hann getur ekki haldið áfram í
hjarta og skiptir því sennilega yfir
í spaða. Þú tekur á ásinn, tekur
trompin í tveim spilum og lætur
laufa ás og kóng. Síðan enn eitt
lauf, sem þú trompar. Nú eru tvær
innkomur í borðið og þessvegna
er nú vandalaust að spila fimmta
laufinu, svo það verði frjálst og
hendá í það spaða drottningunni.
Hefði laufa liturinn legið 5-1, þá
eru möguleikarnir að reyna að
svína hjartanu, eða að spila upp á
þvingun.
Ég held, að reikningslega séð,
þá séu möguleikarnir 92% fyrir
því að það takist.
Bfllinn í lagi — beltin spennt
bömin í aftursæti.
GÓÐAFERÐ!
Allur akstur
krefst
varkárni
Ytum ekki barnavagni
á undan okkur við
aðstæður sem þessar
Fyrir t.d.
Ættarmót
Stúdentsveislur
Brúðkaup
Afmæli
Erfidrykkju
Róðstefnur
Fundarhöld
Framreiðslumaður: Pétur Sturluson
Veislu- og fundarsalir
Hverfisgötu 105
Símar 29670 - 22781
Ferðaáfangar mega ekki vera of langir - þá þreytast
farþegar, sérstaklega börnin.Eftir5til10mínútnastanságóðum
stað er lundin létt. Minnumst þess aö reykingar í bílnum geta
m.a. orsakað bílveiki.
1 Át- ; i 1 Æ li m
HTH eldhúsinnréltingar
með aðeins 20% útborgun
og ofgonginn á allt
að 19 mánuðum
Dæmi:
HTH 2400 Kr. 123.260,-
við pöntun — 24.000,-
við afhendingu — 24.000,-
eftirst. 75.260,-
sem greiðist á 12 mánuðum.
Afborgun án vaxta á mánuði
kr. 6.771.-
Við erum einnig með í miklu
úrvali: parket, innihurðir,
eldhúsvaska og heimilistæki
innréttingahúsið
Háteigsvegi 3 Verslun Slmi 27344