Helgarpósturinn - 23.04.1986, Blaðsíða 12
Sérfræðingar telja vinsældalista Rásar 2 hreina dellu:
II
ÞEKKJUM
ii
SVINDiJP
segir Páll Þorsteinsson dagskrárgerðarmaður
f?o\
rijlÍtMsL
rash
2.(2) LITTLE GIRL
Sandra
3 (_) GLEÐIBANKINN
lcv
4 (9) ÖNNUR SJÖNARNIIÐ
Hilmar Oddsson &
5. (4) AB%HLUÍÉÚBEG'NNTRS
6 (3) WAITING FORTHE MORN-
ING
Bobbysocks
leftir G. Pétur Matthíasson myndir: Jim Smarti
Þœr sögur ganga fjöllunum
hœrra að vinsœldalistinn sé mein-
galladur. Þad virdist vera á allra vit-
orði að listamenn komi lögum sín-
um í efsta sœti listans með því að fá
vinisína og kunningja til að hringja
inn sitt lag. ,,Það er báið að fara
lengi í taugarnar á okkur hér á Rás-
inni að vinsœldalistinn er ekki
áreiðanlegur," sagði Páll Þorsteins-
son þegar HP hóf að kanna hvernig
komið vœri fyrir Vinsældalista
hlustenda Rásar 2. Páll kynnir tíu
vinsœlustu lögin á fimmtudags-
kvöldum.
„Við vitum það líkt og allir aðrir
að vinsœldalistinn er ekki mjög ör-
uggur. Við kynnum hann sem heil-
agan sannleik þó að við vitum að
hann sé ekki mjög áreiðanlegur.
Listinn gefur ákveðnar vísbending-
ar. En hann virkar öfugt. I öllum
öðrum skoðanakönnunum er
hringt í fólk en þegar vinsœldalist-
inn er báinn til er hringt í okkur. Það
er þetta sem er fyrst og fremst að."
Vinsœldalisti hlustenda Rásar 2
varð til í morgunþætti þeirra Jóns
Olafssonar, Asgeirs Tómassonar og
Páls Þorsteinssonar snemma árs
1984. í bríaríi datt Jóni þessi hug-
mynd í hug. í fyrstu var fólk beðið
að hringja inn þrjú vinsælustu lögin
á milli 12 og 2 á fimmtudögum, síð-
an voru tíu vinsælustu lögin spiluð í
morgunþættinum daginn eftir.
Þetta vatt síðan upp á sig. Með út-
sendingu á fimmtudagskvöldum
færðist þátturinn í það horf sem
hann er í núna. Tíu vinsælustu lögin
leikin á fimmtudagskvöldum og þau
30 vinsælustu á sunnudögum. Lögin
eru enn þannig valin að fólk hringir
inn þau þrjú lög sem það telur best.
Þetta á sér stað milli 4 og 7 á
fimmtudögum. A annað þúsund
manns ná sambandi við Rásina. Síð-
an er einfaldlega lagt saman, lagið
sem fær flest atkvæði lendir í fyrsta
sætinu.
Erlendis er annar háttur hafður á.
I Bretlandi er miðað við sölu á smá-
skífum. í hverri viku kannar Gallup-
stofnunin sölu á smáskífum í 250
plötuverslunum. Þetta er ekki hægt
hér á landi þar sem engin sala er í
smáskífum. í Bandaríkjunum er
svipaður háttur hafður á nema hvað
þar er listinn blandaður.
Hvorttveggja könnuð sala smáskífa
og líka spilun í útvarpi. Þar í landi
eru reyndar þúsundir útvarps-
stöðva. Enn sem komið er eru ekki
margar útvarpsstöðvar á íslandi
þannig að ekki gengur þetta fyrir-
komulag hér á landi.
Páll Þorsteinsson sagði: „Við höf-
um gert kannanir á því hvað það er
gamalt fólk sem hringir í okkur. Nið-
urstaðan hefur verið sú að langflest-
ir sem hringja eru á aldrinum 12—14
ára og dæmi hafa verið um 5—6 ára
krakka sem eru að hringja inn lög.
Listinn gefur því helst hugmynd um
vinsælustu lögin hjá þessum aldurs-
hóp. En það er að sjálfsögðu fólk á
öllum aldri sem hlustar á dægurlög.
Rolling Stones eiga t.d. engan séns á
listanum þrátt fyrir að platan sé efst
á DV-listanum yfir seldar plötur. Það
er vegna þess að sá hópur sem
hringir inn lög hefur engan áhuga á
Rolling Stones. Það er hending ef
maður eldri en tvítugur hringir inn.
Sama átti sér stað í fyrra með lag
einsog Just a Gigolo sem maður
vissi að var gífurlega vinsælt, sér-
staklega hjá fólki 25 ára og uppúr,
það lag náði aldrei að komast í
fyrsta sætið. Það höfðaði ekki til
12—14 ára krakka.
Það er ákveðinn kjarni sem hefur
svarað hér í símann lengi og við
erum farin að þekkja svindlið sem
er í gangi. Það hefur gengið svo
iangt að við þurftum t.d. að útiloka
eitt lag með Duran-Duran. Sama átti
sér næstum stað með eitt íslenskt
lag en með því að hóta því að taka
lagið af listanum hætti svindlið. Það
er ef til vill eitt gott við svindlið að
aðallega er um íslensk lög að ræða.
Páll Þorsteinsson: „Það fer (taugarnar á
okkur að vinsældalistinn er ekki áreið-
anlegur."
Þannig að þau fá athygli en það væri
skemmtilegra ef það væri á annan
hátt. Við erum alltaf að ræða þetta
okkar á milli á Rásinni. Það væri
bæði skemmtilegra og smekklegra
að standa öðruvísi að valinu á list-
ann. Mér finnst sem útvarpsmanni
mjög mikilvægt að vera með réttan
lista. Þetta er söguleg heimild um
vinsældir dægurlaga. Og það er
vitnað í listann langt aftur í tímann.
Við erum að miðla ákveðnum upp-
lýsingum sem eru ekki nema að litlu
leyti sannar. En listinn er síðan not-
aður í viðskiptum o.s.frv. Þannig að
það er mjög mikilvægt að hann sé
réttur.
Ég vil að listinn sé unninn á vís-
indalegan hátt fyrst á annað borð er
verið að safna heimildum. Það væri
hægt að gera það með því að við
hringdum út til fólks. Við færum eft-
ir ákveðnu úrtaki sem væri byggt á
ákveðinni aldursdreifingu. Að sjálf-
sögðu ætti stærsti hópurinn að vera
unglingar en einnig eldra fólk.
Þannig fengist mun réttari mynd af
vinsældum laganna en með listan-
um einsog hann er uppbyggður í
dag. Það er kominn tími til að vinna
þetta almennilega þannig að hægt
verði að treysta listanum. Það er
komin ákveðin hefð á vinsældalist-
ann og hætt við því að hún festist í
sessi. Því er nauðsynlegt að kýla á
þessa breytingu.
Vinsældalistinn er stærsta tekju-
lind Rásarinnar og víst er að áhug-
inn fyrir listanum er mikill, það
vantar ekki. Núna er t.d. mikil
stemmning fyrir Gleðibankanum.
Og í því tilviki er listinn örugglega
réttur. Þannig að hann getur gefið
rétta mynd en maður veit bara ekki
hvenær það er,“ sagði Páll Þorsteins-
son að lokum.
Áhugi hlustenda
skiptir mestu
Aðspurður um Vinsældalista
hlustenda Rásar 2 og fyrirkomulag
það sem notað er við val á listan-
um sagðist Markús Örn Antons-
son útvarpsstjóri ekki hafa þaul-
kannað í öllum einstökum atrið-
um hvernig vœri háttað tilurð vin-
sœlda lista Rásar 2. „Þetta er fyr-
irbœri sem stöðugt er í mótun og
verið er að vinna að vikulega.
Ég hef ekki gert nákvæmar at-
huganir á því hvernig að því hafi
verið staðið hverju sinni, hinsveg-
ar hef ég vitaskuld fylgst með um-
ræðum sem hafa orðið um vin-
sældalistann í blöðum. Einnig
hafa farið fram umræður hér inn-
an stofnunarinnar sem ég hef ver-
ið þátttakandi í um það að hugsan-
lega tækju sig saman einhverjir til-
teknir hópar úti í bæ um það að
reyna að hafa áhrif á hvernig þessi
listi líti út. Á móti hafa menn verið
að benda á einhverja möguleika á
því að fara aðrar leiðir en hér hafa
verið reyndar við að búa listann
til. Þeim vangaveltum vil ég svara
á þann hátt að ég tel það vera höf-
uðatriði að sem stærstur hópur
manna taki þátt í vali á listanum.
Það er mikilvægt að það fólk sem
leggur á sig að hringja til Ríkisút-
varpsins til að láta í ljós áhuga sinn
hafi mótandi áhrif á þennan iista
en ekki vélræn tölvuúrtök.
Það er ekkert óeðlilegt í sjálfu
sér að þessir yngri aldurshópar,
12—14 ára, setji mark sitt meira á
svona lista heldur en aðrir. Vita-
skuld væri mjög æskilegt að aðrir
aldurshópar áhugamanna um
þessi efni hefðu sitt að segja í
þessu. Það er þá frekar Ríkisút-
varpsins að sjá til þess að hér skap-
ist skilyrði til þess að taka á móti
skoðunum og ábendingum frá
sem stærstum hópi og breiðum
fjölda," sagði Markús Órn að lok-
um.
Markús örn Antonsson: „Tek frekar
mark á því fólki sem leggur á sig að
hringja inn til okkar heldur en vél-
rænum tölvuúrtökum."
íslenskir flytjendur
koma sér í efsta sæti
,,Okkur finnst hann í fyrsta lagi
vera ágœtismál að því leytinu til
að það skuli eitthvað vera gert í þá
átt að kynna hvaða lög eru vinsœl-
ust hverju sinni," sagði Steinar
Berg hljómplötuútgefandi að-
spurður um Vinsœldalista Rásar
2. „En hvernig sem að þessum
málum er staðið, þ.e. vali á vin-
sœldalista, hvar sem er í heimin-
um verður það alltaf umdeilt. Mín
gagnrýni á Vinsœldalista Rásar 2
er sú að þar er greinilega gífurlegt
ósamrœmi á milli sölu platnanna
og þeirra vinsœlda er lögin njóta á
vinsœldalistanum. Þetta blasir við
núna þessa vikuna með La-líf og
var einnig greinilegt um síðustu
jól. Og það er athyglisvert að þau
lög erlend sem ná vinsœldum á
listanum ná jafnframt mikilli sölu,
þar gætir ekki neins ósamrœmis."
— Hefur La-líf þá lítið selst?
„Það hefur ekkert selst. En það
er greinilegt með íslenska lista-
menn, í sumum tilfellum a.m.k.,
að það á sér það sama stað með
Vinsœldalista Rásar 2 og átti sér
stað með Tíu á toppnum hér áður
fyrr. Þá skrifuðu heilu vinnustað-
irnir, kannski hundrað manns,
undir sama lagið sem var síðan
sent inn. Það er greinilegt að það
á sér stað einhverskonar smölun
af hálfu íslenskra flytjenda til þess
að koma sínum lögum inn á list-
ann. Þeir vita að svo lengi sem
þeir eru á leið upp listann eru þeir
mikið spilaðir í útvarpi. Það getur
hugsanlega síðan leitt til meiri
sölu, þó að sú raunin hafi ekki orð-
ið á með fjölda þeirra laga sem
hafa notið mikilla vinsælda á list-
anum. Sérstaklega þó það sem
flutt hefur verið á ensku. Það virð-
ist sem margir íslenskir listamenn
haldi að eftir þeir eru búnir að
smala laginu sínu upp listann sé
mjög stutt í heimsfrægðina."
Steinar Berg: „La-líf hefur ekkert selst
þó það sé í efsta saati Vinsældalista
Rásar 2."
— Þú ert sem sagt ánœgður með
vinsœldalistann að einu leyti en
óánœgður með hann að öðru
leyti?
„Það verður alltaf einhver krítík
á svona vinsældaval. Ég þekki til í
Bretlandi og þar eru alltaf ákveðn-
ar deilur í gangi. Svona kerfi eins-
og hér er býður að sjálfsögðu upp
á það að menn reyni að ýta sér
upp listann. Og það geta þeir sem
eru í þessu sjálfir. Hljómplötufyrir-
tæki einsog mitt getur ekki verið
þekkt fyrir að biðja fólk að hringja
inn þau lög sem við höfum á okkar
snærum. Það myndi strax verða
alkunna ef slíkt væri. En fólk hefur
miklu meiri samúð með lista-
mönnum sem eru að standa í
þessu sjálfir en t.d. okkur sem er-
um að reka fyrirtæki. Eflaust
finnst fjölskyldum og vinum þess-
ara listamanna það vera skylda sín
að sýna þeim tryggð og hringja
inn. Það er skiljanlegt að vissu
marki" sagði Steinar Berg að lok-
um.
12 HELGARPÖSTURINN